Tinna Brá, markmaður á yngra ári í 3. flokki, var valin í fyrri æfingahóp U-15 ára landsliðsins sem æfði 12.-13. október undir stjórn Þorlákar Árnasonar. Rakel Lóa, leikmaður á yngra ári í 3. flokki, var valin nú á dögunum í síðari æfingahópinn, sem æfði dagana 16.-17. nóvember.
Halda áfram að lesaYngri landslið kvenna – Grótta á 5 fulltrúa!
Þjálfarar U-17 ára og U-19 ára landsliðs kvenna völdu á dögunum æfingarhópa sem koma saman dagana 22-25 nóvember n.k.
Halda áfram að lesaFimm drengir úr 3. flokki á U16 úrtaksæfingum
Þeir Hannes Ísberg, Orri Steinn, Kjartan Kári, Krummi Kaldal og Grímur Ingi úr 3. flokki karla tóku þátt í U16 úrtaksæfingum KSÍ um helgina.
Þetta er glæsilegur árangur, en gaman er að segja frá því að Grótta er með þriðju flestu leikmennina í úrtakinu.
Aðeins Breiðablik og Stjarnan eru með fleiri leikmenn en Grótta í þessu úrtaki.
Á myndinni að ofan vantar Hannes, en hann meiddist í gær.
Gróttu fólk á ferð og flugi – 2.hluti
Fréttastofa handknattleiksdeildar fór á dögunum á flakk þar sem ferðinni var heitið til hinna ýmsu borga og bæja víðsvegar um Evrópu þar sem við tókum hús á uppöldu Gróttu-fólki sem er að lifa draum atvinnumannsins í handbolta.
Halda áfram að lesaMargrét Rán á úrtaksæfingar U16 kvenna
Margrét Rán Rúnarsdóttir í 3. flokki var valin af Jörundi Áka Sveinssyni, landsliðsþjálfara U16 kvenna, í hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum helgina 2.-4. nóvember. Æfingarnar fara fram í Kórnum, Akraneshöllinni og Egilshöll.
Halda áfram að lesaFimm leikmenn úr 3. flokki karla á U16 úrtaksæfingum
Fimm leikmenn úr 3. flokki karla í Gróttu hafa verið valdir af landsliðsþjálfara U16 til að taka þátt í úrtaksæfingum KSÍ 26.-28. október. Það eru þeir Hannes Ísberg Gunnarsson, Krummi Kaldal Jóhannsson, Kjartan Kári Halldórsson, Grímur Ingi Jakobsson og Orri Steinn Óskarsson!
Halda áfram að lesaÞrír Gróttu-menn í U21 árs landsliðinu
Á dögunum valdi Einar Andri Einarsson nýráðinn þjálfari U21 árs landsliðs karla í handbolta 20 manna hóp fyrir 2 æfingarleiki við Frakkland í lok október. Leikirnir fara fram föstudaginn 26.október kl 20:00 og laugardaginn 27.október kl 16:00. Báðir leikirnir fara fram í Schenker-höllinni í Hafnarfirði.
Þrír leikmenn Gróttu voru valdir í hópinn en það eru vinstri hornamaðurinn Alexander Jón Másson og línutröllin Hannes Grimm og Sveinn José Riviera.
Við óskum þeim til hamingju með valið og góðs gengis í leikjunum tveimur.
Brynjar Jökull til liðs við Gróttu
Línumaðurinn stóri og stæðilegi Brynjar Jökull Guðmundsson hefur gengið til liðs við Gróttu.
Halda áfram að lesaGunnar Hrafn Pálsson skrifar undir samning við Gróttu
Hinn ungi og efnilegi Gunnar Hrafn Pálsson skrifaði á dögunum undir nýjan samning við félagið.
Halda áfram að lesaMagnús Øder Einarsson til liðs við Gróttu
Magnús Öder Einarsson hefur skrifað undir 2ja ára samning við félagið.
Halda áfram að lesa