Vegna fjölgunar iðkenda leitar Handknattleiksdeild Gróttu eftir þjálfurum á yngri flokka félagsins. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Andra Sigfússon yfirþjálfara á netfangið [email protected].
Æfingar að hefjast í 9.flokki
Skráning fyrir vorönnina í 9.flokki er hafin í Abler. Æfingarnar eru fyrir krakka á leikskólaaldri og eru á laugardögum kl. 09:15-10:00. Þjálfari 9.flokks er Eva Björk Hlöðversdóttir ásamt aðstoðarþjálfurum.
Fyrsta æfing er 4.janúar og sú síðasta 26.apríl.
Beinn hlekkur á skráninguna er hérna: https://www.abler.io/…/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MzE1ODI=
Frekari upplýsingar gefur Andri Sigfússon yfirþjálfari á netfanginu [email protected]
Handboltaskóli í vetrarleyfinu
Boðið er upp á handboltaskóla í vetrarleyfinu næstu daga. Námskeiðsdagarnir eru á fimmtudaginn, föstudaginn og mánudaginn. Æfingarnar fara fram kl. 09:00-12:00 og eru krakkarnir beðnir um að koma með nesti.
Þjálfarar námskeiðsins eru þjálfarar yngri flokkanna og leikmenn meistaraflokka félagsins.
Skráningin fer fram í í gegnum Abler: https://www.abler.io/…/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MzQ0OTM=
Fjör á 9.flokks æfingum
Tæplega 15 krakkar mæta að staðaldri á æfingar 9.flokks á laugardögum í Íþróttahúsi Gróttu. Um er að ræða krakka fædd 2019 og 2020. Eva Björk Hlöðversdóttir og aðstoðarfólk hafa veg og vanda að skipulagningu og æfingum krakkanna en Eva Björk er margreynd í þjálfun hjá félaginu.
Innihald æfinganna eru leikir með og án bolta auk fjölbreyttra handboltaæfinga sem reyna á samhæfingu, jafnvægi, styrk og hittni. Segja má að mikil einbeiting og mikið stuð sé hjá þessum flotta hópi á laugardögum. Æfingarnar hefjast kl. 09:15.
Skráning í flokkinn fer fram í Sportabler: https://www.sportabler.com/shop/grotta/handbolti
Frekar upplýsingar um handboltastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu Gróttu eða hjá Andra Sigfússyni yfirþjálfara, [email protected]

Góð stemning á Kynningarkvöldi
Mikill fjöldi og góð stemning var á Kynningarkvöldi Gróttu sem fram fór í kvöld í Hátíðarsal Gróttu. Þar hlýddu gestir á þjálfara meistaraflokkanna, þá Róbert Gunnarsson og Sigurjón Friðbjörn Björnsson fara yfir leikmannahópana, hvernig undirbúningurinn hefur verið og markmið fyrir veturinn.
Ólafur Finnbogason formaður Handknattleiksdeildar Gróttu ræddu hin ýmsu mál og kynnti breytt úrval árskorta sem eru komin í sölu á Stubbur appinu. Nýr og glæsilegur keppnisbúningur var frumsýndur og var Einar Örn Jónsson fjölmiðlamaður með létta tölu um Gróttu.
Kvöldið heppnaðist frábærlega og var góð stemning á meðal stuðningsfólks. Fyrstu eikir meistaraflokkanna okkar eru á laugardaginn þegar fyrsta Gróttutvenna tímabilsins fer fram.
Grótta – ÍBV kl. 14:00 / Mfl. kvenna
Grótta – KA kl. 16:15 / Mfl. karla
Fjölmennum og styðjum Gróttu til sigurs !



Æfingar að hefjast
Æfingar allra flokka hefjast fimmtudaginn 22.ágúst samkvæmt æfingatöflu vetrarins. Við bjóðum öllum krökkum og unglingum velkomna á æfingar. Það kostar ekkert að prófa. Þjálfarar deildarinnar taka vel á móti krökkunum.
Allar æfingarnar eru komnar í Sportabler.
Upplýsingar um þjálfara má finna á heimasíðu Gróttu, https://grotta.is/handknattleiksdeild/thjalfarar/
Skráning í handboltastarfið er í fullum gangi en beinn hlekkur er hér: https://www.abler.io/shop/grotta/handbolti
Ef það eru einhverjar spurningar um starfið, þá hafið endilega samband við Andra Sigfússon yfirþjálfara á [email protected]
Sjáumst í handbolta í vetur !
Handboltaæfingar 9.flokks
Handknattleiksdeild Gróttu er með æfingar fyrir krakka á leikskólaaldri fædda 2019 og 2020. Æfingarnar eru á laugardögum kl. 09:15-10:00 og fara fram í litla salnum í íþróttahúsinu. Þjálfari er Eva Björk Hlöðversdóttir.
Á æfingunum gefst krökkum á leikskólaaldri að kynnast handbolta með reglubundnum æfingum einu sinni í viku. Lögð verður áhersla á skemmtilega leiki með og án bolta og grunnatriði handbolta kennd með fjölbreyttri hreyfingu. Fyrsta æfing verður 7.september. Við hvetjum alla til prófa. Frítt verður að prófa fyrstu æfingar.
Skráning fer fram í Sportabler, https://www.abler.io/shop/grotta/handbolti og er verðið fyrir haustönnina 25.900 kr. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á netfangið [email protected].
Grótta auglýsir eftir þjálfurum
Handknattleiksdeild Gróttu auglýsir eftir þjálfurum til starfa hjá yngri flokkum félagsins. Nánari upplýsingar og umsóknir sendast á Andra Sigfússon yfirþjálfara á netfangið [email protected]
Handboltaskóli, afreksskóli og fókusþjálfun
Núna á næstu dögum hefst sumarstarf handboltans. Það verður ýmislegt í boði fyrir verðandi grunnskólaaldur. Öll námskeið fara fram í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi og eru viku í senn.
Handboltaskóli fyrir krakka f. 2013-2018
29. júlí – 21.ágúst
kl. 09:00-12:00
Skólastjóri: Patrekur Pétursson Sanko
Þjálfarar: Þjálfarar handknattleiksdeldar auk gestaþjálfara
Hægt að kaupa gæslu frá kl. 08:00-09:00 og frá 12:00-13:00
______________________________________________
Afreksskóli fyrir krakka og unglinga f. 2009-2012
6. ágúst – 21.ágúst
kl. 12:30-14:00
Skólastjóri: Patrekur Pétursson Sanko
Þjálfarar: Þjálfarar handknattleiksdeildar auk gestaþjálfara
______________________________________________
Fókusþjálfun fyrir krakka og unglinga f. 2008-2012
29. júlí – 1.ágúst
kl. 12:00-13:00
Umsjón og þjálfun: Tinna Jökulsdóttir
______________________________________________
Skráning í handbolta- og afreksskólann fer fram í gegnum Sportabler. Beinn hlekkur er hér: https://www.abler.io/shop/grotta/handbolti. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um skólana hjá Andri Sigfússyni yfirþjálfara á [email protected].
Skráning í Fókusþjálfun fer fram í gegnum Tinnu Jökulsdóttur, [email protected]. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um Fókusþjálfunina í meðfylgjandi auglýsingu eða á https://www.instagram.com/fokusthjalfun



Gróttunámskeið í Fókusþjálfun
Grótta býður iðkendum sínum að taka þátt í spennandi námskeiði á vegum Fókusþjálfunar. Skemmtilegt námskeið þar sem farið er yfir liðkun, jafnvægi og snerpuæfingar. Einnig eru gerðar skemmtilegar boltaæfingar sem reyna á samhæfingu, athygli og víðsýni.
Námskeiðið verður í fjóra daga, mánudaginn 29.júlí til fimmtudagsins 1.ágúst. Námskeiðið fer fram í Hertz-höllinni.
Þjálfari námskeiðsins er Tinna Jökulsdóttir, eigandi Fókusþjálfunar, sjúkraþjálfari og fyrrum handboltakona. Hún er sjúkraþjálfari meistaraflokks kvenna í Stjörnunni og A-landsliðs kvenna í handbolta. Skráning fer fram á [email protected]
Frekari upplýsingar um Fókusþjálfun má nálgast á instagram-síðunni https://www.instagram.com/fokusthjalfun








