Sumarnámskeið Gróttu sumarið 2023
Sumarstarfið verður með hefðbundnu sniði og verður gott framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6 -18 ára á Seltjarnarnesi, líkt og undanfarin ár.
Opnað verður fyrir skráningu föstudaginn 28. apríl kl. 12:00
Innritun og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Fyrir nánari upplýsingar veitir skrifstofa Grótta. Síma 561-1133 á milli kl 13:00 og 16:00 eða með því að senda tölvupóst á netfangið grotta@grotta.is
- Leikjanámskeið (fyrir börn fædd 2016 og 2015)
- Ævintýranámskeið (fyrir börn fædd 2014 og 2013)
- Survivor-námskeið (fyrir börn fædd 2012 – 2010)
- Smíðavöllur (fyrir börn fædd 2014 og eldri)
Leikjanámskeið fyrir börn sem eru fædd árin 2016 og 2015
Á leikjanámskeiðunum verður efniviðurinn sóttur í nær umhverfið og börnin æfa sig í að umgangast dýr og menn á Seltjarnarnesinu. Börnin á námskeiðum munu fara í sundferðir og skoðunarferðir. Áhersla verður lögð á útileiki og skapandi vinnu með börnunum.
Öll námskeið sumarsins verða þematengd þannig mun hvert námskeið verða ólíkt því næsta. Skipulögð dagskrá er frá klukkan 9:00 – 16:00, en boðið er upp á viðveru frá klukkan 8:00 – 9:00 og 16:00 -16:30. Sækja þarf sérstaklega um þá þjónustu.
Þátttakendur þurfa að hafa með sér kjarngott nesti, sundföt, hlífðarfatnað og annan fatnað er hæfir veðri og viðburðum hverju sinni. Það eru vandaðir leiðbeinendur á námskeiðunum auk aðstoðarfólks frá vinnuskóla.
Námskeiðin verða sem hér segir:
- 12. júní – 16. júní (Síðasti dagur skráningar er 8. júní)
- 19. júní – 30. júní (Síðasti dagur skráningar er 15. júní)
- 3. júlí – 14. júlí (Síðasti dagur skráningar er 29. júní)
- 8. ágúst – 18 ágúst (Síðasti dagur skráningar er 4.ágúst)
ATH: lágmarksþáttaka til að námskeið sé haldið miðast við 5 þátttakendur
Hægt er að velja heilan eða hálfan dag.
Verð kr. 16.200 allur dagurinn (9:00-16:00, miðað við 10 daga).
Verð kr. 8.800 hálfur dagurinn (9:00-12:00 eða 13:00-16:00, miðað við 10 daga).
Staðsetning námskeiðs ekki komin á hreint og verður tilkynnt forráðamönnum þegar nær dregur.
Opnað verður fyrir skráningu föstudaginn 28. apríl kl. 12:00. Innritun og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Ævintýranámskeið fyrir börn sem eru fædd árin 2014 og 2013
Á ævintýranámskeiðunum munu verður lögð áhersla á hópefli, leiki, útiveru og ævintýri. Börnin fá tækifæri til takast á við skapandi verkefni á borð við tónlist, leiklist og myndlist. Þátttakendur munu fara í vettvangsferðir á áhugaverða staði og sundferðir sem svíkja engan.
Öll námskeið sumarsins verða þematengd þannig mun hvert námskeið verða ólíkt því næsta. Skipulögð dagskrá er frá klukkan 9:00 – 16:00, en boðið er upp á viðveru frá klukkan 8:00 – 9:00 og 16:00 -16:30. Sælja þarf sérstaklega um þá þjónustu. Þátttakendur þurfa að hafa með sér kjarngott nesti, sundföt, hlífðarfatnað og annan fatnað er hæfir veðri og viðburðum hverju sinni.
Það eru vandaðir leiðbeinendur á námskeiðunum auk aðstoðarfólks frá vinnuskóla.
Námskeiðin verða sem hér segir:
- 12. júní – 16. júní (Síðasti dagur skráningar er 8. júní)
- 19. júní – 30. júní (Síðasti dagur skráningar er 15. júní)
- 3. júlí – 14. júlí (Síðasti dagur skráningar er 29. júní)
- 8. ágúst – 18 ágúst (Síðasti dagur skráningar er 4.ágúst)
ATH: lágmarksþáttaka til að námskeið sé haldið miðast við 5 þátttakendur
Hægt er að velja heilan eða hálfan dag.
Verð kr. 16.200 allur dagurinn (9:00-16:00, miðað við 10 daga).
Verð kr. 8.800 hálfur dagurinn (9:00-12:00 eða 13:00-16:00, miðað við 10 daga).
Staðsetning námskeiðs ekki komin á hreint og verður tilkynnt forráðamönnum þegar nær dregur.
Opnað verður fyrir skráningu föstudaginn 28. apríl kl. 12:00. Innritun og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Survivor–námskeið
Survivornámskeið fyrir börn fædd 2012 – 2010 verður haldið á vegum Gróttu. Survivor þema verður á námskeiðinu. Það verða búnir til tveir ættbálkar sem taka þátt í ýmsum þrautum.
Námskeiðin verða sem hér segir:
- 12. júní – 16. júní (Síðasti dagur skráningar er 8. júní)
- 19. júní – 30. júní (Síðasti dagur skráningar er 15. júní)
- 3. júlí – 14. júlí (Síðasti dagur skráningar er 29. júní)
Staðsetning námskeiðs ekki komin á hreint og verður tilkynnt forráðamönnum þegar nær dregur.
Á námskeiðunum verður einnig farið í bátsferð, hjólreiðaferð, sund og íþróttir auk þess sem gist verður í tjaldi/skála yfir eina nótt. Dagskrá námskeiðsins er frá klukkan 10:00-13:00 og þátttakendur þurfa að hafa með sér nesti og hlýjan fatnað.
Verð kr. 10.000 (10 dagar)
Námskeið 1 (5 dagar) Verð kr. 6.000
Takmarkaður fjöldi: aðeins 20 sæti
Opnað verður fyrir skráningu föstudaginn 28. apríl kl. 12:00. Innritun og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Smíðavöllur
Í sumar verður starfræktur smíðavöllur á vegum Gróttu fyrir börn fædd 2014 og eldri.
Staðsetning smíðavalla er ekki komið á hreint en völlurinn er starfræktur í júní og er opinn frá kl. 9:00 – 12:00 og 13:00 – 16:00 daglega.
Smíðavöllurinn hefst mánudaginn 12. júní og er tímabilið til 30. júní.
Síðasti dagur skráningardagur er 9. júní.
Verð kr. 15.000 kr.
Staðsetning námskeiðs ekki klárt.
Ath! Þátttakendur eru á eigin vegum og geta því komið og farið að vild.
Innifalið í verði er efniviður, naglar og verkfæri ásamt aðstoð frá leiðbeinanda.
Opnað verður fyrir skráningu föstudaginn 28. apríl kl. 12:00. Innritun og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Knattspyrnuskólinn 2023
fyrir krakka fædda 2013 til 2017
Allir eru velkomnir í Knattspyrnuskóla Gróttu, jafnt iðkendur sem hafa æft lengi sem og krakkar sem hafa áhuga á að prófa fótbolta í fyrsta skipti. Knattspyrnuskólinn hefur verið starfræktur samfellt frá árinu 1986 og hlotið gæðavottun KSÍ ár eftir ár.
Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á Vivaldivellinum við Suðurströnd frá 09:00 – 12:00 alla virka daga frá skólalokum til verslunarmannahelgar. Tekið er á móti börnunum frá 08:00 og verða börn fædd 2017 sótt í leikskólann og þeim fylgt til baka að námskeiði loknu.
Skólastjóri knattspyrnuskólans verður Gabríel Hrannar Eyjólfsson, leikmaður meistaraflokks karla og þjálfari 4.fl. karla ásamt góðu föruneyti þjálfara og unglinga. Lögð verður áhersla á að kenna fótbolta í gegnum skemmtilega leiki og æfingar og verður ýmislegt til gamans gert á öllum námskeiðunum.
- Námskeið 1 – 12. júní – 16. júní (1 vika) > verð 7.000 kr
- Námskeið 2 – 19. júní – 30. júní (2 vikur) > verð 14.000 kr
- Námskeið 3 – 3. júlí – 14. júlí (2 vikur) > verð 14.000 kr
- Námskeið 4 – 17. júlí – 28. júlí (2 vikur) > verð 14.000 kr
*Börn fædd 2017 sótt í leikskólann
Opnað verður fyrir skráningu föstudaginn 28. apríl kl. 12:00. Innritun og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Fimleika- og leikjaskóli Gróttu sumar 2023
Fimleikadeildin verður með fimleika- og leikjaskóla fyrir 6-9 ára krakka (fædd 2014 – 2017) í sumar.
Námskeiðin verða frá kl. 9:00 – 16:00 alla virka daga og standa yfir í viku í senn.
Fyrir hádegi verður farið í fimleika frá kl. 09:00 – 12:00 með smá nestispásu kl. 10:30 og eftir hádegi verður farið í ýmsa leiki bæði úti og inni. Boðið verður upp á gæslu frá kl. 08:30 – 09:00.
Í fimleikunum verða börnunum skipt í hópa eftir aldri og færni í fimleikaæfingum. Börnin eiga að mæta á námskeiðið með fimleikafatnað með sér og klædd eftir veðri. Þau þurfa að hafa með sér kjarngott nesti yfir daginn.
Umsjón með námskeiðunum hefur Ólöf Línberg Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri og þjálfari fimleikadeildar.
Námskeiðin eru sem hér segir:
- 12. júní – 16. júní
- 19. – 23. júní
- 26. – 30. júní
- 3. – 7. Júlí
- 10. – 14. júlí
- 8. – 11. ágúst (4 dagar)
- 14. – 18. ágúst
Námskeiðsgjald fyrir hverja viku (5 daga allan daginn) er 19.500 kr.
Námskeiðsgjald fyrir 4.daga námskeið: 15.600 kr.
Opnað verður fyrir skráningu föstudaginn 28. apríl kl. 12:00. Innritun og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Sumarnámskeið í hópfimleikum
Fimleikadeildin verður með hópfimleikanámskeið í sumar þar sem lögð verður áhersla á undirstöðuatriði í hópfimleikum. Æft verður gólfæfingar, dýnustökk og trampólín.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum.
Námskeiðið verður á eftirfarandi tímasetningum:
Iðkendur fæddir 2011-2012 æfa frá mánudegi til fimmtudags kl. 13:00-15:00.
Iðkendur fæddir 2013-2014 æfa frá mánudegi til fimmtudags kl. 11:30-13:30.
- 12. – 15. júní
- 19. – 22. júní
- 8. – 10. ágúst (3 dagar)
- 14. – 17 ágúst
Námskeiðsgjald fyrir hverja viku er 6.150 kr.
Vinsamlega athugið að takmarkað pláss er á námskeiðunum. Jafnframt áskilur fimleikadeildin sér rétt til að fella niður námskeiðið náist ekki næg þátttaka.
Opnað verður fyrir skráningu föstudaginn 28. apríl kl. 12:00. Innritun og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Handbolta sumarnámskeið 2023
Handknattleiksdeild Gróttu verður, líkt og síðustu ár með öflugt sumarstarf fyrir börn og unglinga. Í sumar verður boðið upp á handboltaskóla í þrjár vikur, þ.e. frá 31. júlí. – 18. ágúst.
Í handboltaskólanum, sem er fyrir börn fædd 2012-2017, verður börnum skipt eftir aldri til að koma til móts við þarfir hvers og eins. Farið verður í grunnatriði fyrir yngsta aldurshópinn og flóknari æfingar fyrir eldri hópa.
Vandað verður til verka við val á þjálfurum og leiðbeinendum við skólann, líkt og undanfarin ár. Meðal þeirra sem koma að þjálfuninni eru leikmenn og þjálfarar handknattleiksdeildar. Byrjendur eru sérstaklega velkomnir á þessi námskeið.
Skólinn verður alla daga frá kl. 09:00 – 12:00, en boðið verður upp á gæslu frá kl. 08:00 og að skóla loknum til kl. 13:00.
Handboltaskólanum lýkur með grillveislu fyrir alla þátttakendur föstudaginn 18. ágúst.
Verð og tímasetning:
- Vika 1 – kr. 8.000 (31 júlí. – 4. ágúst)
- Vika 2 – kr. 6.500 (8. – 11. ágúst)
- Vika 3 – kr. 8.000 (14. – 18. ágúst)
- Ef allar vikur eru teknar kostar það 20.000 kr.
Opnað verður fyrir skráningu föstudaginn 28. apríl kl. 12:00. Innritun og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Afreksskólinn
Handknattleiksdeild Gróttu verður einnig með sérstakan afreksskóla en hann er starfræktur frá, 31. júlí – 18. ágúst fyrir iðkendur sem verða í 5. og 4.flokki næsta vetur (f. 2008-2011).
Æfingar fara fram á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 12:30- 14:00. Í afreksskólanum verður að miklu leyti farið í flóknari tækniatriði en í handboltaskólanum og meiri afrekshugsun í fyrirrúmi.
Verð og tímasetning:
- Vika 1 – kr. 6.000 (31 júlí. – 4. ágúst)
- Vika 2 – kr. 6.000 (7. – 11. ágúst)
- Vika 3 – kr. 6.000 (14. – 18. ágúst)
- Ef allar vikurnar eru teknar þá kostar það 14.000 kr
Afreksskólanum lýkur með grillveislu fyrir alla þátttakendur föstudaginn 18.ágúst.