Sumarnámskeið Seltjarnarnesbæjar og Gróttu sumarið 2022

Sumarstarfið verður með hefðbundnu sniði og verður gott framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6 -18 ára á Seltjarnarnesi, líkt og undanfarin ár.

Innritun og greiðsla á eftirfarandi námskeið fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta en upplýsingar um skráningu er að nálgast hér fyrir neðan.

Fyrir nánari upplýsingar veitir skrifstofa Grótta. Síma 561-1133 á milli kl 13:00 og 16:00 eða með því að senda tölvupóst á netfangið gullijons@grotta.is

Handboltaskóli

Í sumar verður boðið upp á handboltaaskóla í þrjár vikur, þ.e. frá 2. – 19. ágúst. Í handboltaskólanum, sem er fyrir börn fædd 2011-2016, verður börnum skipt eftir aldri til að koma til móts við þarfir hvers og eins. Farið verður í grunnatriði fyrir yngsta aldurshópinn og flóknari æfingar fyrir eldri hópa.

Vandað verður til verka við val á þjálfurum og leiðbeinendum við skólann, líkt og undanfarin ár. Meðal þeirra sem koma að þjálfuninni eru leikmenn og þjálfarar handknattleiksdeildar. Umsjónarmaður námskeiðsins er Maksim Akbachev, yfirþjálfari handknattleiksdeildar. Byrjendur eru sérstaklega velkomnir á þessi námskeið.

Skólinn verður alla daga frá kl. 09:00 – 12:00, en boðið verður upp á gæslu frá kl. 08:00 og að skóla loknum til kl. 13:00.

Handboltaskólanum lýkur með grillveislu fyrir alla þátttakendur föstudaginn 19. ágúst.

Verð:

  • Vika 1 – kr. 5.500 (2. – 5. ágúst)
  • Vika 2 – kr. 7.000 (8. – 12. ágúst)
  • Vika 3 – kr. 7.000 (15. – 19. ágúst)

Ef allar vikur eru teknar kostar það 18.000 kr. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Afreksskólinn

Handknattleiksdeild Gróttu verður einnig með sérstakan afreksskóla en hann er starfræktur frá, 2. – 19. ágúst fyrir iðkendur sem verða í 5. og 4.flokki næsta vetur (f. 2007-2010).

Æfingar fara fram á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 12:30- 14:00. Í afreksskólanum verður að miklu leyti farið í flóknari tækniatriði en í handboltaskólanum og meiri afrekshugsun í fyrirrúmi.

Verð:

  • Vika 1 – kr. 5.500 (2. – 5. ágúst)
  • Vika 2 – kr. 5.500 (8.-12. ágúst)
  • Vika 3 – kr. 5.500 (15. – 19. ágúst)

Ef allar vikurnar eru teknar þá kostar það 12.500 kr

Afreksskólanum lýkur með grillveislu fyrir alla þátttakendur föstudaginn 19.ágúst. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Fimleika- og leikjaskóli Gróttu

Fimleikadeildin verður með fimleika- og leikjaskóla fyrir 6-9 ára krakka (fædd 2013-2016) í sumar.

Námskeiðin verða frá kl. 9:00 – 16:00 alla virka daga og standa yfir í viku í senn. Fyrir hádegi verður farið í fimleika frá kl. 09:00 – 12:00 með smá nestispásu kl. 10:30 og eftir hádegi verður farið í ýmsa leiki bæði úti og inni. Boðið verður upp á gæslu frá kl. 08:30 – 09:00.

Í fimleikunum verða börnunum skipt í hópa eftir aldri og færni í fimleikaæfingum. Börnin eiga að mæta á námskeiðið með fimleikafatnað með sér og klædd eftir veðri. Þau þurfa að hafa með sér kjarngott nesti yfir daginn.

Umsjón með námskeiðunum hefur Hrafnhildur Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri og þjálfari fimleikadeildarinnar.

Námskeiðin eru sem hér segir.

  • 13. – 16. Júní (4 dagar)
  • 20. – 24. júní
  • 27. júní – 1. júlí
  • 4. – 8. Júlí
  • 11. – 15. júlí
  • 2. – 5. ágúst (4 dagar)
  • 8. – 12. ágúst
  • 15. – 19. Ágúst

Námskeiðsgjald fyrir hverja viku (5 daga allan daginn) er 17.000 kr. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Vinsamlega athugið að takmarkað pláss er á námskeiðunum. Jafnframt áskilur fimleikadeildin sér rétt til að fella niður námskeiðið náist ekki næg þátttaka.

Sumarnámskeið í hópfimleikum fyrir börn fædd 2009-2013

Fimleikadeildin verður með hópfimleikanámskeið fyrir iðkendur á aldrinum 9 – 13 ára í sumar. Námskeiðin verða frá mánudegi til fimmtudags kl. 11:30-13:30. Lagt verður áhersla í undirstöðuatriðum í hópfimleikum og krakkarnir æfa sig í dansi, dýnustökkum og æfingum á trampólíni.

Námskeiðin verða sem hér segir:

  • 13. – 16. júní
  • 20. – 23. júní
  • 27. júní – 30. júní
  • 8. – 11. ágúst
  • 15. – 18. ágúst

Námskeiðsgjald fyrir hverja viku (4 daga) er kr. 6.000. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta
Vinsamlega athugið að takmarkað pláss er á námskeiðunum. Jafnframt áskilur fimleikadeildin sér rétt til að fella niður námskeiðið náist ekki næg þátttaka.

Leikjanámskeið fyrir börn sem eru fædd árin 2015 og 2014

Á leikjanámskeiðunum verður efniviðurinn sóttur í nær umhverfið og börnin æfa sig í að umgangast dýr og menn á Seltjarnarnesinu. Börnin á námskeiðum munu fara í sundferðir og skoðunarferðir. Áhersla verður lögð á útileiki og skapandi vinnu með börnunum.

Öll námskeið sumarsins verða þematengd þannig mun hvert námskeið verða ólíkt því næsta. Skipulögð dagskrá er frá klukkan 9:00 – 16:00, en boðið er upp á viðveru frá klukkan 8:00 – 9:00 og 16:00 -16:30. Þeir sem óska eftir gæslu frá kl. 8:00 eða lengri viðveru til kl. 16:30. Vinsamlegast senda póst á thelmas@seltjarnarnes.is

Þátttakendur þurfa að hafa með sér kjarngott nesti, sundföt, hlífðarfatnað og annan fatnað er hæfir veðri og viðburðum hverju sinni. Það eru vandaðir leiðbeinendur á námskeiðunum auk aðstoðarfólks frá vinnuskóla.

Námskeiðin verða sem hér segir:

  • 9. júní – 16. júní (Síðasti dagur skráningar er 2. júní)
  • 20. júní – 1. júlí (Síðasti dagur skráningar er 15. júní)
  • 4. júlí – 15. júlí (Síðasti dagur skráningar er 29. júní)
  • 8. ágúst – 19. ágúst (Síðasti dagur skráningar er 20. júlí)

Hægt er að velja heilan eða hálfan dag. Athugið að lágmarksþátttaka þarf til að námskeiðið sé haldið (5 þátttakendur).

Verð kr. 15.000 allur dagurinn (9:00-16:00, miðað við 10 daga). Verð kr. 8.000 hálfur dagurinn (9:00-12:00 eða 13:00-16:00, miðað við 10 daga).

Mæting: Mýrarhúsaskóli í júní, júlí og ágúst.

Innritun og greiðsla á leikjanámskeið fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Ævintýranámskeið fyrir börn sem eru fædd árin 2013 og 2012

Á ævintýranámskeiðunum munu verður lögð áhersla á hópefli, leiki, útiveru og ævintýri. Börnin fá tækifæri til takast á við skapandi verkefni á borð við tónlist, leiklist og myndlist. Þátttakendur munu fara í vettvagnsferðir á áhugaverða staði og sundferðir sem svíkja engan.

Öll námskeið sumarsins verða þematengd þannig mun hvert námskeið verða ólíkt því næsta. Skipulögð dagskrá er frá klukkan 9:00 – 16:00, en boðið er upp á viðveru frá klukkan 8:00 – 9:00 og 16:00 -16:30. Þeir sem óska eftir gæslu frá kl. 8:00 eða lengri viðveru til kl. 16:30. Vinsamlegast senda póst á thelmas@seltjarnarnes.is

Þátttakendur þurfa að hafa með sér kjarngott nesti, sundföt, hlífðarfatnað og annan fatnað er hæfir veðri og viðburðum hverju sinni. Það eru vandaðir leiðbeinendur á námskeiðunum auk aðstoðarfólks frá vinnuskóla.

Námskeiðin verða sem hér segir:

  • 9. júní – 16. júní (Síðasti dagur skráningar er 2. júní)
  • 20. júní – 1. júlí (Síðasti dagur skráningar er 15. júní)
  • 4. júlí – 15. júlí (Síðasti dagur skráningar er 29. júní)
  • 8. ágúst – 19. ágúst (Síðasti dagur skráningar er 20. júlí)

Hægt er að velja heilan eða hálfan dag. Athugið að lágmarksþátttaka þarf til að námskeiðið sé haldið (5 þátttakendur).

Verð kr. 15.000 allur dagurinn (9:00-16:00, miðað við 10 daga). Verð kr. 8.000 hálfur dagurinn (9:00-12:00 eða 13:00-16:00, miðað við 10 daga).

Mæting: Mýrarhúsaskóli í júní og júlí. Valhúsaskóli í ágúst

Innritun og greiðsla á ævintýranámskeið fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Survivor–námskeið

Survivornámskeið fyrir börn fædd 2011 – 2009 verður haldið á vegum Seltjarnarnesbæjar

Survivor þema verður á námskeiðinu. Það verða búnir til tveir ættbálkar sem taka þátt í ýmsum þrautum.

Námskeiðin verða sem hér segir:

  • 9. júní – 16. júní (Síðasti dagur skráningar er 2. júní)
  • 20. júní – 1. júlí (Síðasti dagur skráningar er 15. júní)
  • 4. júlí – 15. júlí (Síðasti dagur skráningar er 29. júní)

Á námskeiðunum verður einnig farið í bátsferð, hjólreiðaferð, sund og íþróttir auk þess sem gist verður í tjaldi/skála yfir eina nótt. Dagskrá námskeiðsins er frá klukkan 10:00-13:00 og þátttakendur þurfa að hafa með sér nesti og hlýjan fatnað.

Staðsetning: Valhúsaskóli

Verð kr. 9.000 miðað við 10 daga.

Smíðavöllur

Í sumar verður starfræktur smíðavöllur á vegum bæjarins fyrir börn fædd 2013 og eldri

Í sumar verður starfræktur smíðavöllur á vegum bæjarins fyrir börn fædd 2013 og eldri. Völlurinn verður staðsettur við Valhúsaskóla og er starfræktur í júní en völlurinn er opinn frá kl. 9:00 – 12:00 og 13:00 – 16:00 daglega.

Smíðavöllurinn hefst mánudaginn 13. júní og er tímabilið til 1. júlí. Síðasti dagur skráningar er 2. júní.

Verð kr. 9.000 | Staðsetning: Valhúsaskóli

Ath! Þátttakendur eru á eigin vegum og geta því komið og farið að vild. Innifalið í verði er efniviður, naglar og verkfæri ásamt aðstoð frá leiðbeinanda.

Innritun og greiðsla á smíðavöllinn fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Knattspyrnuskóli 2022

Fyrir krakka fædda 2012 til 2016

Allir eru velkomnir í Knattspyrnuskóla Gróttu, jafnt iðkendur sem hafa æft lengi sem og krakkar sem hafa áhuga á að prófa fótbolta í fyrsta skipti. Knattspyrnuskólinn hefur verið starfræktur samfellt frá árinu 1986 og hlotið gæðavottun KSÍ ár eftir ár.

Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á Vivaldivellinum við Suðurströnd frá 09:00 – 12:00 alla virka daga frá skólalokum til verslunarmannahelgar. Tekið er á móti börnunum frá 08:00 og verða börn fædd 2016 sótt í leikskólann og þeim fylgt til baka að námskeiði loknu.

Skólastjóri knattspyrnuskólans verður Gabríel Hrannar Eyjólfsson, leikmaður meistaraflokks karla og þjálfari 4.fl. og 6.fl. karla ásamt góðu föruneyti þjálfara og unglinga. Lögð verður áhersla á að kenna fótbolta í gegnum skemmtilega leiki og æfingar og verður ýmislegt til gamans gert á öllum námskeiðunum.

  • Námskeið 1: 9. júní – 16. júní (6 dagar) kr. 6.000
  • Námskeið 2, 20. júní – 1. júlí (2 vikur) kr. 12.000
  • Námskeið 3, 4. júlí – 15. júlí (2 vikur) kr. 12.000
  • Námskeið 4, 18. júlí – 29. júlí (2 vikur) kr. 12.000

Líkt og árið 2021 verða æfingar hjá 7. flokki beint á eftir knattspyrnuskólanum eða kl. 12:00. Krakkar sem eru á leikjanámskeiði eftir hádegi hafa tíma eftir æfingu til að koma sér á leikjanámskeiðið og tíma fyrir æfingu til að borða hádegismat.

Innritun og greiðsla í knattspyrnuskólann fer fram í gegnum sportabler.com/shop/grotta

Sumarnámskeið fyrir 4. og 5. flokk

Fyrir krakka fædda 2008-2011 mun Knattspyrnudeild Gróttu bjóða upp á sumarnámskeið fyrir 4. og 5. flokk sem verða auglýst síðar.

Fyrir nánari upplýsingar veitir skrifstofa Grótta. Síma 561-1133 á milli kl 13:00 og 16:00 eða með því að senda tölvupóst á netfangið gullijons@grotta.is