Um 470 stelpur lögðu leið sína á Vivaldivöllinn sunnudaginn 24. mars og tóku þátt í Íslandsbankamóti Gróttu.
Continue readingGróttumót 6. og 7. flokks karla haldin annað árið í röð
Gróttumótið var haldið sunnudagana 3. og 17. mars, annað árið í röð, í blíðviðri á Vivaldivellinum. 6. flokkar karla frá Gróttu, ÍR, ÍA, Álftanesi, Leiknir R. og Víkingi og 7. flokkar Gróttu, Víking, ÍR, Álftanesi, Val, Fram, ÍA og HFF mættu til leiks og gekk mótið eins og í sögu.
Continue readingGróttumót 6. flokks karla haldið annað árið í röð
Gróttumótið var haldið í annað sinn sunnudaginn 3. mars í blíðviðri á Vivaldivellinum. 6. flokkar karla frá Gróttu, ÍR, ÍA, Álftanesi, Leiknir R. og Víkingi mættu til leiks og gekk mótið eins og í sögu.
Continue reading3. flokkur kvenna sigurvegari Stefnumóts KA
3. flokkur kvenna hélt til Akureyrar um helgina að keppa á Stefnumóti KA. 22 stelpur héldu í ferðina ásamt tveimur þjálfurum og fararstjórum og mikil spenna var í hópnum. Grótta/KR tefldi fram tveimur liðum og náðu bæði liðin flottum árangri.
Continue readingMargrét Rán og Tinna Brá í úrtakshópi U16
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 kvenna, hefur valið hóp fyrir úrtaksæfingar 25.-27. janúar. Í hópnum eru Gróttustelpurnar Margrét Rán og Tinna Brá, leikmenn 3. flokks. Knattspyrnudeild Gróttu óskar stelpunum innilega til hamingju með valið og óskar þeim góðs gengis á æfingunum!
Continue readingÞrír drengir úr 3. flokki í hóp U-16
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U16 ára landsliðs karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum 4.-6. janúar.
Continue readingNíu krakkar úr 4. flokki valin í hæfileikamótun KSÍ
Fimm stelpur og fjórir strákar úr 4. flokki Gróttu hafa verið valin til að taka þátt í hæfileikamótun N1 og KSÍ 15. og 16. desembe
Continue readingFjórir drengir úr 3. flokki á úrtaksæfingum U16
Fjórir drengir úr 3. flokki voru valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum U16 helgina 30. nóvember – 2. desember.
Continue readingYngri landslið kvenna – Grótta á 5 fulltrúa!
Þjálfarar U-17 ára og U-19 ára landsliðs kvenna völdu á dögunum æfingarhópa sem koma saman dagana 22-25 nóvember n.k.
Continue readingÞjálfarar 2. og 3. flokks karla kynntir til leiks
Þá er komið að því að kynna til leiks þjálfara 2. og 3. flokks karla.
Óskar Hrafn Þorvaldsson og Arnar Axelsson þjálfa 2. flokk karla. Óskar stýrði meistaraflokki karla síðastliðið tímabil með góðum árangri og mun gera það áfram ásamt Halldóri Árnasyni. Óskar hefur þjálfað hjá Gróttu síðustu þrjú tímabli en hann er með UEFA-A þjálfaragráðu og er fyrrverandi landsliðs- og atvinnumaður. Arnar hefur þjálfað hjá Gróttu síðustu fjögur ár, en tvímenningarnir munu einnig þjálfa 6. flokk karla í ár.
Magnús Örn Helgason og Einar Bjarni Ómarsson þjálfa 3. flokk karla. Það þarf vart að kynna Magga til leiks, en hann er öllu Gróttufólki kunnugur enda að hefja sitt tólfta tímabil hjá félaginu. Einar Bjarni er hins vegar að hefja sitt fyrsta tímabil hjá Gróttu sem þjálfari en hann er uppalinn Seltirningur og spilaði með meistaraflokki Gróttu árin 2010 og 2011. Síðan þá hefur Einar leikið með Fram og KV en hann er eini Gróttumaðurinn sem hefur skorað í Evrópuleik!