14 leikmenn Gróttu boðaðir á landsliðsæfingar á dögunum

Níu drengir voru boðaðir á landsliðsæfingar hjá fjórum landsliðum og fimm stúlkur hjá tveimur landsliðum. Ólafur Brim Stefánsson leikmaður meistaraflokks karla var valinn í æfingahóp hjá U-21 landsliðshópnum en þær æfingar féllu niður sökum þess að verkefni U-21 árs landsliðsins sem framundan var í sumar hefur verið aflýst sökum heimsfaraldurs. Ari Pétur Eiríksson leikmaður 3.flokks og meistaraflokks æfði með U-19 ára landsliðinu. Þrír leikmenn æfðu með U-17 ára liðinu, þeir Birgir Örn Arnarsson, Gabríel Örtenblad Bergmann og Hilmir Örn Nielsen en tveir síðar nefndu eru leikmenn í 4.flokki. Alex Kári Þórhallsson, Antoine Óskar Pantano, Hannes Pétur Hauksson og Hrafn Ingi Jóhannson æfðu með U-15 ára landsliðinu allir eru þeir á yngri ári í 4.flokki.

Um komandi helgi munu þær, Hrafnhildur Hekla Grímsdóttir, Katrín Helga Sigurbergsdóttir og Patricia Dúa Thompson æfa með U-21 landsliðinu og á meðan munu þær Katrín Anna Ásmundsdóttir og Joanna Marianova Siarova æfa með U-17 ára landsliðinu. Allar eru þær í meistaraflokki Gróttu auk þess að leika með yngri flokkum félagsins.

Fimleikafjör í dymbilvikunni – FELLUR NIÐUR

ATHUGIÐ – Námskeið heftur verið fellt niður vegna sóttvarnaraðgerða. Vinsamlegast hafið samband við Ólöfu framkvæmdastjóra fimleikadeildar Gróttu varðandi endurgreiðslu á þátttökugjaldi. Tölvupóstfang [email protected] og sími 561-1137.

Fimleikadeild Gróttu ætlar að bjóða upp á Fimleikafjör dagana 29., 30. og 31. mars fyrir krakka á aldrinum 7 – 10 ára (2011-2014).

Fimleikasalurinn er opinn og farið verður í fimleikaæfingar, leiki og frjálsan leik. Hægt verður að lita og perla ef fimleikaorkan klárast.

Fjörið er frá kl. 09:00 – 12:00. Krakkarnir þurfa að taka með sér hollt og gott nesti.

Hver dagur kostar 2700 kr. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum https://www.sportabler.com/shop/grotta.

ATH: Það er takmarkaður fjöldi þátttakenda.