Skip to content

Teygjuþjálfun iðkenda handknattleiksdeildar

Elís hefur verið sjúkraþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta í fjöldamörg ár

Nýlega kom dr. Elís Þór Rafnsson, Sjúkraþjálfari PhD, sérfræðingur í íþróttasjúkraþjálfun og sjúkraþjálfari handboltalandsliðs karla til margra ára og hélt fyrirlestur fyrir Gróttukrakka frá 4. flokki í handboltanum. Hann fræddi þau um og sýndi mikilvægar teygjur sem koma þeim að gagni sem tilvonandi afreksfólk, bæði til þess að koma í veg fyrir meiðsl og einnig til að jafna sig eftir ákveðin meiðsl. Þessi fyrirlestur var að frumkvæði Aðalstjórnar og Elís sjálfs, sem er sammála okkur að í Gróttu sé mikilvægt að impra á þessum atriðum til að hindra langvarandi meiðsl barnana og auka líkur á því að þau blómstri í íþróttinni og iðki hana sem lengst.  Elís gaf þjálfurum yngri flokkana góð ráð varðandi teygjurútínu sem hann mælir með því að börnin tileinki sér á hverri æfingu og vonast er til að þessi grunnur nýtist okkar fólki vel í framtíðinni. Vel var tekið í þessa fræðslu og mögulegt er að Elís komi aftur og tali við enn fleiri iðkendur, og gefi frekari ráð. Einnig stefnir Aðalstjórn Gróttu á það að fá sambærilega fræðslu frá sjúkraþjálfara fyrir fótboltann og fimleikana fljótlega.

Hægt er að deila fréttinni, senda með tölvupósti og/eða prenta út hér fyrir neðan.

Facebook
Twitter
Email
Print

Helstu upplýsingar

Aðalsími Gróttu 561-1133
Skrifstofa Gróttu opin virka daga
frá kl. 13:00 – 16:00
grotta@grotta.is

Fréttaflokkar