Andri snýr aftur heim

Handknattleiksdeild Gróttu hefur ráðið Andra Sigfússon sem verkefnastjóra deildarinnar auk þess sem Andri tekur að sér þjálfun yngri flokka hjá Gróttu.

Andra þarf vart að kynna fyrir Gróttufólki. Hann er uppalinn hjá félaginu og lék upp alla yngri flokka með Gróttu auk þess sem hann lék með meistaraflokki til ársins 2009. Hann er íþróttafræðingur að mennt og hefur starfað sem þjálfari hjá deildinni frá árinu 2002. Undanfarin ár hefur Andri verið yfirþjálfari hjá Fjölni. Andri er silfurmerkjahafi Gróttu og var íþróttastjóri félagsins árin 2008 til 2012 .

Andri mun taka að sér þjálfun 6. flokks karla og 4. flokks karla.

Það ríkir mikil ánægja innan handknattleiksdeildar Gróttu að fá Andra aftur heim.

Velkominn Andri!

Sumarnámskeið Seltjarnarnesbæjar og Gróttu sumarið 2021

Sumarstarfið verður með hefðbundu sniði og verður gott framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6 -18 ára á Seltjarnarnesi, líkt og undanfarin ár.

Innritun og greiðsla á eftirfarandi námskeið fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta en upplýsingar um skráningu er að nálgast hér fyrir neðan. Fyrir nánari upplýsingar veitir skrifstofa Grótta. Síma 561-1133 á milli kl 13:00 og 16:00 eða með því að senda tölvupóst á netfangið gullijons@grotta.is

  • Leikjanámskeið (fyrir börn fædd 2014 og 2013)
  • Ævintýranámskeið (fyrir börn fædd 2012 og 2011)
  • Survivor-námskeið (fyrir börn fædd 2010 – 2008)
  • Smíðavöllur (fyrir börn fædd 2012 og eldri)

Leikjanámskeið fyrir börn sem eru fædd árin 2014 og 2013

Á leikjanámskeiðunum verður efniviðurinn sóttur í nær umhverfið og börnin æfa sig í að umgangast dýr og menn á Seltjarnarnesinu. Börnin á námskeiðum munu fara í sundferðir og skoðunarferðir. Áhersla verður lögð á útileiki og skapandi vinnu með börnunum.

Öll námskeið sumarsins verða þematengd þannig mun hvert námskeið verða ólíkt því næsta. Skipulögð dagskrá er frá klukkan 9:00 – 16:00, en boðið er upp á viðveru frá klukkan 8:00 – 9:00 og 16:00 -17:00. Sækja þarf sérstaklega um þá þjónustu.

Þátttakendur þurfa að hafa með sér kjarngott nesti, sundföt, hlífðarfatnað og annan fatnað er hæfir veðri og viðburðum hverju sinni. Það eru vandaðir leiðbeinendur á námskeiðunum auk aðstoðarfólks frá vinnuskóla.

Námskeiðin verða sem hér segir:

  • 11. júní – 18. júní (Síðasti dagur skráningar er 4. júní)
  • 21. júní – 02. júlí (Síðasti dagur skráningar er 15. júní)
  • 5. júlí – 16. júlí (Síðasti dagur skráningar er 29. júní)
  • 9. ágúst – 20. ágúst (Síðasti dagur skráningar er 17. júlí)

Hægt er að velja heilan eða hálfan dag. Verð kr. 14.000 allur dagurinn (9:00-16:00, miðað við 10 daga). Verð kr. 7.700 hálfur dagurinn (9:00-12:00 eða 13:00-16:00, miðað við 10 daga). Mæting: Mýrarhúsaskóli

Innritun og greiðsla á leikjanámskeið fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Ævintýranámskeið fyrir börn sem eru fædd árin 2012 og 2011

Á ævintýranámskeiðunum munu verður lögð áhersla á hópefli, leiki, útiveru og ævintýri. Börnin fá tækifæri til takast á við skapandi verkefni á borð við tónlist, leiklist og myndlist. Þátttakendur munu fara í vettvagnsferðir á áhugaverða staði og sundferðir sem svíkja engan.

Öll námskeið sumarsins verða þematengd þannig mun hvert námskeið verða ólíkt því næsta. Skipulögð dagskrá er frá klukkan 9:00 – 16:00, en boðið er upp á viðveru frá klukkan 8:00 – 9:00 og 16:00 -17:00. Sækja þarf sérstaklega um þá þjónustu. Mæting: Frístundaheimilið Skjólið

Þátttakendur þurfa að hafa með sér kjarngott nesti, sundföt, hlífðarfatnað og annan fatnað er hæfir veðri og viðburðum hverju sinni. Það eru vandaðir leiðbeinendur á námskeiðunum auk aðstoðarfólks frá vinnuskóla.

Námskeiðin verða sem hér segir:

  • 11. júní – 18. júní (Síðasti dagur skráningar er 3. júní)
  • 21. júní – 02. júlí (Síðasti dagur skráningar er 14. júní)
  • 5. júlí – 16. júlí (Síðasti dagur skráningar er 28. júní)
  • 9. ágúst – 20. ágúst (Síðasti dagur skráningar er 17. júlí)

Hægt er að velja heilan eða hálfan dag. Verð kr. 14.000 allur dagurinn (9:00-16:00, miðað við 10 daga). Verð kr. 7.700 hálfur dagurinn (9:00-12:00 eða 13:00-16:00, miðað við 10 daga).

Innritun og greiðsla á ævintýranámskeið fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Survivor–námskeið

Survivornámskeið fyrir börn fædd 2010 – 2008 verður haldið á vegum Seltjarnarnesbæjar

Survivor þema verður á námskeiðinu. Það verða búnir til tveir ættbálkar sem taka þátt í ýmsum þrautum.

Námskeiðin verða sem hér segir:

  • 11. júní – 18. júní (Síðasti dagur skráningar er 4. júní)
  • 21. júní – 02. júlí (Síðasti dagur skráningar er 15. júní)
  • 5. júlí – 16. júlí (Síðasti dagur skráningar er 29. júní)

Á námskeiðunum verður einnig farið í bátsferð, hjólreiðaferð, sund og íþróttir auk þess sem gist verður í tjaldi/skála yfir eina nótt. Dagskrá námskeiðsins er frá klukkan 10:00-13:00 og þátttakendur þurfa að hafa með sér nesti og hlýjan fatnað. Mæting: Félagsmiðstöðin Selið

Verð kr. 8.000 miðað við 10 daga.

Innritun og greiðsla á Survivor námskeið fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Knattspyrnuskóli 2021

Fyrir krakka fædda 2011 til 2015

Allir eru velkomnir í Knattspyrnuskóla Gróttu, jafnt iðkendur sem hafa æft lengi sem og krakkar sem hafa áhuga á að prófa fótbolta í fyrsta skipti. Knattspyrnuskólinn hefur verið starfræktur samfellt frá árinu 1986 og hlotið gæðavottun KSÍ ár eftir ár.

Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á Vivaldivellinum við Suðurströnd frá 09:00 – 12:00 alla virka daga frá skólalokum til verslunarmannahelgar. Tekið er á móti börnunum frá 08:00 og verða börn fædd 2015 sótt í leikskólann og þeim fylgt til baka að námskeiði loknu.

Skólastjóri knattspyrnuskólans verður Gabríel Hrannar Eyjólfsson, leikmaður meistaraflokks karla og þjálfari 6.fl. og 7.fl. karla ásamt góðu föruneyti þjálfara og unglinga. Lögð verður áhersla á að kenna fótbolta í gegnum skemmtilega leiki og æfingar og verður ýmislegt til gamans gert á öllum námskeiðunum.

  • Námskeið 1, 11. júní – 18. júní kr. 5.000
  • Námskeið 2, 21. júní – 25. júní kr. 5.000
  • Námskeið 3, 28. júní – 2. júlí kr. 5.000
  • Námskeið 4, 5. júlí – 9. júlí kr. 5.000
  • Námskeið 5, 12.júlí – 16.júlí kr. 5.000
  • Námskeið 6, 19.júlí – 23. júlí kr. 5.000
  • Námskeið 7, 26.júlí – 30. júlí kr. 5.000

Líkt og árið 2020 verða æfingar hjá 7. flokki beint á eftir knattspyrnuskólanum eða kl. 12:00. Krakkar sem eru á leikjanámskeiði eftir hádegi hafa tíma eftir æfingu til að koma sér á leikjanámskeiðið og tíma fyrir æfingu til að borða hádegismat.

Innritun og greiðsla í knattspyrnuskólann fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Sumarnámskeið fyrir 4. og 5. flokk

Æfðu eins og atvinnumaður

Knattspyrnudeild Gróttu býður upp á afreksæfingar fyrir leikmenn á aldrinum 2007-2010 (4.&5. flokkur). Æfingarnar fara fram á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum í klukkutíma í senn og ákveðið þema mun einkenna hverja æfingu.

Æfingarnar verða fyrir hádegi en nánari tímasetningar verða kynntar þegar nær dregur. Fyrsta námskeiðið hefst þann 14. júní en boðið verður upp á fjögur námskeið sem eru öll viku í senn.

  • Vika 1: 14-18 júní
  • Vika 2: 21-25 júní
  • Vika 3: 28 júní-2.júlí
  • Vika 4: 5-9 júlí

Verð hver vika: 5000 kr. Allar vikur valdar 14.júní-9.júlí: 13000 kr.

Fimleika- og leikjaskóli Gróttu

Fimleikadeildin verður með fimleika- og leikjaskóla fyrir 6-9 ára krakka (fædd 2012-2015).

Námskeiðin verða frá kl. 9:00 – 16:00 alla virka daga og standa yfir í viku í senn. Fyrir hádegi verður farið í fimleika frá kl. 09:00 – 12:00 með smá nestispásu kl. 10:30 og eftir hádegi verður farið í ýmsa leiki bæði úti og inni. Boðið verður upp á gæslu frá kl. 08:30 – 09:00.

Í fimleikunum verða börnunum skipt í hópa eftir aldri og færni í fimleikaæfingum. Börnin eiga að mæta á námskeiðið með fimleikafatnað með sér og klædd eftir veðri. Þau þurfa að hafa með sér kjarngott nesti yfir daginn.

Umsjón með námskeiðunum hefur Ólöf Línberg Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri og þjálfari fimleikadeildarinnar.

Námskeiðin eru sem hér segir.

  • 14. – 18. Júní (4 dagar)
  • 21. – 25. júní
  • 28. júní – 2. júlí
  • 5. – 9. Júlí
  • 12. – 16. júlí
  • 3. – 6. ágúst (4 dagar)
  • 9. – 13. ágúst
  • 16. – 20. Ágúst

Námskeiðsgjald fyrir hverja viku (5 daga allan daginn) er 17.000 kr. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Vinsamlega athugið að takmarkað pláss er á námskeiðunum. Jafnframt áskilur fimleikadeildin sér rétt til að fella niður námskeiðið náist ekki næg þátttaka.

Sumarnámskeið í hópfimleikum fyrir börn fædd 2008-2011

Fimleikadeildin verður með hópfimleikanámskeið fyrir iðkendur á aldrinum 10 – 13 ára í sumar. Námskeiðin verða frá mánudegi til fimmtudags kl. 11:30-13:30. Lagt verður áhersla í undirstöðuatriðum í hópfimleikum og krakkarnir æfa sig í dansi, dýnustökkum og æfingum á trampólíni.

Námskeiðin verða sem hér segir:

  • 14. – 16. júní (3 dagar)
  • 21. – 24. júní
  • 28. júní – 1. júlí
  • 3. – 5. ágúst (3 dagar)
  • 9. – 12. ágúst
  • 16. – 19. ágúst

Námskeiðsgjald fyrir hverja viku (4 daga) er 6000 kr. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Vinsamlega athugið að takmarkað pláss er á námskeiðunum. Jafnframt áskilur fimleikadeildin sér rétt til að fella niður námskeiðið náist ekki næg þátttaka.

Handbolta sumarnámskeið

Handknattleiksdeild Gróttu verður, líkt og síðustu ár með öflugt sumarstarf fyrir börn og unglinga.

Handboltaskóli

Í sumar verður boðið upp á handboltaaskóla í þrjár vikur, þ.e. frá 3. – 20. ágúst. Í handboltaskólanum, sem er fyrir börn fædd 2010-2015, verður börnum skipt eftir aldri til að koma til móts við þarfir hvers og eins. Farið verður í grunnatriði fyrir yngsta aldurshópinn og flóknari æfingar fyrir eldri hópa.

Vandað verður til verka við val á þjálfurum og leiðbeinendum við skólann, líkt og undanfarin ár. Meðal þeirra sem koma að þjálfuninni eru leikmenn og þjálfarar handknattleiksdeildar. Umsjónarmaður námskeiðsins er Maksim Akbachev, yfirþjálfari handknattleiksdeildar. Byrjendur eru sérstaklega velkomnir á þessi námskeið.

Skólinn verður alla daga frá kl. 09:00 – 12:00, en boðið verður upp á gæslu frá kl. 08:00 og að skóla loknum til kl. 13:00.

Handboltaskólanum lýkur með grillveislu fyrir alla þátttakendur föstudaginn 20. ágúst.

Verð

  • Vika 1 – kr. 5.200 (3. – 6. ágúst)
  • Vika 2 – kr. 6.500 (9. – 13. ágúst)
  • Vika 3 – kr. 6.500 (16. – 20. ágúst)

Ef allar vikur eru teknar kostar það 16.000 kr. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Afreksskólinn

Handknattleiksdeild Gróttu verður einnig með sérstakan afreksskóla en hann er starfræktur frá, 3. – 20. ágúst fyrir iðkendur sem verða í 5. og 4.flokki næsta vetur (f. 2006-2009).

Æfingar fara fram á mánudögum og þriðjudögum kl 12:30- 14:00, miðvikudögum kl. 14:30- 16:00 og á föstudögum kl. 12:30 – 14:00. Í afreksskólanum verður að miklu leyti farið í flóknari tækniatriði en í handboltaskólanum og meiri afrekshugsun í fyrirrúmi.

Verð:

  • Vika 1 – kr. 5.000 (3. – 6. ágúst)
  • Vika 2 – kr. 5.000 (9.-13. ágúst)
  • Vika 3 – kr. 5.000 (16. – 20. ágúst)

Ef allar vikurnar eru teknar þá kostar það 11.500 kr

Afreksskólanum lýkur með grillveislu fyrir alla þátttakendur föstudaginn 20.ágúst. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Fyrir nánari upplýsingar veitir skrifstofa Grótta. Síma 561-1133 á milli kl 13:00 og 16:00 eða með því að senda tölvupóst á netfangið gullijons@grotta.is

Smíðavöllur – ekki lengur í boði.

Í sumar verður starfræktur smíðavöllur á vegum bæjarins fyrir börn fædd 2012 og eldri

Í sumar verður starfræktur smíðavöllur á vegum bæjarins fyrir börn fædd 2012 og eldri. Völlurinn verður staðsettur við Valhúsaskóla og er starfræktur í júní en völlurinn er opinn frá kl. 9:00 – 12:00 og 13:00 – 16:00 daglega.

Smíðavöllurinn hefst föstudaginn 11. júní og er tímabilið til 2. júlí.

Verð kr. 8.000 | Mæting: Valhúsaskóli

Ath! Þátttakendur eru á eigin vegum og geta því komið og farið að vild. Innifalið í verði er efniviður, naglar og verkfæri ásamt aðstoð frá leiðbeinanda.

Innritun og greiðsla á smíðavöllinn fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Meistaraflokkur kvenna áfram í Mjólkurbikarnum

Grótta lék við Fram í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins í kvöld og vann öruggan 4-0 sigur. Diljá Mjöll Aronsdóttir kom Gróttukonum snemma yfir með marki úr vítaspyrnu. María Lovísa Jónasdóttir jók forystu Gróttu á 34’ mínútu og Bjargey Sigurborg Ólafsson bætti svo við þriðja markinu á 55’ mínútu. Í blálokin skoraði síðan Diljá Mjöll Aronsdóttir sitt annað mark beint úr aukaspyrnu!
Stelpurnar eru því komnar áfram í aðra umferð Mjólkurbikarsins og spila við Aftureldingu eða Hauka sunnudaginn 16. maí.

Hákon fer til Svíþjóðar í sumar

Knattspyrnudeild Gróttu hefur náð samkomulagi við IF Elfsborg um að Hákon Rafn Valdimarsson markvörður gangi til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið í félagaskiptaglugganum í sumar, að uppfylltum nánari skilmálum samningsins.

Hákon er 19 ára gamall en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið aðalmarkvörður Gróttu undanfarin þrjú tímabil. Hákon spilaði sinn fyrsta leik fyrir Gróttu árið 2017 en hann á að baki 61 leik fyrir félagið og hefur leikið í þremur efstu deildum með liðinu. Auk þess hefur Hákon leikið með U-19 ára landsliðinu sem og U-18 ára og var einnig í lokahópi U21-árs landsliðsins sem tók þátt á EM í mars síðastliðnum.

Knattspyrnudeild Gróttu óskar Hákoni innilega til hamingju með samninginn og hlakkar til að fylgjast með ævintýrum hans í Svíþjóð á komandi misserum.

Sumarnámskeið í hópfimleikum fyrir börn fædd 2008-2011

Fimleikadeildin verður með hópfimleikanámskeið fyrir iðkendur á aldrinum 10 – 13 ára í sumar.
Námskeiðin verða frá mánudegi til fimmtudags kl. 11:30-13:30.  
Lagt verður áhersla í undirstöðuatriðum í hópfimleikum og krakkarnir æfa sig í dansi, dýnustökkum og æfingum á trampólíni.

Námskeiðin verða sem hér segir.
14. – 16. júní (3 dagar)
21. – 24. júní
28. júní – 1. júlí
3. – 5. ágúst (3 dagar)
9. – 12. ágúst
16. – 19. ágúst ,

Námskeiðsgjald fyrir hverja viku (4 daga) er 6000 kr.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum https://www.sportabler.com/shop/grotta.

Vinsamlega athugið að takmarkað pláss er á námskeiðunum. Jafnframt áskilur fimleikadeildin sér rétt til að fella niður námskeiðið náist ekki næg þátttaka.   

Fimleika- og leikjaskóli Gróttu sumar 2021

Fimleikadeildin verður með fimleika- og leikjaskóla fyrir 6-9 ára krakka (f.2012-2015) í sumar.
Námskeiðin verða frá kl. 9:00 – 16:00 alla virka daga og standa yfir í viku í senn. Fyrir hádegi verður farið í fimleika frá kl. 09:00 – 12:00 með smá nestispásu kl. 10:30 og eftir hádegi verður farið í ýmsa leiki bæði úti og inni. Boðið verður upp á gæslu frá kl. 08:30 – 09:00.

Í fimleikunum verða börnunum skipt í hópa eftir aldri og færni í fimleikaæfingum. Börnin eiga að mæta á námskeiðið með fimleikafatnað með sér og klædd eftir veðri. Þau þurfa að hafa með sér kjarngott nesti yfir daginn.

Umsjón með námskeiðunum hefur Ólöf Línberg Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri og þjálfari fimleikadeildarinnar.

Námskeiðin eru sem hér segir.

14. – 18. Júní (4 dagar)
21. – 25. júní
28. júní – 2. júlí
5. – 9. Júlí
12. – 16. júlí
3. – 6. ágúst (4 dagar)
9. – 13. ágúst
16. – 20. ágúst

Námskeiðsgjald fyrir hverja viku (5 daga allan daginn) er 17.000 kr.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum https://www.sportabler.com/shop/grotta.
Vinsamlega athugið að takmarkað pláss er á námskeiðunum. Jafnframt áskilur fimleikadeildin sér rétt til að fella niður námskeiðið náist ekki næg þátttaka.   

Þjálfarafræðsla um samskipti við foreldra

Grótta hélt námskeið fyrir þjálfara félagsins 23. mars síðastliðinn um samskipti við foreldra. 
Sálfræðingurinn Hrund Þrándardóttir hélt námskeiðið sem tókst afar vel, það var góð mæting hjá þjálfurum sem gerðu góðan róm af námskeiðinu. 
Samvinna þjálfara og foreldra hefur mikilvæg áhrif m.a. á mætingu barna, þátttöku, líðan og  þrautseigju. Í fræðslunni var áhersla lögð á hvað þjálfarar geta gert til að byggja upp góð samskipti og gagnlega samvinnu við foreldra og hvernig hægt er að bregðast við erfiðum aðstæðum.  Áhersla var á virkni þjálfara á meðan fræðslu stendur til að þeir geti mátað efnið í sína vinnu og nýtt það eins og hægt er. 

Íþróttaæfingar hefjast að nýju

Þau gleðitíðindi bárust í gær að boðaðar voru rýmri samkomutakmarkanir. Nýjar reglur taka gildi á miðnætti í kvöld. Þetta þýðir að íþróttaæfingar mega hefjast án takmarkana og íþróttakeppni er leyfð með 100 áhorfendum.

Allar æfingar hefjast samkvæmt tímatöflum á morgun fimmtudaginn 15. apríl. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að fylgjast vel með á Sportabler.

Áfram biðjum við iðkendur, þjálfara og aðra þá sem erindi kunna að eiga í íþróttamannvirkin okkar að mæta ekki finni þeir fyrir minnstu einkennum veikinda.

Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að koma ekki inn í íþróttamannvirkin.

Við hlökkum til að taka á móti iðkendum okkar aftur á morgun.