Þjálfarar óskast í Gróttu

Fimleikadeild og handknattleiksdeild Gróttu leita eftir þjálfurum fyrir vorönn sem að nú fer að hefjast.

Hægt er að sækja um á alfred.is fyrir fimleikadeildina, sjá hér-https://alfred.is/starf/fimleikathjalfarar-oskast-i-grottu, eða senda póst á [email protected]. Varðandi þjálfun í handknattleiksdeildinni er hægt að senda á [email protected], yfirþjálfara, upp á ítarlegri upplýsingar eða til að senda inn umsókn.

Við viljum hvetja alla þá aðila sem að hafa áhuga á því að þjálfa fyrir hönd Gróttu að sækja um störfin sem fyrst.

Áfram Grótta

Jólakveðja Gróttu

Íþróttafélag Gróttu óskar öllu Gróttufólk nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Þökkum kærlega samfylgdina á líðandi ári og hlökkum mikið til komandi Gróttustunda árið 2024.

Jólatilboð á Gróttu handklæðum

Gróttu handklæði í jólapakkann

Grótta hefur ákveðið að selja hin geysivinsælu og fallegu Gróttu handklæði á sannkölluðu jólatilboði.

Handklæðin kosta núna 3500 kr og eru til sölu hérna í húsinu til klukkan 15.00- en eftir þann tíma að þá er velkomið að hringja í Hörpu, stjórnarmann knattspyrnudeildarinnar, í síma 8960118 til að nálgast handlæðin.

Frábær gjöf í jólapakkann þetta árið- Áfram Grótta.

Æfingar um jól og opnunartími Íþróttamannvirkja

Opnunartími og æfingar um hátíðarnar

Knattspyrnu- og handknattleiksdeild Gróttu fara í jólafrí frá og með deginum í dag, þann 20. desember og munu æfingar hefjast aftur þann 4.janúar á nýju ári. Þjálfarar eiga nú þegar að hafa fellt niður allar æfingar í Sportabler hjá yngri flokkum félagsins.

Fimleikadeild Gróttu mun æfa eins og venjulega fyrir utan það að vera í frí þessa hefðbundnu rauðu daga um hátíðarnar.

Vallarhúsið mun vera lokað á þeim tíma sem knattspyrnudeildin er í jólafríi en Íþróttahúsið verður lokað 23. desember og opnar aftur miðvikudaginn 27.desember. Húsið verður síðan lokað 30. desember til og með 1. janúar.

Jólakveðja

Íþróttafélagið Grótta

Fimleikafjör í jólafríinu

Fimleikadeild Gróttu ætla að bjóða upp á Fimleikafjör í jólafríinu 21. desember, 22. desember, 27.desember,28.desember og 29.desember. Fimleikafjörið er fyrir krakka á aldrinum 6 – 10 ára (2017-2013).

Halda áfram að lesa

Skattaafsláttur þegar þú styrkir Gróttu

Með því að styrkja starf Gróttu með fjárframlögum þá getur þú fengið skattaafslátt. Lágmarksupphæð styrks til að fá lækkun á tekjuskattsstofni er 10.000 krónur, en hámark 350.000 krónur – eða samtals 700.000 krónur hjá hjónum.

Á vef ríkisskattstjóra – skatturinn.is – má finna upplýsingar um skattafrádrátt vegna gjafa/framlaga til almannaheillafélaga. Ríkisskattstjóri birtir þar lista yfir viðurkennda móttakendur, og þar á meðal er Íþróttafélagið Grótta.

Fólk sem ákveður að styrkja félagið getur komið þeim skilaboðum áleiðis á skrifstofu Gróttu á netfangið [email protected]. Síðan er hægt að millifæra upphæð að eigin vali eða óska eftir því að fá reikning í heimabankann. Fjármálastjóri Gróttu sér síðan um að upplýsa Skattinn um styrkina og síðan er það fært inn í skattframtal viðkomandi í framhaldi. Frádráttur frá tekjuskattsstofni er áritaður fyrirfram inn á framtalið, í reit 155 í klafla 2.6. á tekjusíðu framtals. Því er það mjög mikilvægt að láta skrifstofu félagsins vita til að allt gangi snuðrulaust fyrir sig í ferlinu.

Lágmarksupphæð til að nýta þennan frádrátt er 10.000 krónur, en að hámarki getur einstaklingur fengið lækkun á tekjuskattsstofni upp á 350.000 krónur, og hjón upp á 700.000 krónur. Ofanritað á við um einstaklinga, en rekstraraðilar geta einnig styrkt félagið og nýtt sér skattafrádrátt, sem getur numið 1,5% af rekstrartekjum á því ári sem gjöf er afhent eða framlag er veitt.

Þegar fólk ákveður að styrkja Gróttu er hægt að velja um að millfæra beint inn á reikning félagsins – 0537-26-201234, kt. 700371-0779 – eða fá reikning í heimabanka.

Grótta þakkar öllum styrktaraðilinum innilega veittan stuðning

Áfram Grótta

Lokað verður á skrifstofu Gróttu 23.-24. nóvember

Skrifstofa Gróttu mun því miður vera lokuð fimmtudaginn 23. nóvember sem og föstudaginn 24. nóvember.

Hægt er að senda inn erindi á [email protected] á meðan þessum tíma stendur og öllum þeim erindum verður svarað eftir helgi.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem að þetta kann að valda.

Fyrir hönd skrifstofu Gróttu

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir