5. flokkur karla hélt á hið víðfræga N1 mót á Akureyri í lok júní eins og vaninn hjá Gróttu er. Grótta fór með fjögur lið á mótið sem fór fram 29. júní til 2. júlí. Mikil eftirvænting hafði verið fyrir mótinu hjá drengjunum eins og eðlilegt er, enda hápunktur fótboltasumarsins. Öll liðin upplifðu töp og sigra og eitt og annað sem fór í reynslubankann. Eitt Gróttuliðið fór heim með bikar að móti loknu eftir að hafa lent í 3. sæti í Brasilísku-deildinni sem uppskar mikla gleði! Annað Gróttulið komst í undanúrslit í Kólumbísku-deildinni en komst því miður ekki lengra en það. Strákarnir fóru þó sáttir heim eftir skemmtilega dvöl á Akureyri í góðra vina hópi þar sem fótbolti var spilaður fram á kvöld og ógleymanlegar minningar skapaðar.
Rúmlega 70 Gróttustelpur spiluðu á Símamótinu helgina 8.-10. júlí, stærsta fótboltamóti landsins, sem er haldið ár hvert í Kópavogi. Grótta fór með 11 lið á mótið, fjögur úr 7. flokki, fimm úr 6. flokki og tvö úr 5. flokki. Leikið var á vallarsvæðum Breiðabliks föstudag, laugardag og sunnudag en mótið hófst með skrúðgöngu á Kópavogsvelli á fimmtudagskvöld. Símamótið verður að teljast hápunktur ársins hjá knattspyrnustúlkum um allt land, þar sem fótbolti er spilaður í þrjá daga og ógleymanlegar minningar skapaðar. Gróttustelpur mættu ákveðnar til leiks, sýndu dugnað og baráttuvilja og spiluðu fallegan fótbolta. Gróttuliðin hétu öll eftir leikmönnum meistaraflokks kvenna líkt og í fyrra og skapaði það góða stemningu. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum kíktu leikmenn meistaraflokks kvenna á sín lið um helgina sem vakti mikla lukku meðal stelpnanna. Eitt Gróttulið fór heim með bikar og eitt með silfurmedalíu, en öll liðin stóðu sig ótrúlega vel. Grótta Edda Steingríms í 6. flokki sigldi sigri heim í úrslitaleik gegn Víking. Leikurinn fór 4-3 og var gríðarlega spennandi en sigurmarkið var skorað á síðustu mínútunni. Grótta Tinna Bjarkar í 6. flokki komst einnig í úrslit en tapaði naumlega 3-2 gegn Stjörnunni í úrslitaleik og þurftu stelpurnar að sætta sig við silfrið eftir ótrúlegan baráttuleik. Grótta Lilja Lív í 6. flokki komst alla leið í undanúrslit í hæsta styrkleikaflokki 6. flokks á mótinu en laut lægra haldi fyrir Val í undanúrslitum, 3-2, eftir hörkuleik. Grótta Lilja Lív mega þó vera stoltar af því að hafa verið meðal top fjögurra liða af 160 liðum í 6. flokki á mótinu, en Grótta er svo sannarlega hreykið af þeim árangri. Grótta Margrét Rán í 5. flokki komst einnig í undanúrslit og nældi sér í 3. sætið eftir góðan sigur gegn FH. Gróttustúlkur höfðu beðið lengi í eftirvæntingu eftir Símamótinu og það má segja að það hafi heldur betur staðið undir væntingum. Stelpurnar skemmtu sér vel og eru eflaust farnar að telja niður í næsta Símamót!
Eldra ár 6. flokks karla skellti sér á Orkumótið í Eyjum dagana 23.-25. júní. Grótta fór með þrjú lið á mótið og skemmtu drengirnir sér gríðarlega vel í Vestmannaeyjum!
3. flokkur kvenna eru komnar áfram í undanúrslit bikarsins!!??? Grótta/KR vann öruggan sigur á Fjölni í 8-liða úrslitum bikarsins í gær á KR-velli en leikurinn fór 5-1 fyrir heimastúlkum. Mörk Gróttu/KR skoruðu Katla Guðmundsdóttir (3), Helga Sif Bragadóttir og Rakel Grétarsdóttir ⚽️ Vel gert stelpur! ??
Gróttustrákar úr 7. flokki karla skemmtu sér konunglega á hinu víðfræga Norðurálsmóti sem var haldið á Akranesi helgina 17-19. júní. Grótta fór með sex lið á mótið og stóðu drengirnir sig gríðarlega vel, innan sem utan vallar!
6. flokkur kvenna eyddi helginni 24.-26. júní á Sauðárkróki og kepptu stelpurnar þar á ÓB móti Tindastóls. Grótta fór með fimm lið á mótið og stóðu stelpurnar sig með prýði!
Í lok maí fór fram lokahluti Hæfileikamótunar HSÍ á þessu tímabili og fóru æfingar fram á Laugarvatni. Þrír fulltrúar frá okkur voru valdir á æfingarnar og voru þeir þessir:
Arnar Magnús Andrason Arna Katrín Viggósdóttir Sara Kristjánsdóttir
Við óskum þessum fulltrúm okkar hjartanlega til hamingju með valið !
Helgina 20. – 22.maí síðastliðinn fór fram Handboltaskóli HSÍ var það í 27. sinn sem skólinn var haldinn. Um er að ræða fyrsta stig landsliða HSÍ og voru sex fulltrúa valdir frá Gróttu. Æfingarnar fóru fram í Kaplakrika í Hafnarfirði.
Frá Gróttu voru valin: Aþena Mist Guðmundsdóttir Edda Sigurðardóttir Katrín Arna Andradóttir Svandís Birgisdóttir Birgir Davíðsson Scheving Kristjón Þórðarson
Grótta óskar þessum sex leikmönnum til hamingju með valið og vonar að þetta sé upphafið að einhverju stærra hjá þeim.
Skólastjóri Handboltaskóla HSÍ er Jón Gunnlaugur Viggósson.
Þær Arnfríður Auður Arnarsdóttir, Rebekka Sif Brynjarsdóttir og Sara Björk Arnarsdóttir voru boðaðar á æfingar í Hæfileikamótun KSÍ og N1 í maí. Stúlkurnar æfðu þann 24. maí með stelpum úr HK, Val, Breiðablik, FH, ÍA, ÍBV, RKV, Sindra, Stjörnunni og Þrótti R. á Vogaídýfuvellinum!
6. flokkur karla skellti sér á TM Stjörnunnar á sumardaginn fyrsta og helgina eftir á fylgdu 6. og 7. flokkur kvenna fast á eftir og tóku þátt í mótinu. Grótta fór með 14 lið á mótið í heild sinni, sex frá 6. flokki karla, fimm frá 6. flokki kvenna og þrjú frá 7. flokki kvenna. Krakkarnir skemmtu sér mjög vel á fyrsta stórmóti sumarsins og stóðu sig með prýði eins og við var að búast!