ann 1. júní til 30. júní fer fram forskráning í fimleikadeild Gróttu fyrir veturinn 2022-23. Athugið að ekki er forskráning í stubbafimi en skráningin fyrir stubbafimina hefst 1. júlí.
Continue readingGarðar 80 ára í dag
„Ungum verzlunarmanni hjá Jes Zimsen í Hafnastræti datt í hug fyrir tæpu ári, að það væri ekki fráleitt að stofna knattspyrnufélag í hans bæjarhverfi. Félagið var stofnað 10. febrúar 1966 (innskot: formleg stofnun félagsins var 24. apríl 1967) og vitanlega fékk það nafnið Knattspyrnufélagið Grótta, því félagið er staðsett á Seltjarnarnesi. Garðar Guðmundsson, en svo heitir þessi ungi maður, var í sumar einn með 126 stráka á æfingum. Hann var jafnframt formaður félagsins, ritari og gjaldkeri. Hann var allt í öllu og rak Knattspyrnufélagið eins og einkafyrirtæki sem dafnaði í hans höndum dag frá degi.”
Þannig byrjar frétt úr dagblaðinu Vísi 13. janúar 1967 um fyrstu skref Íþróttafélagsins Gróttu undir stjórn Garðars. Í dag 19. maí 2022 fagnar Garðar stórum áfanga er hann fagnar 80 ára afmæli sínu.
Á laugardaginn verður haldið fótboltamót á Vivaldivellinum til heiðurs Garðari sem við hvetjum Gróttufólk til að fjölmenna á, en mótið verður á Vivaldivellinum á milli 10:15 og 14:00. Garðar hefur þjálfað Old Boys í Gróttu í alls 38 ár – byrjaði árið 1984 og geri aðrir betur.
Íþróttafélagið Gróttu óskar Garðari innilega til hamingju með stórafmælið og þakkar honum fyrir hans framlag í þágu félagsins.




Skráning á sumarnámskeið
Sumarstarfið verður með hefðbundu sniði og verður gott framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6 -18 ára á Seltjarnarnesi, líkt og undanfarin ár. Skráning opnar þriðjudaginn 3. maí kl. 12:00.
Continue readingAðalfundir Gróttu – Þröstur nýr formaður
Aðalfundir deilda og ráða Íþróttafélagsins Gróttu fóru fram í gærkvöldi, þriðjudaginn 26. apríl og fóru þeir fram í hátíðarsal félagsins.
Guðmundur Sigurbergsson formaður UMSK hélt um fundarstjórnina en fundurinn hófst með skýrslu Braga Björnssonar, formanns aðalstjórnar og í kjölfarið komu formenn og gjaldkerar deilda og ráða í pontu og fóru yfir starfið á árinu og rekstrarniðurstöður.
Heilt yfir gekk rekstur félagsins vel á árinu og hefur reksturinn almennt verið í góðu jafnvægi á árinu 2021 þrátt fyrir að covid faraldurinn hafði minnt á sig.
Þröstur Guðmundsson tók við formennsku aðalstjórnar af Braga Björnssonar sem lætur af störfum eftir formennsku í 4 ár. Aðrar breytingar á aðalstjórn eru að Anna Björg Erlingsdóttir og Svala Sigurðardóttir koma nýjar í stjórn en Bragi og Fanney Rúnarsdóttir fara úr stjórn.
Stjórn fimleikadeildar og handknattleiksdeildar er óbreytt.
Í stjórn unglingaráðs handknattleiksdeildar var sú breyting að Guðrún Dóra Bjarnadóttir kemur inn í stað Hildar Ýrar Hjálmarsdóttir.
Stjórn knattspyrndudeildar er sú breyting að Pétur Ívarsson og Margrét Dagbjört Flygenring Pétursdóttir hverfa úr stjórn en inn koma Helgi Héðinsson, Hildur Ólafsdóttir og Stefán Bjarnason.
Gefin var út glæsileg árskýrsla fyrir síðasta ár:
https://grotta.is/wp-content/uploads/2022/04/A%CC%81rssky%CC%81rsla-Gro%CC%81ttu-2021-ok-web.pdf
Eyjólfur Garðarsson ljósmyndari félagsins mætti svæðið og tók frábærar myndir sem lýsa vel heppnuðum aðalfundi.



Heimaleikjakort til sölu
Heimaleikjakort knattspyrnudeildar Gróttu eru komin í sölu. Við hvetjum alla stuðningsmenn til að næla sér í kort á kostakjörum. Handhafar heimaleikjakorta njóta forgangs á völlinn. Sala heimaleikjakorta fer fram í vefverslun grotta.is/knattspyrnudeild/heimaleikjakort
Continue readingÍþróttafélagið Grótta 55 ára
Íþróttafélagið Grótta fagnar í dag 55 ára afmæli sínu. Félagið var stofnað þennan dag, 24. apríl árið 1967. Í gegnum tíðina hafa ýmsar greinar verið stundaðar innan félagsins svo sem körfuknattleikur, kraftlyftingar, skák og skíði. Í dag starfar Grótta í þremur deildum, fimleika-, handknattleiks- og knattspyrnudeild.
Continue readingAðalfundir Gróttu næsta þriðjudag
Hrafnhildur nýr framkvæmdastjóri fimleikadeildar
Aðalfundir Gróttu 26. apríl
Aðalfundir aðalstjórnar og deilda Íþróttafélagsins Gróttu fara fram þriðjudaginn 26.apríl 2022.
Aðalfundirnir hefjast kl. 17:30 og er gert ráð fyrir að þeim sé lokið kl. 18:30.
Eftir að aðalfundum lýkur verður öllum fundargestum boðið upp á léttar veitingar.
Sjá nánar á facebook viðburð
https://www.facebook.com/events/489647929333086?ref=newsfeed
Ofurhetjumót Gróttu og MINISO tókst vel
Ofurhetjumót Fimleikadeildar Gróttu og MINISO fór fram um síðustu helgi og sýndu alls 400 ofurhetjur frá 8 félögum listir sínar. Mótið gekk ótrúlega vel og þökkum við öllum keppendum og foreldrum þeirra fyrir komuna. Þjálfurum og dómurum þökkum við fyrir vel unnin störf ásamt öllum þeim sjálfboðaliðum sem lagt hafa hönd á plóg. Við þökkum aðalstyrktaraðila mótsins versluninni MINISO í Kringlunni sérstaklega fyrir stuðninginn en allir keppendur fóru heim með glaðning frá þeim.











