6. flokkur karla á Orkumótinu í Eyjum

Það voru 17 galvaskir Gróttudrengir sem héldu í ævintýraferð á Orkumótið í Eyjum í lok júní, áður þekkt sem Shellmótið eða Tommamótið. Veðrið var frábært þegar siglt var með Herjólfi frá Landeyjahöfn og strax fyrsta daginn fóru strákarnir í bátsferð um Eyjarnar.

Keppni hófst á fimmtudeginum og lék Grótta2 meðal annars á Helgafellsvelli sem er líklega einn af fáum fótboltavöllum í heiminum sem er staðsettur á eldfjalli. Strákarnir í Gróttu2 spiluðu glimrandi fótbolta og náðu 2. sæti í sínum riðli fyrstu tvo dagana. Síðasta daginn öttu þeir svo kappi við mjög öflug lið og gerðu tvö jafntefli en tvö töp staðreynd.

Grótta1 byrjaði mótið rólega en á föstudagsmorgni þurfti heldur betur að vakna því framundan voru leikir við tvö af bestu liðum mótsins: Stjörnuna og Þór (sem enduðu á að leika til úrslita). Báðir leikir töpuðust 2-0 en varnarleikur Gróttudrengja var stórgóður og endaði liðið daginn á frábærum sigri á Keflavík. Lokadaginn gerði Grótta1 svo tvö jafntefli, vann einn leik og tapaði einum og endaði í 11. sæti Orkumótsins.

Það eru þó ekki aðeins afrek innan vallar sem skipta máli á svona stórmóti hjá 10 ára peyjum (eins og Eyjamenn kalla stráka). Hópurinn ver miklum tíma saman og stundum getur tekið á að gista annars staðar en í öruggu skjóli foreldra sinna. Allir voru sammála um að strákarnir hafi komið nokkrum númerum stærri heim frá Eyjum, tilbúnari í að takast á við áskoranir næstu ára innan sem utan fótboltavallarins.

6. flokkur kvenna á Steinullarmóti Tindastóls

6. flokkur kvenna skellti sér á Sauðárkrók síðustu helgi og lék þar á Steinullarmóti Tindastóls. Grótta fór með 5 lið á mótið og stóðu stelpurnar sig ótrúlega vel. Miklar framfarir sáust í spilamennsku hjá Gróttustelpunum og var leikgleðin aldrei langt undan. Veðrið var frábært á Króknum og stemningin með eindæmum góð ??
Næst á dagskrá hjá stelpunum er Símamótið sem fer fram næstu helgi í Kópavogi!

7. flokkur karla á Norðurálsmótinu

37 drengir úr 7. flokki karla spiluðu á hinu víðfræga Norðurálsmóti síðustu helgi en Grótta fór með sex lið á mótið. Drengirnir fengu frábært veður á Skaganum sem skemmdi ekki fyrir stemningunni. Þeir stóðu sig gríðarlega vel og gátu þjálfararnir séð miklar framfarir á vellinum. Frábært var að sjá hvað margir foreldrar fylgdu strákunum og hvöttu þá til dáða. Mótið gekk heilt yfir mjög vel og voru drengirnir félaginu til sóma, bæði innan sem utan vallar. Mikil gleði ríkti meðal drengjanna eins og sjá má á meðfylgjandi mynd ?

5. flokkur kvenna á TM mótinu í Eyjum

5. flokkur kvenna hélt til Vestmannaeyja í síðustu viku á hið margfræga TM mót, betur þekkt sem Pæjumótið! Grótta fór með tvö lið á mótið og 21 stúlku innanborðs. Spilað var fimmtudag, föstudag og laugardag og var mikið fjör á Eyjunni. Rebekka Sif Brynjarsdóttir var valinn fulltrúi liðsins í pressuliðinu sem lék gegn landsliðinu á föstudagskvöldið, en lið Rebekku vann leikinn 3-0 og átti hún tvær stoðsendingar ?? Rebekka var einnig valin í lið mótsins!
Stelpurnar stóðu sig vel á mótinu innan sem utan vallar og voru glæsilegir fulltrúar félagsins ?

Hákon valinn í U21 fyrir undankeppni EM

Hákon Rafn Valdimarsson var á dögunum valinn í hóp U21 karla landsliðsins sem mætir Svíþjóð í undankeppni EM þann 4. september á Víkingsvelli. Hákon er fæddur árið 2001 en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið lykilmaður í meistaraflokki síðustu tvö ár. Gríðarlega efnilegur leikmaður sem er vert að fylgjast með.
Til hamingju Hákon! ??

Vetraræfingatafla knattspyrnudeildar

Vetraræfingataflan tekur gildi fyrir 5.-8. flokk karla og kvenna þriðjudaginn 25. ágúst.

2-4. flokkur æfir áfram í sínum flokkum þangað til mótin klárast, en eldra árið í 5. flokki færist upp 25. ágúst og æfir með 4. flokki. Æfingatímar hjá 2.-4. flokki gætu breyst vegna leikja, en iðkendur og foreldrar eru hvattir til að fylgjast með upplýsingum frá þjálfurum.

Vetrarfrí flokkanna verður 22. október-2. nóvember.

Þjálfarar flokkanna verða tilkynntir á næstu dögum.

Nánari upplýsingar veita Chris ([email protected]) og Jórunn María ([email protected]).

6. flokkur karla á Orkumótinu í Eyjum

Eldra ár 6. flokks karla hélt til Vestmannaeyja í síðustu viku til að spila á Orkumótinu. Grótta fór með þrjú lið á mótið sem samanstóðu af 24 drengjum. Mótið gekk mjög vel fyrir sig og var hópurinn vel samstilltur og var ótrúlega góður andi í öllum sem voru í Gróttu. Öll liðin stóðu sig frábærlega á vellinum, spilið hjá drengjunum til fyrirmyndar og voru allir staðráðnir í að standa sig eins vel og þeir gátu fyrir liðsfélagana sína og sitt lið. Utan vallar voru þeir til fyrirmyndar og voru flottir fulltrúar Gróttu.

5. flokkur kvenna á TM-mótinu í Eyjum

Á dögunum héldu pæjurnar í 5. flokki Gróttu á TM-mótið í Vestmannaeyjum, betur þekkt sem Pæjumótið. Annað árið í röð fóru 34 stelpur frá Gróttu sem skipuðu fjögur lið, hvorki meira né minna!
Grótta1 gerði sér lítið fyrir og endaði í 4. sæti mótsins sem er besti árangur Gróttu frá upphafi. Ennfremur jöfnun á besta árangri 5. flokks Gróttu á stórmóti í en A-lið 5.fl.kk hjá Gróttu endaði í 4. sæti á N1-mótinu árið 2009. Arnfríður Auður Arnarsdóttir var fulltrúi Gróttu í landsleiknum og skoraði tvö mörk fyrir framan troðfulla stúku. Í mótslok var Aufí, eins og hún er oftast kölluð, valin í úrvalslið mótsins.
Grótta2 byrjaði brösuglega en komst svo á þvílíka siglingu og sigraði alla sína leiki á öðrum degi. Stelpurnar héldu áfram að spila vel á lokadeginum og voru ekki langt frá því að komast í úrslit í sinni deild. Enduðu sem fimmta hæsta B-lið mótsins.
Grótta3 byrjaði hægt en óx jafnt og þétt eftir því sem leið á mótið. Sama má í raun segja um stelpurnar í Gróttu4 en þar voru allar á sínu fyrsta Pæjumóti og þurftu því sinn tíma til að venjast aðstæður.
Auk fótboltans fór Gróttuliðið í skemmtilegra siglingu og tók þátt í hæfileikakeppni. Stelpurnar voru Gróttu til mikils sóma á móti og mikið gleðiefni að svo stórir og glæsilegir hópar stelpna séu nú á fleygiferð í fótbolta hjá Gróttu.

7. flokkur karla á Norðurálsmótinu

Helgina 19.-21. júní hélt 7. flokkur karla á Akranes til að spila á hinu fræga Norðurálsmóti. Grótta fór með 39 drengi í sjö liðum á mótið svo það var nóg um að vera hjá strákunum og þjálfurum. Spilað var á Akranesi þrjá daga í röð, föstudag til sunnudag, og gist á Skaganum. Margir voru að fara á sitt fyrsta stórmót og því mikil spenna í hópnum. Mótið gekk mjög vel hjá drengjunum og allir fóru glaðir heim, þótt margir hefðu helst vilja vera aðeins lengur ?

7. flokkur kvenna á Kristalsmóti Gróttu

Kristalsmót Gróttu fór fram þann 21. júní á Vivaldivellinum en á mótið var fyrir 7. flokk kvenna. Um 200 stelpur mættu á mótið frá Gróttu, Val, Stjörnunni, Fylki, Álftanesi, HK og FH. Sólin skein á Vivaldivellinum og mótið gekk gríðarlega vel! Allir fóru heim með medalíu, Kristal og bros á vör.