Herrakvöld Gróttu 2026

Herrakvöld Gróttu 2026

Það hefur verið stórt…en núna verður það stærra!!

Uppstillingin hefur varla verið sterkari. Jóhann Skúli Jónsson verður veislustjóri, Stefán Einar Stefánsson ræðumaður og Björn Bragi Arnarsson flytur uppistand.

Kótiletturnar gómsætu, happdrætti og allt þetta sem þið kannist við. Treyjuuppboð frá okkar bestu mönnum ásamt völdum málverkum.

!!ATH. NÝTT!!

Í ár verður boðið uppá að kaupa premium borð. Með premium borðunum mun fylgja vín, bjór og léttar veitingar til þess að byrja kvöldið með stæl. Einnig mun borðið vera betur staðsett með tilliti til sviðsins, ásamt öllu sem fylgir venjulegri borðapöntun.

Húsið opnar 18:30 og borðhald hefst 19:45.

Miðasala, bæði stakir miðar og borðapantanir, í gegnum TIX: https://tix.is/event/21487/herrakvold-grottu-2026

Verðskrá:

Stakur miði: 10.900 kr

10 manna borð: 85.000 kr

Premium 10 manna borð: 150.000 kr

Ekki láta þig og þína vanta. Kvöldið verður rosalegt!

Fjölskyldufjör í fimleikasal Gróttu 💙💛

Í dag var haldið skemmtilegt fjölskyldufjör í fimleikasal Gróttu þar sem um 130 börn mættu ásamt foreldrum sínum til að fagna Sumardeginum fyrsta með okkur.

Stemningin var frábær og nóg um að vera fyrir alla aldurshópa. Boðið var upp á andlitsmálningu, hægt var að lita myndir og næla sér í popp og kandífloss. Þá var einnig líf og fjör á Gróttumarkaðinum þar sem margt fallegt var til sölu.

Það var einstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir sáu sér fært að koma og deila þessum fallega degi með okkur.

Við þökkum kærlega fyrir komuna 💙💛

83% fjölgun iðkenda í barna- og unglingastarfi handboltans í Gróttu

Undanfarin sex ár hefur barna- og unglingaráð (BUR) handboltans í Gróttu lagt í markvissa vinnu við að efla og bæta starf sitt – og árangurinn er skýr. Fjöldi iðkenda í yngri flokkum (4–19 ára) hefur nær tvöfaldast, úr 219 árið 2020 í 400 árið 2026, aukning um 83% á sex árum. Þetta þýðir að 39% ungmenna (4-19 ára) á Seltjarnarnesi æfir handbolta. Þjálfarahópurinn telur 41, þar af er 40 þeirra uppalið Gróttufólk. Yfirþjálfarar eru tveir, báðir uppaldir innan félagsins.*

Handbolti hefur alltaf skipað stóran sess í lífi bæjarins. Við byggjum því á mjög góðum grunni og hefð innan bæjarfélagsins um handboltaiðkun. Í dag berum við einnig ábyrgð á handboltaiðkun barna- og unglinga í Vesturbænum. Þar höldum við úti starfi undir nafni KR fyrir iðkendur á aldrinum 6-9 ára en sameinumst undir fána Gróttu við 10 ára aldur.

Að baki vextinum standa skýr markmið og markvissar aðgerðir barna- og unglingaráðs:

  • Tryggja að starfið sé skipulagt og faglegt.
  • Hafa ánægða þjálfara, iðkendur og foreldra.
  • Fjölga iðkendum og gefa öllum jöfn tækifæri.
  • Fræða og efla þjálfara og iðkendur í leik og starfi.
  • Byggja starfið á Gróttufólki.
  • Bjóða upp á besta barna- og unglingastarf á landinu.

Okkar leiðarljós hefur alltaf verið að það eiga öll að geta æft handbolta í Gróttu, óháð getustigi eða félagslegri stöðu. Við viljum að öllum iðkendum og þjálfurum líði vel og fái tækifæri til að þroskast og ná framförum við hæfi. 

Með skýrri stefnu og aðgengilegu starfi höfum við gefið fleiri börnum tækifæri til að stunda handbolta og sinnum þannig hlutverki okkar sem öflug forvörn í uppeldi barna, um leið og við stuðlum að vexti félagsins.

Við hlökkum til að halda áfram að fjölga iðkendum í handboltanum og stuðla að frekari vexti deildarinnar.

Barna- og unglingaráð Gróttu í handbolta

*Tölur: Grótta, Abler og Hagstofa Íslands.

Leiðbeinendur á sumarnámskeiðum Gróttu

Grótta auglýsir eftir einstaklingum 18 ára og eldri til að starfa sem leiðbeinendur á sumarnámskeiðum félagsins sumarið 2026

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Umsækjendur skulu vera 18 ára og eldri (fædd 2008 og eldri).
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð fyrirmynd og heilbrigður lífsstíll.
  • Stundvísi og samviskusemi.
  • Gaman að vinna með börnum
  • Hreint sakavottorð.

Endilega sóttu um! https://alfred.is/en/starf/leidbeinendur-a-sumarnamskeidum-grottu-6

Íslandsmeistaramót – frábær árangur hjá Gróttu 💙💛

Um helgina fór fram Íslandsmeistaramót í áhaldafimleikum og Grótta átti þar fimm keppendur. 

Eldey Erla Hauksdóttir keppti í frjálsum æfingum. Sunneva Eyþórsdóttir, Sigurrós Ylfa Rúnarsdóttir og Elsa Finnsdóttir kepptu í 3. þrepi og Sigríður Lára Indriðadóttir í 2. þrepi.

Eldey Erla keppti á gólfi og slá og stóð sig frábærlega.

Sigríður Lára keppti í 2. þrepi og átti frábæran dag og hafnaði í 5. sæti í fjölþraut. Sunneva átti líka góðan keppnisdag og náði 3. sæti í fjölþraut í flokki 12 ára. Elsa og Sigurrós kepptu í flokki 11 ára og yngri og stigu báðar á pall. Elsa hafnaði í 2. sæti og Sigurrós stóð uppi sem Íslandsmeistari í sínum flokki. 

Við óskum iðkendum og þjálfurum innilega til hamingju með frábæran árangur!

Áfram Grótta 💙

✨ FJÖLSKYLDUFJÖR SUMARDAGINN FYRSTA! ✨

Fimleikadeild Gróttu býður ykkur velkomin á fjölskyldufjör sumardaginn fyrsta! 🥳

Frjáls leikur í salnum fyrir börn og foreldra 🤸‍♀️ Greitt er fyrir hvert barn og fullorðnir fylgja með. Gjaldið er 1500 kr. per barn. Hægt er að skrá sig á milli kl. 10-11 eða kl. 11-12.

Skráning fer fram í gegnum abler eða á staðnum. Þá verður ýmislegt annað skemmtilegt í boði:

• Andlitsmálning 🎨

• Litir og blöð ✏️

• Popp og candyfloss til sölu 🍿🍭

Komið og njótið yndislegrar stundar saman – fullt af gleði, leik og góðri stemningu! https://www.abler.io/shop/grotta/fimleikar?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTYzODY=

Íslandsmót í áhaldafimleikum

Grótta á fimm keppendur á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum sem fer fram hjá Ármanni um helgina.

Elsa Finnsdóttir Fenger, Sigurrós Ylfa Rúnarsdóttir og Sunneva Eyþórsdóttir keppa í 3. þrepi. Sigríður Lára Indriðadóttir keppir í 2. þrepi og Eldey Erla Hauksdóttir keppir í frjálsum æfingum.

Mótið er einn af hápunktum vetrarins í íslenskum áhaldafimleikum og spennan verður án efa mikil. Við óskum stelpunum okkar og öllum keppendum góðs gengis og hvetjum alla til að fylgjast með og styðja þær um helgina.

Áfram Grótta

Grótta og Sjúkraþjálfun Reykjavíkur í samstarfi

Við hjá Gróttu viljum minna á samstarfið við Sjúkraþjálfun Reykjavíkur sem er staðsett á Fiskislóð 1. Með þessu samstarfi er verið að tryggja forgang í sjúkraþjálfun fyrir iðkendur yngri flokka Gróttu.

Íþróttum geta fylgt meiðsli og við upphaf unglingsáranna geta þrálátir verkir, til dæmis í hnjám og hælum, látið á sér kræla. Oft getur hjálpað mikið að leita ráða hjá sjúkraþjálfara sem stundum ráðleggja meðferð, hvíld eða útbúa æfingaprógrömm sem hjálpa til.

Við höfum einfaldað ferlið með þessu samstarfi! Í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur starfar hæfileikaríkt og metnaðarfullt fagfólk.

Hvernig bóka ég tíma?

Sendið tölvupóst á: [email protected]

Í póstinum þarf að koma fram:

• Kennitala iðkanda og forráðamanns

• Símanúmer

Kostnaður:

✅ Frítt ef læknabeiðni liggur fyrir (SÍ greiðir að fullu).

✅ Ef ekki liggur fyrir beiðni er greitt 30% af verði tímans.

Kjör íþróttafólks Gróttu 2025

Kjör íþróttafólks Gróttu 2025 fór fram síðastliðinn 3.mars. Þar voru veitt verðlaun og viðurkenningar fyrir íþróttafólk, starfsfólk og sjálfboðaliða félagsins.

Frábær mæting var á viðburðinn þar sem Gróttufólk kom saman til að fagna og veita viðurkenningar fyrir framlag til félagsins. 

Þjálfari ársins er Vala Thoroddsen.

Íþróttakona Gróttu er Ída Margrét Stefánsdóttir.

Íþróttamaður Gróttu er Antoine Óskar Pantano.

Íþróttakona æskunnar er Kristín Fríða Scheving.

Íþróttamaður æskunnar er Björgvin Brimi Andrésson.

Íþróttafólk sem keppti í fyrsta sinn fyrir Íslands hönd árið 2025 

Hannes Pétur Hauksson, U20 ára landslið karla í handbolta. Æfingaleikur gegn A-landsliði  Grænlands

Soffía Helen Sölvadóttir, U15 landslið kvenna í handbolta. Æfingaleikir gegn Færeyjum

Sylvía Sigrún Eðvarðsdóttir, U15 landslið kvenna í handbolta. Æfingaleikir gegn Færeyjum

Kristján Tómas Björnsson, U16 landslið karla í fótbolta, Æfingamót í Finnlandi

Harpa Hlíf Bárðardóttir fékk gull heiðursmerki Gróttu

Harpa frímannsdóttir fékk silfur heiðursmerki Gróttu.

Sjálfboðaliðar ársins hjá handknattleiksdeild eru Bernódus Sveinsson og Kristín Björg Svövudóttir.

Sjálfboðaliði ársins hjá knattspyrnudeild er Sigmundur Einar Másson.

Sjálfboðaliði ársins hjá fimleikadeild er Anna Kristín Kristinsdóttir.

Myndir eftir Eyjólfur Garðarsson