Íþróttaslys

Íþróttafólk sem slasast á æfingum og í keppnum geta sótt ákveðnar endurgreiðslur v/ útlagðs sjúkra- og slysakostnaðar. Eftirfarandi aðilar bæta hluta af fjárhagslegu tjóni:

Íþróttaslysasjóður ÍSÍ endurgreiðir íþróttaiðkendum innan vébanda ÍSÍ, 16 ára og eldri, kostnaðarhluta sjúklings vegna sjúkraþjálfunar og beinnar læknismeðferðar, skv. opinberum taxta Sjúkratrygginga Íslands, sjá reglugerð ÍSÍ um greiðslu bóta vegna íþróttaslysa. http://www.isi.is/um-isi/ithrottaslysasjodur/

Sjúkratryggingar Íslands bæta þolendum tjón en almennt gildir sú takmörkun að til þess að eiga rétt á bótum úr slysatryggingum þarf slysið að hafa valdið a.m.k. 10 daga óvinnufærni: http://www.sjukra.is/slys/slysabaetur

Íþróttafólk á eins og aðrir einnig rétt á því að sækja um afsláttarkort, sem veitir afslátt á sjúkraþjónustu þeirra sem eru með samning við Sjúkratryggingar Íslands, eftir að ákveðnu lágmarki er náð:

  • 18 ára og yngri greiða fullt gjald upp að 8.400kr
  • Eldri greiða fullt gjald upp að 28.000kr

Einnig bæta Sjúkratryggingar Íslands tjón vegna tannlækninga (skv. gjaldskrá) ef ekki er réttur til endurgreiðslu annars staðar: http://www.sjukra.is/heilbrigdisthjonusta/tannlaekningar/alvarlegar-afleidingar-faedingargalla-sjukdoma-og-slys

Það er mikilvægt að benda á það að samkvæmt íslenskum lögum bera þau félög og samtök sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi ekki sjálfkrafa ábyrgð á slysum sem börn verða fyrir í starfinu.

Börn og ungmenni fá tjón af völdum slyss, t.a.m. tannlæknakostnað, ekki greiddan af öðrum, nema einhver beri skaðabótaábyrgð á slysinu. Skilyrði skaðabótaábyrgðar eru m.a. að sá sem krafinn er um bætur eigi sök á slysinu.

Ef barn eða ungmenni slasast í óhappi sem engum verður kennt um ber sá sem stendur fyrir félags- og tómstundastarfinu þess vegna ekki ábyrgð á því. Sá sem stendur fyrir starfinu ber hins vegar skaðabótaábyrgð ef starfsmenn hans, launaðir eða ólaunaðir, hafa sýnt af sér sök, t.a.m. vanrækslu við að gæta barna, og það veldur slysi. Sá sem stendur fyrir starfinu, eða umráðamaður aðstöðu, getur orðið bótaskyldur ef aðbúnaður er ófullnægjandi og slys verður vegna þess.

Börn og ungmenni geta þurft að bæta öðrum börnum tjón sem þau valda þeim. Heimilistryggingar fela lang oftast í sér ábyrgðartrygginguvegna tjóns sem börn valda og sumar fela líka í sér slysatryggingar vegna tjóns sem börn valda og sumar fela líka í sér slysatryggingu vegna slysa sem börn verða fyrir í frítíma. Þar sem að slíkum slystryggingum sleppir er barn eða ungmenni ekki tryggt í félags- og tómstundastarfinu frekar en þegar það er úti að leik. Frekari upplýsingar um tryggingamál félagasamtaka má finna í bæklingi sem gefinn var út af menntamálaráðuneytinu haustið 2010:

http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Forsidugreinar/nr/5685

Grótta og Tryggja í samstarf

Íþróttafélagið Grótta og Tryggja í samstarfi við Lloyd´s, bjóða tryggingu fyrir börn yngri en 22 ára í leik og starfi. Tryggingin gildir allan sólarhringinn á æfingum, keppnum og frítíma hvar sem er í heiminum. 

Þetta er algjörlega valfrjálst fyrir félög/foreldra en fyrir hverja áskrift fær félagið 1.000 kr. Grótta  hvetur því félagsmenn að kynna sér þetta tilboð en Tryggja mun sjá um alla úrvinnslu og standa skil á greiðslum

Vernda barnatrygging er ódýr sjúkra- og slysatrygging, 1.990 kr. á mánuði.

  • Styrkur til íþróttafélags
  • Ekkert heilsufarsmat
  • Gildir út um allan heim
  • Dagpeningar til foreldra við umönnun
  • Hæstu bætur við örorku

Tryggingin gildir: 

  • við æfingar
  • í keppni
  • í frítíma
  • í leik og starfi

Smelltu á meðfylgjandi hlekk til að kaupa tryggingu tryggja.is/vernda-barnatryggingar/sport

Veittur er 10% systkinaafsláttur! 

“Tryggjum börnin okkar sérstaklega, það verðmætasta sem við eigum, alltaf, alls staðar í leik og starfi”

Nánari upplýsingar veitir Stefán Þórðarson stefanth@tryggja.is