Það er mikið líf á Vivaldivellinum þegar blaðamann Nesfrétta ber að garði á fallegu síðdegi í maí. Örugglega um 60 börn og unglingar að æfa á iðagrænu gervigrasinu. Við höfum mælt okkur mót við þjálfara meistaraflokka Gróttu í knattspyrnu, þá Óskar Hrafn Þorvaldsson og Halldór Árnason sem þjálfa karlaliðið og Magnús Örn Helgason og Pétur Rögnvaldsson sem þjálfa kvennaliðið.
Halda áfram að lesaSex stiga helgi hjá meistaraflokkunum
Meistaraflokkar karla og kvenna spiluðu bæði um helgina og nældu sér í þrjú stig hvort.
Halda áfram að lesaArnar Daði tekur við Gróttu og Daði Laxdal framlengir!
Arnar Daði Arnarsson var í dag ráðinn þjálfari meistaraflokks karla í handbolta hjá félaginu til næstu þriggja ára. Einnig var framlengdur samningur við Daða Laxdal sem er Gróttu-fólki vel kunnugur.
Halda áfram að lesaMeistaraflokkur karla áfram í 32-úrslit Mjólkurbikarsins
Meistaraflokkur karla sigraði KFR 10-0 í annarri umferð Mjólkurbikarsins fyrr í dag ?? Pétur Theódór hélt uppteknum hætti og skoraði fjögur mörk í leiknum, Óliver Dagur skoraði tvennu og Axel Sigurðsson, Kristófer Orri, Björn Axel og Grímur Ingi skoruðu allir eitt mark. Strákarnir eru því komnir áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins.
Grótta mætir Fylki 1. maí kl. 14:00 en leikurinn fer fram í Árbæ. Áfram Grótta!
Lárus til Gróttu
Markmaðurinn Lárus Gunnarsson hefur skrifað undir 2ja ára samning við handknattleiksdeild Gróttu.
Halda áfram að lesaMeistaraflokkur áfram í aðra umferð Mjólkurbikarsins eftir 8-2 sigur á Álftanesi
Meistaraflokkur karla hóf fótboltasumarið skemmtilega á Vivaldivellinum fyrr í kvöld með 8-2 sigri á Álftanesi í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins.
Halda áfram að lesaMeistaraflokkur karla í æfingaferð á Spáni
Meistaraflokkur karla hélt til Jerez á Spáni í æfingaferð þann 28. mars s.l. og dvaldi liðið þar í viku ásamt þjálfurum, sjúkraþjálfara og styrktarþjálfara.
Halda áfram að lesaSvekkjandi tap gegn Akureyri
Gróttu-strákar héldu um helgina norður yfir heiðar til að mæta heimamönnum í Akureyri. Ljóst var fyrir leik að gríðarlega mikilvæg stig voru í boði fyrir bæði lið sem sátu fyrir leik jöfn á botninum með 8 stig.
Halda áfram að lesaMikilvægur sigur á KA
Gróttu-strákar unnu á sunnudag 4 marka sigur á KA á heimavelli, 29-25. Sigurinn var langþráður en Gróttu-liðið ekki unnið síðan í 7.umferð.
Halda áfram að lesaMfl.kk sigurvegarar B-deildar Fótbolta.net mótsins!
Meistaraflokkur karla eru sigurvegarar B-deildar Fótbolta. net mótsins! Strákarnir hnepptu titilinn eftir 2-0 sigur á Njarðvík fyrr í kvöld.
Halda áfram að lesa









