Grótta nældi sér í stig á Meistaravöllum í dag í fyrsta deildarleik Gróttu og KR ??
Liðin buðu upp á alvöru nágrannaslag í fallegu en köldu veðri í Vesturbænum. Staðan var 0-0 í hálfleik en Karl Friðleifur Gunnarsson kom Gróttu yfir á ’54 mínútu eftir stoðsendingu frá Kristófer Orra Péturssyni. KR tókst að jafna metin á ’70 mínútu og niðurstaðan 1-1 jafntefli.
Næsti leikur hjá strákunum er gegn KA á Vivaldivellinum kl. 16:15 á sunnudaginn. Næstu leikir eru gríðarlega mikilvægir og þar þurfa strákarnir okkar stuðning í stúkunni! Sjáumst á vellinum ??
Mynd: Eyjólfur Garðarsson ?
