Rúmlega 60 Gróttustelpur kepptu á Símamótinu helgina 12.-14. júlí, stærsta knattspyrnumóti landsins. 5. flokkur kvenna tefldi fram 3 liðum sem samanstóð af 27 stelpum, 6. flokkur kvenna var einnig með 3 lið en 17 stelpur og 7. flokkur kvenna var með 4 lið og 20 stelpur innanborðs.
Halda áfram að lesaGrímur Ingi, Kjartan Kári og Orri Steinn gerðu það gott á Norðurlandamótinu í Danmörku
Grímur Ingi, Kjartan Kári og Orri Steinn hafa verið að keppa á Norðurlandamótinu í Danmörku með U17 ára landsliðinu síðastliðna viku.
Halda áfram að lesaGrímur, Kjartan og Orri á leið á Norðurlandamótið með U17
Gróttumennirnir Grímur Ingi, Kjartan Kári og Orri Steinn eru í hóp U17 sem tekur þátt í Norðurlandamótinu í Danmörku 3.-10. ágúst
Halda áfram að lesaBirgir Tjörvi nýr formaður: „Það gerist ekkert af sjálfu sér“
Fréttamaður Gróttusport arkar í sumarblíðunni gegnum miðbæ Reykjavíkur og hefur mælt sér mót við formann knattspyrnudeildar, Birgi Tjörva Pétursson, sem tók við í vor af Sölva Snæ Magnússyni sem hafði gegnt formennsku í tvö ár.
Halda áfram að lesa7. flokkur karla á Norðurálsmótinu
35 drengir frá 7. flokki Gróttu héldu á Norðurálsmótið á Akranesi föstudaginn 21. júní. Spilað var í þrjá daga og gistu strákarnir á Akranesi yfir helgina.
Halda áfram að lesa6. flokkur karla á Orkumótinu í Eyjum
Eldra ár 6. flokks karla tók þátt í Orkumótinu í byrjun júlí. 19 hressir drengir í tveimur liðum ásamt þjálfurum og fjölskyldum héldu til Vestmannaeyja miðvikudaginn 3. júlí.
Halda áfram að lesa6. flokkur kvenna á Landsbankamóti Tindastóls
6. flokkur kvenna hélt til Sauðárkróks til að keppa á Landsbankamóti Tindastóls s.l. helgi. 16 stelpur skelltu sér á Krókinn en spilað var bæði laugardag og sunnudag.
Halda áfram að lesaGrímur Ingi og Kjartan Kári á úrtaksæfingum með U16 og Orri Steinn með U15
Orri Steinn Óskarsson var valinn á úrtaksæfingar fyrir U15 karla en æfingarnar eru dagana 24.-28. júní á Akranesi. Grímur Ingi og Kjartan Kári voru síðan valdnir á úrtaksæfingar með U16 karla, en þær æfingar fara fram 4.-6. júlí undir stjórn Davíðs Orra Jónassonar á Laugardalsvelli.
Halda áfram að lesaTinna Brá á leið til Víetnam með U15 ára landsliðinu
Gróttukonan Tinna Brá Magnúsdóttir er í hóp U15 kvenna sem tekur þátt í WU15 Development Tournament í Hanoi, Víetnam, dagana 29. ágúst-7. september. Til hamingju Tinna Brá!
Halda áfram að lesa7. flokkur kvenna á Greifamótinu á Akureyri
Stelpurnar í 7. flokki kvenna skelltu sér á Greifamótið á Akureyri um helgina! 4 lið fóru frá Gróttu, sem samanstóðu af 21 stelpu.
Halda áfram að lesa