Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U18 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í æfingum og leikjum við Svíþjóð. Hópurinn mun hittast til æfinga helgina 25-26.nóvember og þriðjudaginn 28.nóvember 2023. Gróttukonan Arnfríður Auður Arnarsdóttir, betur þekkt sem Aufí, er í hópnum. Þrátt fyrir ungan aldur lék Aufí lykilhlutverk í liði Gróttu í Lengjudeildinni í sumar en hún er einungis 15 ára gömul. Aufí lék 16 leiki í Lengjudeildinni í sumar og skoraði í þeim sjö mörk. Gaman er að segja frá því að Aufí er eini leikmaður hópsins sem fædd er 2008, en aðrir leikmenn eru fæddir árið 2007. Knattspyrnudeild Gróttu er hreykin af því að eiga svona flottan fulltrúa í hópnum. Leikirnir við Svíþjóð munu fara fram á Íslandi 29.nóvember og 1.desember 2023 í Miðgarði Garðabæ. Knattspyrnudeild Gróttu óskar Aufí innilega til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu framundan!
Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U15 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í UEFA Development Tournament. Gróttukonan Rebekka Sif Brynjarsdóttir hefur verið valin í hópinn. Rebekka er 14 ára gömul og gríðarlega efnileg knattspyrnukona. Hún lék tvo leiki með meistaraflokki Gróttu í Lengjudeildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark. Þá lék hún einnig með 3. flokki kvenna og 4. flokki karla og kvenna í sumar þar sem hún skoraði samtals 30 mörk. Mótið verður haldið í Lissabon í Portúgal dagana 17.-23. nóvember, en liðið æfir í tvígang á Íslandi fyrir brottför. Knattspyrnudeild Gróttu óskar Rebekku innilega til hamingju með valið og góðs gengis á mótinu!
Á dögunum hélt Anna Steinsen frá KVAN fyrirlestur fyrir handboltaforeldra sem bar yfirskriftina „Hvernig get ég stutt barnið mitt í handbolta?“
Hún fjallaði um menningu í hópum og hvernig við getum orðið jákvæðir leiðtogar. Mikilvægi liðsheildar og að við látum okkur aðra varða, hugsum um heildina. Hún talaði einnig um samskipti og með áherslu á samskipti milli kynslóða og hvernig við getum stutt við okkar barn á uppbyggilegan hátt.
Virkilega áhugavert fræðsluerindi fyrir foreldra sem höfðu einmitt á orði hversu gagnlegt þetta hefði verið.
Landsliðsþjálfarar U20 ára landsliðs kvenna, þeir Ágúst Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson völdu í gær landsliðshóp U20 ára landsliðsins til æfingar dagana 23. – 26.nóvember. Við í Gróttu eigum tvo fulltrúa í liðinu en það eru þær Anna Karólína Ingadóttir og Katrín Anna Ásmundsdóttir.
Við óskum þessum flottu fulltrúum okkar til hamingju með valið og óskum þeim góðs gengis á æfingunum.
Landsliðsþjálfarar U15 ára landsliðs kvenna, Sigríður Unnur Jónsdóttir og Hildur Þorgeirsdóttir völdu í dag U15 ára landsliðshóp sem mun æfa dagana 23. – 26.nóvember næstkomandi. Einn fulltrúi frá Gróttu er í landsliðshópnum en það er hún Edda Sigurðardóttir. Edda er leikmaður í 4.flokki kvenna hjá félaginu.
Íþróttafélagið Grótta auglýsir til umsóknar starf framkvæmdastjóra félagsins. Leitað er eftir einstaklingi sem er kraftmikill leiðtogi sem fer fyrir hópi öflugra starfsmanna og vinnur að uppbyggingu Gróttu í takti við framtíðarsýn félagsins. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og eru mikil tækifæri fyrir nýjan aðila að hafa mótandi áhrif á félagið.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri Gróttu sem og fjármálum og rekstri mannvirkja um heyra undir Aðalstjórn félagsins. Innan Gróttu starfa þrjár deildir; Fimleikadeild, Handknattleiksdeild og Knattspyrnudeild, með um 1000 iðkendur og tugi þjálfara.
Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2023. Við hvetjum öll kyn til að sækja um. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast og því hvetjum við umsækjendur til að sækja um sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Ábyrgð á allri starfsemi félagsins, mannauðsmálum, rekstri deilda og fjármálum
· Stefnumótun og eftirfylgni hennar, markmiðasetning og ferla- og umbótarvinna
· Rekstraráætlanagerð og tekjuöflun í samstarfi við stjórnir, auk markaðssetning félagins
· Ábyrgð á innri og ytri upplýsingagjöf í samræmi við stefnu Gróttu og í samvinnu við deildir
· Umsjón með markaðssetningu Gróttu og stærri viðburðum félagsins
· Ber ábyrgð á starfsmannahaldi félagsins og skipuleggur verkefni og verksvið
· Stuðlar að því að efla félagsandann og vinnur að uppbyggingu félagsins
· Ber ábyrgð á samningum félagsins og vinnur með deildum í samningagerð þeirra
· Sér til þess að rekstur félagsins, mannvirkja og skrifstofu sé hagkvæmur og árangursríkur
· Stuðningur við stjórnir deilda og sjálfboðaliða félagsins
· Rekstur og viðhald mannvirkja og aðstaða félagsins
· Leiðir samskipti við sérsambönd og opinbera aðila
· Umsjón aðalstjórnarfunda ásamt eftirfylgni með ákvörðunum funda
· Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
· Mikil hæfni í samskiptum og sterk leiðtoga- og skipulagshæfni
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi
· Hefur góða innsýn í og reynslu af stjórnun, rekstri og fjármálum
· Frumkvæði, áræðni og jákvætt viðhorf
· Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
· Reynsla og þekking á íþróttastarfsemi og rekstri innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2023. Sótt er um starfið á umsóknarvef Alfreðs: Íþróttafélagið Grótta (alfred.is) Nánari upplýsingar má nálgast með því að senda tölvupóst á [email protected]
Elís Þór Rafnsson kom á haustmánuðum og kenndi iðkendum handknattleiksdeildar teygjur og annað handhægt til að koma í veg fyrir meiðsl og til að auka liðleika.
Næstu tvær vikurnar fara fram vinavikur í handboltanum. Við hvetjum alla núverandi iðkendur til að taka með sér vini eða vinkonur á æfingar. Aðrir sem hafa áhuga á að koma og prófa, eru hjartanlega velkomin.
Æfingatöflu yngri flokkanna má sjá hér á myndinni.
Fyrir stuttu tilkynnti Pétur Rögnvaldsson, þjálfari meistaraflokks kvenna, stjórn og leikmönnum að hann hygðist taka sér hvíld frá þjálfun eftir níu ára farsælt starf fyrir knattspyrnudeild Gróttu. Það verður sjónarsviptir af Pétri þar sem hann hefur verið einn burðarásanna í þjálfarahópi félagsins í uppbyggingarstarfi þess á síðustu árum. Drýgstan skerf hefur Pétur þó lagt af mörkum til uppbyggingar kvennaknattspyrnu á Seltjarnarnesi og í Vesturbænum.
Pétur hóf störf hjá knattspyrnudeild Gróttu í ársbyrjun 2015 og hefur starfað þar óslitið síðan. Hann þjálfaði bæði stelpur og stráka í yngri flokkunum og þar af fjögur ár í eldri flokkum kvenna. Fyrst 4. flokk Gróttu/KR tímabilin 2016 og 2017 og síðar 3. flokkinn í tvö ár við góðan orðstír. Í ársbyrjun 2019 tók hann við sem aðstoðarþjálfari Magnúsar Arnar Helgasonar hjá meistaraflokki kvenna í Gróttu sem þá lék í 2. deild. Tveimur árum síðar steig hann upp að hlið Magnúsar sem aðalþjálfari liðsins.
Eftir dramatískt fall í 2. deild haustið 2021 tók Pétur við sem aðalþjálfari enda hafði uppbygging gengið vel og allar forsendur til að fara rakleiðis aftur upp í Lengjudeildina. Það tókst Gróttukonum með Pétur í brúnni í fyrra og í sumar náði liðið besta árangri í sögu meistaraflokks kvenna. Eins og kunnugt er spilaði Grótta hreinan úrslitaleik við Fylki um sæti í Bestu deildinni fyrir framan 800 áhorfendur á Vivaldivellinum laugardaginn 9. september. Eftir jafnan leik hafði Fylkir sigur en sú niðurstaða varpar ekki skugga á stórkostlegan árangur Gróttuhópsins.
Gróttufólk þakkar Pétri ómetanlegt starf í þágu knattspyrnudeildar og félagsins. Það er ekki ofsagt að hann hafi gegnt lykilhlutverki í starfinu; borið hag félagsins fyrir brjósti, alltaf með hjartað á réttum stað og hugann við að byggja upp heilsteypta einstaklinga og öfluga liðsheild. Jafnframt óskum við Pétri velfarnaðar í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni og bjóðum hann velkominn í bakvarðasveitina!
Handknattleiksdeild Gróttu er að hefja aftur æfingar fyrir krakka á leikskólaaldri fædda 2018 og 2019. Æfingarnar eru á laugardögum kl. 09:20-10:10 og fara fram í litla salnum í íþróttahúsinu. Þjálfari flokksins er Ingi Þór Ólafson ásamt aðstoðarþjálfurum.
Þarna gefst krökkum á leikskólaaldri að kynnast handbolta með reglubundnum æfingum einu sinni í viku. Lögð verður áhersla á skemmtilega leiki með og án bolta og grunnatriði handbolta kennd með fjölbreyttri hreyfingu. Fyrsta æfing verður 2.september. Við hvetjum alla til prófa.