Gróttumennirnir Kjartan Kári Halldórsson og Kári Daníel Alexandersson hafa verið valdir í hóp U19 ára landsliðsins sem mætir mætir U19 og U21 ára liðum Færeyja í tveimur vináttuleikjum í júní.
Liðið mætir U21 ára liði Færeyja 3. júní og hefst sá leikur kl. 16:30 að íslenskum tíma. U19 ára lið þjóðanna mætast svo 6. júní og hefst sá leikur kl. 14:00 að íslenskum tíma. Báðir leikirnir fara fram í Svangaskarði. Leikirnir verða fyrstu leikir liðsins undir stjórn Ólafs Inga Skúlasonar.
Knattspyrnudeild Gróttu óskar Kjartani og Kára innilega til hamingju með valið !
7. flokkur karla og kvenna spilaði á Cheerios móti Víkings helgina 15. og 16. maí í sól og blíðu í Fossvoginum. 7. flokkur kvenna var með fjögur lið á mótinu og 7. flokkur karla fór með sex lið. Krakkarnir stóðu sig með eindæmum vel á mótinu og fóru heim með bros á vör og Cheerios pakka í fararteskinu.
Stelpurnar í 6. flokki kvenna áttu góða ferð í Fossvoginn s.l. sunnudag þar sem þær léku á Cheerios móti Víkings Grótta fór með fjögur lið á mótið og stóðu stelpurnar sig gríðarlega vel!
Knattspyrnudeild Gróttu hefur náð samkomulagi við IF Elfsborg um að Hákon Rafn Valdimarsson markvörður gangi til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið í félagaskiptaglugganum í sumar, að uppfylltum nánari skilmálum samningsins.
Hákon er 19 ára gamall en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið aðalmarkvörður Gróttu undanfarin þrjú tímabil. Hákon spilaði sinn fyrsta leik fyrir Gróttu árið 2017 en hann á að baki 61 leik fyrir félagið og hefur leikið í þremur efstu deildum með liðinu. Auk þess hefur Hákon leikið með U-19 ára landsliðinu sem og U-18 ára og var einnig í lokahópi U21-árs landsliðsins sem tók þátt á EM í mars síðastliðnum.
Knattspyrnudeild Gróttu óskar Hákoni innilega til hamingju með samninginn og hlakkar til að fylgjast með ævintýrum hans í Svíþjóð á komandi misserum.
María Lovísa Jónasdóttir og Eva Karen Sigurdórsdóttir hafa framlengt samninga sína við Gróttu og þá hefur Nína Kolbrún Gylfadóttir einnig skrifað undir nýjan samning.
María Lovísa er Gróttufólki að góðu kunn en hún er uppalin á Nesinu og spilaði sína fyrstu leiki með meistaraflokki árið 2019. Hún kom svo við sögu í öllum leikjum Gróttu í fyrra og hefur nú skorað 11 mörk í 31 meistaraflokksleik.
Eva Karen gekk til liðs við Gróttu í ágúst í fyrra, þá nýbúin með endurhæfingu eftir krossbandsslit. Eva lék fjóra leiki með 2. flokki í fyrra sem fagnaði sigri í B-deild Íslandsmótsins. Á árinu 2021 hefur Eva svo stimplað sig inn í meistaraflokk og verður í eldlínunni með Gróttu fram í ágúst þegar hún flytur til Texas til að stunda nám og spila fótbolta í Lamar háskóla.
Nína Kolbrún er uppalin hjá Val en hún hefur ekki leikið fótbolta á Íslandi frá árinu 2017, meðal annars vegna erfiðra meiðsla. Nína hefur komið feikilega sterk inn í Gróttuliðið á síðustu vikum og mánuðum og er það því mikið gleðiefni að hún sé ákveðin í að spila í bláu næstu tímabilin.
Pétur Rögnvaldsson, annar þjálfara Gróttu fagnar því að stelpurnar hafi skrifað undir: „Það eru frábær tíðindi fyrir Gróttu að búið sé að semja við Maríu, Evu og Nínu. Allar hafa þær staðið sig vel á síðustu mánuðum og eru mikilvægir hlekkir í Gróttuliðinu. Við hlökkum mikið til að vinna með þeim áfram næstu árin.“
Grótta lék við Fram í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins í kvöld og vann öruggan 4-0 sigur. Diljá Mjöll Aronsdóttir kom Gróttukonum snemma yfir með marki úr vítaspyrnu. María Lovísa Jónasdóttir jók forystu Gróttu á 34’ mínútu og Bjargey Sigurborg Ólafsson bætti svo við þriðja markinu á 55’ mínútu. Í blálokin skoraði síðan Diljá Mjöll Aronsdóttir sitt annað mark beint úr aukaspyrnu! Stelpurnar eru því komnar áfram í aðra umferð Mjólkurbikarsins og spila við Aftureldingu eða Hauka sunnudaginn 16. maí.
Knattspyrnudeild Gróttu hefur náð samkomulagi við IF Elfsborg um að Hákon Rafn Valdimarsson markvörður gangi til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið í félagaskiptaglugganum í sumar, að uppfylltum nánari skilmálum samningsins.
Hákon er 19 ára gamall en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið aðalmarkvörður Gróttu undanfarin þrjú tímabil. Hákon spilaði sinn fyrsta leik fyrir Gróttu árið 2017 en hann á að baki 61 leik fyrir félagið og hefur leikið í þremur efstu deildum með liðinu. Auk þess hefur Hákon leikið með U-19 ára landsliðinu sem og U-18 ára og var einnig í lokahópi U21-árs landsliðsins sem tók þátt á EM í mars síðastliðnum.
Knattspyrnudeild Gróttu óskar Hákoni innilega til hamingju með samninginn og hlakkar til að fylgjast með ævintýrum hans í Svíþjóð á komandi misserum.
Þau gleðitíðindi bárust í gær að boðaðar voru rýmri samkomutakmarkanir. Nýjar reglur taka gildi á miðnætti í kvöld. Þetta þýðir að íþróttaæfingar mega hefjast án takmarkana og íþróttakeppni er leyfð með 100 áhorfendum.
Allar æfingar hefjast samkvæmt tímatöflum á morgun fimmtudaginn 15. apríl. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að fylgjast vel með á Sportabler.
Áfram biðjum við iðkendur, þjálfara og aðra þá sem erindi kunna að eiga í íþróttamannvirkin okkar að mæta ekki finni þeir fyrir minnstu einkennum veikinda.
Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að koma ekki inn í íþróttamannvirkin.
Við hlökkum til að taka á móti iðkendum okkar aftur á morgun.
Þrír ungir leikmenn fæddar árið 2005 hafa skrifað undir tveggja ára samninga við Gróttu, þær Elín Helga Guðmundsdóttir, Lilja Lív Margrétardóttir og Lilja Davíðsdóttir Scheving.
Lilja Lív steig sín fyrstu skref með meistaraflokki fyrir rúmu ári. Hún spilaði mikið á undirbúningstímabilinu og lék svo 8 leiki í deild og bikar. Lilja hefur síðustu mánuði æft reglulega með U16 ára landsliði Íslands.
Lilja Scheving spilaði tvo leiki með meistaraflokki í fyrra en kom svo af krafti inn í Gróttuliðið á þessu undirbúningstímabili. Hún æfði á dögunum með U16 landsliðinu en lenti í því óláni að fá höfuðhögg í lok febrúar sem hefur haldið henni frá keppni síðustu vikur.
Elín Helga var líkt og Lilja og Lilja lykilkona í 3. flokki Gróttu/KR sem komst í úrslitaleik Íslandsmótsins síðasta haust. Elín hefur komið af krafti inn í æfingahóp Gróttu í vetur og komið við sögu í flestum leikjum það sem af er þessu undirbúningstímabili.
Við sama tilefni skrifaði Eydís Lilja Eysteinsdóttir undir sinn fyrsta samning við Gróttu. Eydís var lykilleikmaður í Gróttuliðinu árin 2017 og 2018 en spilaði ekkert árið 2019 vegna barneigna. Eydís vann sig hægt og bítandi inn í Gróttuliðið í fyrra og skoraði þegar upp var staðið 4 mörk í 13 leikjum. Í vetur hefur Eydís verið í stuði í framlínu Gróttu og skorað sex mörk í fyrstu sjö leikjum undirbúningstímabilsins. Eydís, sem er uppalin í Stjörnunni, er 28 ára gömul og er elsti leikmaður Gróttuliðsins!
Óliver Dagur Thorlacius og Valtýr Már Michaelsson hafa framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Gróttu til tveggja ára. Valtýr og Óliver eru báðir uppaldir í Vesturbænum og stigu sín fyrstu skref með KR í Pepsi Max deildinni áður en þeir komu yfir í Gróttu árið 2018 þar sem þeir hafa verið síðan. Óliver Dagur er 22 ára miðjumaður sem hefur spilað 65 leiki fyrir Gróttu og skorað í þeim 20 mörk. Valtýr Már er 22 ára miðjumaður sem á að baki 39 leiki með Gróttu og hefur skorað í þeim 6 mörk.
Samningarnir við Óliver og Valtýr eru mikið fagnaðarefni fyrir knattspyrnudeild Gróttu og alla stuðningsmenn félagsins.