Skip to content

Matthías Guðmundsson ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í knattsyrnu og Melkorka framlengir

Matthías Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna knattspyrnudeildar Gróttu. Matthías gerir þriggja ára samning við deildina en hann hefur síðustu tvö ár verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna Vals. Matthías á að baki glæstan fótboltaferil og 196 leiki í efstu deild á Íslandi en hann lék lengst af með Val.

Matthías hlakkar til að að hefja störf hjá félaginu: „Ég er mjög spenntur fyrir því að fá tækifæri til að þjálfa svona flottan klúbb eins og Gróttu. Hópurinn er flottur með góðan kjarna af leikmönnum sem hafa spilað lengi saman og efnilegar stelpur að koma upp. Einnig er stefna félagsins mjög spennandi og umgjörðin alveg til fyrirmyndar. Ég hlakka mikið til að hitta hópinn og komast út á æfingasvæðið.“

Við sama tilefni skrifaði Melkorka Katrín Flygenring Pétursdóttir undir tveggja ára samning sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna. Melkorka hefur síðasta árið verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu ásamt því að vera aðalþjálfari 5. flokks kvenna og heldur hún því góða starfi áfram hjá deildinni. Melkorka er á lokaári meistaranáms í sjúkraþjálfun og hefur lokið UEFA B þjálfararéttindum.

Melkorka er spennt fyrir framhaldinu: „Ég er gríðarlega ánægð að hafa skrifað undir nýjan samning og hlakka til að vinna áfram í því frábæra umhverfi sem Grótta hefur upp á að bjóða. Ég hlakka mikið til að vinna áfram með leikmönnum og fólkinu í kringum liðið. Einnig er frábært að hafa fengið Matta inn í þetta og ég hlakka til samstarfsins. Það eru spennandi tímar framundan á Nesinu!“

Knattspyrnudeild Gróttu fagnar því að hafa samið við Matthías og Melkorku og hlakkar til komandi samstarfs við þau bæði. Harpa Frímannsdóttir: „Við í stjórn knattspyrnudeildar erum gríðarlega ánægð að hafa fengið Matthías sem þjálfara liðsins, hann mun koma með ferskan blæ og mikla reynslu inn í starfið. Einnig fögnum við endurráðningu Melkorku aðstoðarþjálfara sem þekkir liðið vel og ég tel víst að þau munu ná vel saman og ná því besta fram.“

Myndir: Eyjólfur Garðarsson 📸

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print

Helstu upplýsingar

Aðalsími Gróttu 561-1133
Skrifstofa Gróttu opin virka daga
frá kl. 13:00 – 16:00
grotta@grotta.is

Fréttaflokkar