Ída Margrét er íþróttakona Gróttu 2025

Árlegt kjör íþróttafólks Gróttu fyrir árið 2025 fór fram á þriðjudagskvöld. Handknattleiksfólk var fyrirferðamikið á hátíðinni og meðal annars í kjöri á íþróttakonu Gróttu. Ída Margrét Stefánsdóttir var tilnefnd frá handboltanum og Lovísa Davíðsdóttir Scheving frá knattspyrnudeild. Það var síðan Ída sem hlaut titilinn íþróttakona Gróttu.

Ída Margrét er fædd árið 2002 og er rétthent skytta. Ída Margrét hóf handknattleiksiðkun sína ung að árum og kemur úr mikilli handboltafjölskyldu. Hún kom fyrst til Gróttu á láni árið 2021. Hún staldraði þó stutt við það tímabilið þar sem hún var fljótlega kölluð til baka til Vals. Frá árinu 2022 hefur hún verið lykilleikmaður Gróttuliðsins og myndar í dag fyrirliðateymi liðsins með Katrínu Helgu Sigurbergsdóttur. Ída hefur leikið 85 leiki með Gróttu.

Gróttuliðið lék í Olísdeildinni meðal bestu liða landsins á seinasta leiktímabili. Liðið féll eftir hetjulega baráttu. Grótta komst alla leið í Final4 í bikarkeppninni og mætti þar stjörnuprýddu liði Hauka. Haukakonur voru sterkari og uppskáru að lokum bikarmeistaratitilinn.

Ída er stórskytta og var markahæsti leikmaður liðsins á seinasta tímabili í Olísdeildinni. Hún hefur haldið uppteknum hætti í vetur og er langmarkahæsti leikmaður Gróttu hingað til með 7 mörk að meðaltali í hverjum leik. Auk þess er hún frábær varnarleikmaður og fyrirmynd.

Á lokahófi handknattleiksdeildar Gróttu í vor þá var Ída Margrét valin mikilvægasti leikmaður liðsins.

Ída er mikil keppnismanneskja og leggur sig ávallt alla fram í öll verkefni, tekur leiðsögn vel og getur náð enn lengra á næstu árum. Það er virkilega gleðileg tíðindi fyrir jólin að hún ákvað að framlengja samninginn sinn við Gróttu til ársins 2029.

Myndir: Eyjólfur Garðarsson

Antoine Óskar er íþróttamaður Gróttu 2025

Árlegt kjör íþróttafólks Gróttu fyrir árið 2025 fór fram í gærkvöldi. Handknattleiksfólk var fyrirferðamikið á hátíðinni og meðal annars í kjöri á íþróttamanni Gróttu. Antoine Óskar Pantano var tilnefndur frá handboltanum og Grímur Ingi Jakobsson frá knattspyrnudeild. Antoine hlaut nafnbótina íþróttamaður Gróttu árið 2025.

Antoine Óskar er fæddur árið 2006 og er að leika á sínu fjórða leiktímabili með Gróttu þrátt fyrir ungan aldur. Grótta lék fyrri hluta ársins í Olísdeildinni á meðal bestu liða landsins en liðið þurfti að bíta í það súra epli að falla niður í næstefstu deild, Grill 66-deildina eftir spennandi fallbaráttu.

Hann er mikill leiðtogi sem lýsir sér best að hann er annar af tveimur fyrirliðum meistaraflokks karla. Hann hefur skoraði 85 mörk fyrir Gróttu í vetur og leikur lykilhlutverk í varnarleik liðsins.

Antoine lét sér það ekki nægja að leika með meistaraflokki á seinasta leiktímabili því hann lék með 3.flokki karla sem gerði sér lítið fyrir og varð bikarmeistari í mars og endaði í 2.sæti Íslandsmótsins eftir framlengdan úrslitaleik. Antoine var lykilleikmaður liðsins, fyrirliði og með hæfileikum sínum gerði hann alla leikmenn í kringum sig betri.

Antoine hefur verið fastamaður í unglingalandsliðum Íslands og verið þar fyrirliði. Vegna meiðsla sem hann glímdi við á seinasta leiktímabili gat hann ekki tekið þátt í landsliðsverkefnum síðastliðið sumar. Þar stóð hæst HM í Egyptalandi í ágúst.

Antoine Óskar hefur undanfarin þrjú árin verið þjálfari yngri flokka hjá félaginu og af honum fer virkilega góður orðstír. Hann hefur verið í forgrunni fyrir mikla uppbyggingu og fjölgun í vesturbæjarstarfi yngstu flokka félagsins. Samhliða því hefur hann verið aðstoðarþjálfari hjá eldri flokkum og nú í vetur annar af þjálfurum 5.flokks karla. Hann miðlar sinni þekkingu, reynslu og leiðtogahæfileikum til yngri iðkenda félagsins.

Myndir: Eyjólfur Garðarsson

Námskeið í fullorðinsfimleikum

Fimleikadeild Gróttu býður upp á 14 skipta námskeið í fullorðinsfimleikum sem hefst þriðjudaginn 3. mars og lýkur þriðjudaginn 28. apríl.

Ekki verður æfing 31. mars (páskar), 2. apríl (páskar) og 23. apríl (sumardagurinn fyrsti).

Kennt verður á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum frá kl. 20:00–21:15 í fimleikasal Gróttu. Ekki er gerð krafa um bakgrunn í fimleikum. Hægt er að velja um að æfa einu sinni eða tvisvar í viku.

Þjálfari námskeiðsins er Guðlaugur Jón Árnason. skráning fer fram á abler: https://www.abler.io/shop/grotta?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTQyODA=

Gróttumessa

Gróttumessa mun fara framm sunnudaginn 8. mars, kl. 11. Messan verður með léttu sniði, Gróttulagið verður sungið, barnakór Seltjarnarnes kirkju syngur tvö lög, krakkarnir í sunnudagaskólanum syngja tvö lög,  Gróttu fólk sér um ritningarlestur og hugleiðingu. Boðið verður upp á veitingar fyrir fólkið sem mætir.

Væri gaman að sjá sem flesta mæta í Gróttu treyjum eða peysum.💙💛

Strákarnir bikarmeistarar

Strákarnir í 6.flokki karla eldri mættu Víkingi í úrslitaleik Powerade bikarsins núna í hádeginu. Eftir jafnar fyrst mínútur leiksins voru það okkar drengir sem höfðu þriggja marka forskot í hálfleik, 9-6.

Í síðari hálfleik voru okkar strákar áfram flottir og sigldu frábærum 19-14 sigri í hús. Með þessum sigri urðu strákarnir bikarmeistarar í fyrsta skipti en þeir eru ríkjandi Íslandsmeistarar.

Liðsheild strákanna var frábær í leiknum og spennustig leikmanna rétt stillt hjá þjálfarateyminu.

36 drengir æfa í 6.flokki og tefla þeir fram 5 liðum í Íslandsmótinu. Þjálfarar flokksins eru Hannes Grimm, Bessi Teitsson, Gísli Örn Alfreðsson, Kristján Ólafur Gíslason og Oliver Ørtenblad Bergmann.

Við óskum strákunum og þjálfurum til hamingju með sigurinn. Framtíðin er björt !

Frábær árangur hjá fimleikakonum

Íþróttahátíð Seltjarnarness fór fram þriðjudaginn 2. febrúar í hátíðarsal Gróttu þar sem afreksfólk bæjarins kom saman til að fagna glæsilegum árangri sínum á árinu 2025 og taka við verðskulduðum viðurkenningum.

Hrefna Höskuldsdóttir Rafnar, Þuríður Katrín Kristinsdóttir og Sólveig Þóra Sölvadóttir hlutu allar viðurkenningu sem efnilegar íþróttakonur. Þessar ungu fimleikakonur hafa með elju, metnaði og jákvæðu viðmóti verið félagi sínu til mikils sóma. Þær hafa jafnframt haft afar góð áhrif á andrúmsloft og menningu deildarinnar og eru fyrirmyndir innan hennar.

Fimleikadeild Gróttu óskar þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.

Bikarmeistarar í 3. þrepi A-deild hlutu einnig viðurkenningu fyrir frábæran árangur á árinu. Bikarlið Gróttu í 3. þrepi A-deild tryggði sér 2025 bikarmeistaratitilinn með glæsilegri frammistöðu og frábærri heildarútkomu, hvorki meira né minna en 223,196 stigum.

Liðið skipuðu Mjöll Jónsdóttir, Sigurrós Ylfa Rúnarsdóttir, Þuríður Katrín Kristinsdóttir, Fanney Petrea L. Arnórsdóttir, Sigríður Lára Indriðadóttir og Sunna Mist Sheehan.

Það er jafnframt vert að nefna að Grótta var með yngsta liðið í keppninni. Fimleikadeild Gróttu óskar þeim innilega til hamingju með þennan stórkostlega árangur.

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

Grótta í bikarúrslitum

Um helgina fara fram bikarúrslit í öllum keppnisflokkum HSÍ. Við í Gróttu eigum eitt lið í úrslitum en það eru 6.flokkur karla eldri.

Allir úrslitaleikirnir fara fram við glæsilega umgjörð að Ásvöllum í Hafnarfirði. Leikur Gróttu fer fram á sunnudaginn kl. 12:30.

6.flokkur karla eldri
Grótta – Víkingur
Sunnudaginn 1.mars
kl. 12:30

Við hvetjum allt Gróttufólk til að fjölmenna á Ásvelli á sunnudaginn og hvetja okkar upprennandi leikmenn til dáða.

Áfram Grótta !

Ofurhetjumót Gróttu og Colgate haldið 13.–15. febrúar

Helgina 13.–15. febrúar fór fram hið árlega Ofurhetjumót Gróttu og Colgate þar sem yfir 220 efnilegar fimleika-ofurhetjur frá fimm félögum komu saman og sýndu listir sínar. Keppt var frá 6. þrepi og upp í frjálsar æfingar og var stemningin frábær alla helgina.

Það var sannarlega ánægjulegt að fylgjast með kraftinum, gleðinni og metnaðinum hjá keppendum. Ljóst er að framtíðin er björt í íslenskum fimleikum. 

Allir keppendur fengu þátttökuverðlaun frá Colgate að móti loknu og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.

Þá viljum við einnig þakka þjálfurum og dómurum fyrir vel unnin störf, ásamt öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg við undirbúning og framkvæmd mótsins, án ykkar væri svona viðburður ekki mögulegur.

Takk fyrir frábæra helgi, við hlökkum til næsta móts!

Myndir : Eyjólfur Garðarsson

Íþróttafólk Gróttu 2025

Íþróttafólk Gróttu 2025 fer fram þriðjudaginn 3. mars kl 19:30 í hátíðarsalnum. Þar verða valinn íþróttamaður og kona Gróttu, íþróttamaður og kona æskunnar og þjálfari ársins, ásamt því að sjálfboðaliðar ársins og landsliðsfólk hlýtur viðurkenningar. Einnig verða merkjaveitingar fyrir vinnu/keppni fyrir Gróttufólk.

Boðið verður uppá léttar veitingar fyrir þá sem mæta.💙💛

Björg, Sylvía og Díana í hæfileikamótun HSÍ

Um helgina fór fram hæfileikamótun HSÍ og voru þrjá stelpur í Gróttu valdar í verkefnið. Það voru þær Björg Guðmundsdóttir, Sylvía Guðrún Sölvadóttir og Díana Marín Rúnarsdóttir. Æfingar helgarinnar fór fram í Fjölnishöllinni í Grafarvogi undir stjórn Jóns Gunnlaugs Viggóssonar.

Við óskum stelpunum til hamingju með valið og óskum þeim góðs gengis í komandi verkefnum.