Fyrsti meistaraflokksleikur Gústafs og Kristjáns 💙

Þeir Gústaf Adolf Gústafsson og Kristján Tómas Björnsson léku sinn fyrsta mótsleik með meistaraflokki karla þann 29. janúar sl. þegar Grótta mætti Val í fyrstu umferð Lengjubikarsins. Gústaf og Kristján komu báðir inná í byrjun síðari hálfleiks. Þá var Kristján Tómas í byrjunarliði Gróttu í gær þegar Skagamenn komu í heimsókn og Gústaf kom inná í leiknum í síðari hálfleik. 

Þeir Gústaf og Kristján eru báðir á sextánda ári og eru gríðarlega efnilegir knattspyrnumenn sem verður spennandi að fylgjast með!  🤩👏🏽

Handboltaskóli Gróttu/KR í vetrarleyfinu

Vetrarleyfi og skipulagsdagar grunnskólanna eru á næsta leiti. Í tilefni af því bjóðum við upp á handboltaskóla fyrir alla krakka í 1. – 6.bekk eða þá krakka sem eru fædd 2014-2019. Skólinn fer fram í Hertz-höllinni.

Hver dagur kostar 3700 kr og fer skráningin fram í Abler. Beinn hlekkur á skráninguna er hérna: https://www.abler.io/shop/grotta/handbolti/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTMzODM=/

Þjálfarar á námskeiðinu eru þjálfarar yngri flokkanna og leikmenn meistaraflokks.

Ofurhetjumótið 2026

Nú styttist í skemmtilegasta mót ársins, Ofurhetjumótið! 

Ofurhetjumót Gróttu verður haldið dagana 13.–15. febrúar. Við erum ofur spennt og hlökkum til að sjá ykkur öll!

Komdu og prófaðu frítt!

Æfingatímar hjá Handboltanum og fótboltanum má finna hér á vefsíðu Gróttu.

Sund

Frítt að prufa æfing fyrir 1.-6. bekk

Þriðjudaginn 17.feb kl 14:30-15:10

Fimleikar

Frítt að prufa æfingar hjá eftirfarandi hópum.

5. Flokki (stúlkur 2017) mánudaginn 9. febrúar og miðvikudaginn 11. Febrúar kl. 14:40-16:10. 

4. flokki (stúlkur fæddar 2016 og 2017)  mánudag 9.febrúar og miðvikudag 11.febrúar frá kl. 16 – 18. 

Drengir fæddir (2015, 2016 og 2017. 2017)  fimmtudaginn 12. febrúar kl. 16:40-17:40

Sá langmarkahæsti kveður sviðið💙

Líkt og kom fram í Jólablaði Gróttu þá hefur Pétur Theodór Árnason ákveðið að leggja skóna á hilluna 30 ára gamall. Pétur er markahæsti leikmaður Gróttu frá upphafi og sá næst leikjahæsti, í það minnsta frá því að KSÍ byrjaði að halda utan um tölfræði. Hann hefur spilað 178 leiki fyrir Gróttu og skorað 79 mörk. Hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2011, þá 16 ára gamall, og spilaði þegar allt er talið nákvæmlega 200 leiki í deild og bikar fyrir Gróttu, Kríu og Breiðablik en

hann varð Íslandsmeistari með Blikum sumarið 2022.

Pétur spilaði seinna hluta sumarsins með Gróttu síðastliðið sumar þegar liðið kom sér upp í Lengjudeildina á ný: „Í það minnsta er ég mjög sáttur með að kveðja fótboltann með þessum hætti. Liðið mitt aftur komið á réttan stað og ég náði að spila í Gróttutreyjunni og fá strákinn minn í fangið beint eftir leik. Þetta hljómar kannski skringilega þar sem hann mun aldrei muna eftir þessu en mér þótti mjög vænt um þetta augnalik,“ segir Pétur sem hefur nú lagt skóna á hilluna, rúmum 14 árum eftir að hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Gróttu. 

Pétri verður sárt saknað innan sem utan vallar en við óskum honum góðs gengis í þeim verkefnum sem taka við. 

Takk Pétur! 💙

Myndir: Eyjólfur Garðarsson 📸

Gróttukonur í hóp hæfileikamótunar N1 og KSÍ

Gróttukonurnar Alexandra Bergmann Alexandersdóttir, Andrea Líf Ómarsdóttir og Sara Björt Helgadóttir hafa verið valdar í hóp Hæfileikamótunar N1 og KSÍ sem fer fram 30. janúar nk. Æfingin fer fram í Miðgarði undir stjórn Aldísar Ylfu Heimisdóttur, þjálfara í Hæfileikamótun. 

Þetta verður skemmtileg reynsla fyrir stelpurnar og eflaust munu fleiri Gróttustelpur gera sig gildandi í slíkum verkefnum á næstu misserum.

Vel gert stelpur og gangi ykkur vel! 💙

Tomas Bekkavik hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari.

Okkar eigin Tomas Bekkavik hefur verið ráðin landsliðsþjálfari á stökkáhöldum hjá drengjaliði Íslands! Evrópumótið í hópfimleikum 2026, sem fer fram í Espoo, Finnlandi dagana 14.-17. október.

Við óskum Tomasi innilega til hamingju með þetta verðskuldaða hlutverk og hlökkum til að fylgjast með honum og drengjaliðinu á þessu stóra og spennandi móti!💙💛

Lesa nánar: https://fimleikasamband.is/landslidsthjalfarar-em-2026/?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTAAYnJpZBExclN6N1lXeE1SUEhLTUJRc3NydGMGYXBwX2lkEDIyMjAzOTE3ODgyMDA4OTIAAR7N3xdIdMhFNnpXjcHNOWGfX7ZtCq5n_WDPTFbC-zUQ6BJmpHCT8l7Gc-PsYQ_aem__Wd3X0qpYY5J8Z_jm6t76A

Boltaskóli Gróttu heldur áfram

!!VORÖNN!! Nú verður einnig hægt að skrá börn sem eru fædd snemma árið 2023😁

Knattspyrnu og handknattleiksdeildir Gróttu halda áfram með Boltaskóla fyrir börn fædd 2022 á sunnudögum kl. 09:15.

Vorönn byrjar 4. janúar og skráning er hafin, líkt og seinast er notast við klippikortakerfi. https://www.abler.io/shop/grotta/fotbolti?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NDY0NDg=

Skemmtilegt námskeið þar sem að við leggjum áherslu á að foreldri/forráðamaður og barn njóti gæðastundar saman í tímanum þar sem unnið er með leik og hreyfingu með bolta og önnur áhöld.

Námskeiðið er sett upp þannig að einn forráðamaður mætir með barninu í tímann og er með barninu í leik og starfi.

Hlökkum til að sjá ykkur!
Hansína og Arndís María

Arndís Áslaug framlengir til 2028

Arndís Áslaug Grímsdóttir hefur framlengt leikmannasamninginn sinn við Handknattleiksdeild Gróttu út tímabilið 2028. Arndís er 18 ára gömul og leikur sem línumaður. Hún hefur verið í lykilhlutverki í 3.flokki kvenna undanfarin ár en Gróttuliðið hefur ekki tapað leik á þessu leiktímabili.

Í meistaraflokki hefur Arndís komið við sögu í 10 leikjum í Grill 66-deildinni og skoraði þeim 10 mörk. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Arndís leikið 51 leik með meistaraflokki.

Arndís er ekki bara góður sóknarlínumaður því hún er líka öflugur varnarmaður og getur leikið nokkrar stöður þar. Hún hefur æft með unglingalandsliðum Íslands undanfarin ár.

„Arndís er virkilega efnilegur leikmaður sem gaman verður að sjá taka næsta skref. Hún er öflug beggja megin vallarins og hefur sýnt það að hún er framtíðarleikmaður Gróttu“ sagði Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari Gróttuliðsins við undirritun samningsins.

Æfingagjöld Fimleikadeildar Gróttu vorönn 2026

Fimleikadeild Gróttu hefur birt upplýsingar um æfingagjöld fyrir vorönn 2026 og hefur gjaldskráin verið sett fram á nýjan hátt með það að markmiði að vera gagnsæ, skýr og í samræmi við það sem tíðkast hjá öðrum fimleikafélögum. Æfingagjöldin eru nú reiknuð eftir vikufjölda og fjölda klukkustunda sem iðkendur eru með í stundatöflu.



Æfingagjöld hjá Fimleikadeild Gróttu þurfa að standa undir umfangsmiklum rekstri deildarinnar, en starfseminni hefur sannarlega vaxið fiskur um hrygg.  Deildin telur í dag hátt í 700 iðkendur á breiðum aldri, eða frá 1 árs í krílafimi og upp í fullorðinsfimleika, og tæplega 70 þjálfara. Markmið deildarinnar er að tryggja faglega þjálfun, góða þjónustu og öruggt umhverfi, topp aðstöðu, öfluga starfsemi og rekstur sem stendur undir sér. 

Fagleg þjálfun 

Þjálfarar Gróttu mynda öflugt og fjölbreytt teymi sem býr yfir víðtækri reynslu og sérþekkingu í fimleikaþjálfun. Þá sækja þeir reglulega fræðslu til að styrkja færni sína.  Til að halda góðu þjálfarateymi og laða til okkar hæfa þjálfara er mikilvægt að deildin geti boðið upp á samkeppnishæf laun ásamt öruggum og stöðugum starfsaðstæður.   

Góð þjónusta og öryggi iðkenda í fyrirrúmi

Við leggjum okkur fram við að hver iðkandi fái góða athygli og leiðsögn þjálfara á æfingum. Fjöldi iðkenda í hóp er í mesta lagi 12-14 á hvern þjálfara auk aðstoðarþjálfara. Þá fá iðkendur góðan æfingatíma í sal, nægilegt pláss og þann fjölda æfingatíma sem þarf til að ná árangri í sinni íþrótt 

Hátt hlutfall þjálfara er einnig öryggismál fyrir iðkendur, en í fimleikasalnum hverju sinni eru margir hópar á fjölda áhalda að gera stór stökk og æfingar sem gæta þarf vel að.

Samkeppnishæf aðstaða

Fimleikadeildin býður upp á fullbúinn fimleikasal þar sem aðstaða og fjöldi áhalda styður við faglega þjálfun og skapar öruggt æfingaumhverfi. Salurinn er skipulagður með öryggi iðkenda í fyrirrúmi, áhöld og dýnur eru reglulega yfirfarin og endurnýjuð eftir þörfum. Salurinn er yfirleitt fullnýttur og ávallt mikið fjör. 

Rekstur deildarinnar 

Rekstur Fimleikadeildar Gróttu snýst um að styðja við blómlegt starf deildarinnar og tryggja gott samstarf við foreldra og forráðamenn. 

Fimleikadeildin leggur sig fram um að æfingagjöld endurspegli raunverulegan kostnað. Deildin er ekki rekin í hagnaðarskyni og reynt er eftir fremsta megni að enda árið réttu megin við núllið. Eins og önnur félög og atvinnustarfsemi hefur bent á, hefur launaskrið og verðbólga þyngt rekstrarumhverfi mikið undanfarin ár og hefur Fimleikadeildin ekki farið varhluta af því enda með yfir 70 starfsmenn. Starfsmaður er á skrifstofu sem gegnir mikilvægu hlutverki við að halda utan um starfsemina. Auk þess standa æfingagjöldin straum af nauðsynlegum innviðum, svo sem tækjabúnaði, hljóðkerfi, viðhaldi áhalda og tækja, tryggingum og fl.  

Þess má geta að fjöldi fólks leggur deildinni lið sem sjálfboðaliðar, bæði í stjórn og sértækum verkefnum og fyrir það erum við ótrúlega þakklát. Án sjálfboðaliða gæti íþróttastarf fyrir börn og unglinga á Íslandi ekki staðið undir sér og verið sú mikilvæga grunnstoð í lýðheilsu og forvörnum sem við sem samfélag treystum á. 

Við viljum þakka iðkendum og forráðamönnum fyrir frábært samstarf á árinu sem er að líða og fögnum þeim árangri sem iðkendur hafa náð. Við erum sprúðlandi spennt fyrir 2026 og hlökkum til að gera enn betur á komandi ári.