Skip to content

Skráning iðkenda í Gróttu

Kæru forráðamenn, iðkendur og annað Gróttufólk.

Sú breyting hefur orðið á að nú fara allar skráningar í félagið í gegnum Sportabler. Öll samskipti milli þjálfara og foreldra fara fram í gegnum forritið og því mikilvægt að kynna sér vel og sækja forritið. Viljum við biðja ykkur að yfirfara vel allar upplýsingar (netföng og síma) en skráningar eru eru ákveðið öryggistæki og mikilvægt að réttar upplýsingar séu til staðar þegar ná þarf í aðstandendur.

Hægt er að skoða öll námskeið sem í boði eru á sportabler.com/shop/grotta og einnig er hægt að velja hverja deild fyrir sig. Sjá yfirflokka á Gróttu síðu Sportabler: fimleikar, fótbolti og handbolti.

Athugið! Mikilvægt er að kynna sér nánari upplýsingar hér að neðan m.a. eru leiðbeiningar fyrir notkun frístundastyrks sem og skráningar- og notendaleiðbeiningar fyrir Sportabler.

Leiðbeiningar fyrir innskáningu:

  • Til þess að gerast notandi þarf forráðamaður að nýskrá sig á og sækja Sportabler snjallforritið.
  • Fyrsta skrefið er að fara á skráningarsíðu félagsins Gróttu á sportabler.com/shop/grotta
  • Næst þarftu að skrá þig inn í hægra horninu uppi „Innskrá í Sportabler“ (sjá mynd fyrir ofan – gylltur hnappur).
  • Ef þú ert nú þegar með Sportabler aðgang þá notar þú hann til að skrá þig inn. En ef þú ert ekki með Sportabler aðgang þá velur þú nýskrá neðst í hægra horninu (sjá mynd fyrir neðan).

ATHUGIÐ! Mikilvægt er að þú skráir þig inn sem þú sjálfur en ekki sem barnið þitt.

Ef nýskráning er valin þá þarftu að setja inn tölvupóst og kennitölu (sjá mynd fyrir neðan). Þegar þú smellir á „Senda boð“ færðu staðfestingarpóst í tölvupósti og fylgir því ferli, velur lykilorð og ert þá kominn með aðgang. Stundum gerist það að staðfestingarpóstur endi í ruslhólfi (spam/junk mail) í tölvupóstinum.

Ef það kemur enginn staðfestingarpóstur á netfangið hjá þér eða villuboð kemur upp þá er best að hafa samband við þjónustuver Sportabler þar sem öll mál eru leyst. Gylltur hnappur, staðsettur neðst í hægra horninu á sportabler síðunni. Sjá mynd .

Þegar allt er klappað og klárt þá tekur við innskráningarferli.

  • Þegar þú skráir þig inn ertu beðinn um að auðkenna þig. Í kjölfarið lendir þú inn á island.is þar sem þú getur auðkennt þig með rafrænum skilríkjum eða íslykli.
  • Þegar þú lýkur við auðkenningu þá ferðu beint inn á vefverslunina og getur keypt þá þjónustu sem er í boði.
  • Gott er að vita að þetta ferli þarf bara að ganga í gegnum einu sinni eftir nýskráningu. Efst vinstra megin sérðu sjálfan þig og börnin þín og uppi í hægra horninu sérðu yfirlit yfir reikninga og áskriftir sem þú hefur keypt (sjá mynd fyrir neðan)

Leiðbeiningar fyrir kaup á þjónustu í vefverslun:

Næsta skref er að finna þá þjónustu sem þú vilt kaupa fyrir sjálfan þig eða barnið þitt. Hægt er að nota frístundastyrk, greiðsludreifingu og systkinaafslátt í kaupferlinu.

  • Skref 1 – Velja hvaða iðkanda þú ert að kaupa þjónustuna fyrir. ATH gætið að því að rétt íþróttagrein/þjónusta sé valin
  • Skref 2 – Ef önnur þjónusta hefur verið keypt sem fellur undir skilmála systkina eða fjölgreinaafslátt kemur hann í skrefi 2 í kaupferli. ATH. afslátturinn reiknast þó ekki af fyrstu skráningu en viðskiptavinur fær sendan kúpon sem nýttur er við næstu skráningu/ar.
  • Skref 3 – Í þessu skrefi velur þú hvort þú viljir nota frístundastyrk eða ekki. ATH þessi möguleiki kemur ekki upp ef þjónustan sem er til sölu býður ekki upp á frístundastyrk. (Ef valið er að ráðstafa frístundastyrk verður notandi sjálfkrafa beðin um að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum)
  • Skref 4 – Í skrefi 4 sérðu hvað þú átt mikinn frístundastyrk inni og í línunni fyrir neðan velur þú þá upphæð sem þú vilt ráðstafa.
  • Skref 5 – Hérna býður félagið upp á greiðsludreifingu (ef við á).
  • Skref 6 – Hérna er greiðsluleið valin. Val um kredit-/ debit kort eða greiðsluseðil.

Hægra meginn í kaupferlinu er svo kvittun sem þú sérð hvernig upphæðin reiknast eftir notkun á frístundastyrk, systkinaafslætti og greiðsludreifingu.

Smelltu HÉR fyrir frekari Sportabler leiðbeiningar (athugið er á ensku).

Aðstoð: Ef ykkur vantar aðstoð eða hafið spurningar þá er þjónustuver Sportabler sportabler.com/home alltaf opið.