Átta frá Gróttu í Handboltaskóla HSÍ

Helgina 12. – 13. júní síðastliðinn fór fram Handboltaskóli HSÍ og Alvogen í var það í 26. sinn sem skólinn var haldinn. Um er að ræða fyrsta stig landsliða HSÍ og voru fjórir leikmenn valdir frá hverju félagi. Æfingarnar voru fjórar talsins og fóru fram í TM-höllinni í Garðabæ.

Frá Gróttu voru valin:

Arnfríður Auður Arnarsdóttir
Auður Freyja ÁrnadóttirKristín
Fríða Sc. Thorsteinsson
Sara Kristjánsdóttir

Arnar Magnús Andrason
Fannar Hrafn Hjartarson
Patrekur Ingi Þorsteinsson
Kolbeinn Thors

Grótta óskar þessum átta leikmönnum til hamingju með valið og vonar að þetta sé upphafið að einhverju stærra hjá þeim.

Skólastjórar Handboltaskóla HSÍ og Alvogen voru þau Halldór Jóhann Sigfússon og Rakel Dögg Bragadóttir.

Handboltaskóli og Afreksskóli Gróttu

Segja má að upphaf handboltastarfsins eftir stutt sumarfrí sé Handboltaskóli Gróttu og Afreksskóli Gróttu í handbolta í ágúst. Þá lifnar Íþróttahús Gróttu aftur til lífsins og allt verður eins og á að vera. Undanfarin ár hafa skólarnir verið vel sóttir en í ár mun Maksim Akbachev yfirþjálfari hafa veg og vanda að námskeiðinu ásamt frábæru þjálfurum deildarinnar.

Continue reading

Emelía og Lilja Lív valdar í hóp U16 ára landsliðsins

Gróttukonurnar Emelía Óskarsdóttir og Lilja Lív Margrétardóttir hafa verið valdar í hóp U16 ára landsliðsins sem æfir saman á Selfossi í júní. Æfingarnar fara fram dagana 21.-24. júní og eru liður í undirbúningi liðsins fyrir Norðurlandamótið sem fer fram í Danmörku 4.-13. júlí í sumar. Gangi ykkur vel stelpur ??

Andri Helga gerir tveggja ára samning

Andri Þór Helgason hefur gert nýjan tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Andra Þór þarft vart að kynna fyrir Gróttufólki eða öðru handboltaáhugafólki en hann hefur verið einn albesti vinstri hornamaður Olísdeikdarinnar undanfarin ár. Andri er jafnframt fyrirliði Gróttuliðsins.

Continue reading

Verðlaunahafar á lokahófi

Lokahóf meistaraflokka Gróttu í handknattleik fór fram á föstudagskvöld í Hátíðarsal Gróttu. Að venju voru þeir leikmenn sem sköruðu fram úr í vetur verðlaunaðir.

Continue reading

Aðalfundir Gróttu 2020

Aðalfundir deilda og ráða Íþróttafélagsins Gróttu fóru fram fimmtudaginn 29. apríl síðastliðinn og að þessu sinni voru fundirnir rafrænir vegna Covid ástandsins. Sigrún Edda Jónsdóttir hélt um fundarstjórnina en fundurinn hófst með skýrslu Braga Björnssonar, formanns aðalstjórnar og í kjölfarið komu formenn deilda og ráða í pontu og fóru yfir starfið á árinu 2020. Því næst var farið yfir rekstrarniðurstöður ársins en reksturinn gekk afar vel á árinu og hefur rekstur félagsins almennt verið í góðu jafnvægi á árinu 2020.
Fjalar Sigurðsson hélt utan um tæknistjórnina og sá til þess að rafræni fundurinn gekk án áfalla. Gefin var út glæsileg árskýrsla fyrir síðasta ár: https://issuu.com/niels…/docs/_rssk_rsla_gr_dttu2020_ok_web

Eldri ársreikninga er að finna hér.