Íþróttafélagið Grótta er í átaki að leita uppi ljósmyndir úr starfi Gróttu í gegnum tíðina. Hrafnhildur Thoroddsen sem kemur til okkar þrisvar í viku og hefur skannað fjöldann allar af myndum sem hafa safnast saman síðastliðin ár hjá okkur á skrifstofu Gróttu.
Við byrjuðum fyrir tæpu ári með átakið á Facebook síðu Gróttu og höfum við fengið fjöldan allan af ljósmyndum. Við setjum inn gamlar Gróttumyndir á Facebook síðu reglulega. Sjá hér.
Við viljum líka taka við stafrænum myndum sem við getum geymt á skýinu okkar.
Nánar upplýsingar gullijons@grotta.is