Stubbafimi er ætluð yngstu iðkendunum. Áhersla lögð á grundvallarhreyfigetu og líkamsvitund með fjölbreyttum æfingum. Skráning fer fram í gegnum Sportabler.
Halda áfram að lesaKvennakvöld Gróttu – Vinningaskrá og myndaalbúm
Happdrættið á kvennakvöldi Gróttu var hið glæsilegasta og meira en 50 fyrirtæki gáfu vinning. Eftirfarandi númer voru dregin út og er hægt að vitja vinninga á skrifstofu Gróttu.
Halda áfram að lesaSkáknámskeiðin byrja á morgun
Skáknámskeiðin byrja á morgun (þriðjudag 8. nóv)
Alls verða þetta 6 skipti, einn klukkutími í senn / síðasti tími er 13. desember.
Kennt verður í hátíðarsalnum í íþróttahúsi Gróttu.
Námskeið verða á þriðjudögum.
Yngri frá kl. 14:00-15:00
Eldri frá kl. 15:00-16:00.
Boðið verður upp á tvo aldursflokka:
Yngri (1.-3. bekkur/fædd 2014-2016) Skráning:
https://www.sportabler.com/…/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTQyMTQ=?
Eldri (4.-7. bekkur/fædd 2010-2013) Skráning:
https://www.sportabler.com/…/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTQyMTU=?
Fjöldi á hvoru námskeiði verða 16 krakkar og það er enn pláss í báða aldurshópa.
Verð: 5000 kr.
Kennari: Daði Ómarsson
Styrktar- og liðleikaþjálfun námskeið
Hentar vel íþróttakrökkum úr boltaíþróttum. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á styrk, liðleika, samhæfingu og aukna hreyfifærni. Námskeiðið er 5 vikur og verður kennt í fimleikasal Gróttu.
Halda áfram að lesaGrótta er fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Íþróttafélagið Grótta fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á fundi aðalstjórnar í vallarhúsi Gróttu miðvikudaginn 2. nóvember síðastliðinn.
Það var Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ sem afhenti viðurkenningarnar til fulltrúa aðalstjórnar og allra deilda félagsins, þ.e. knattspyrnu-, handknattleiks- og fimleikadeildar. Félagið hlaut fyrst viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ árið 2005.
Á hópmyndinni eru frá vinstri, Andri Stefánsson, Guðjón Rúnarsson formaður fimleikadeildar, Arnkell Bergmann Arnkelsson formaður handknattleiksdeildar, Þröstur Þór Guðmundsson formaður Íþróttafélagsins Gróttu, Þorsteinn Ingason formaður knattspyrnudeildar og Gunnlaugur Jónsson íþróttastjóri félagsins.
Eyjólfur Garðarsson tók myndir við þetta tilefni.
„Við hjá Íþróttafélaginu Gróttu erum stolt og þakklát fyrir að fá viðurkenningu ÍSÍ sem Fyrirmyndarfélag. Það er afar mikilvægt fyrir félagið að ná þessu markmiði enda keppist Grótta við að vera til fyrirmyndar á öllum sviðum“, sagði Þröstur Þór formaður félagsins af þessu tilefni.
Herrakvöld Gróttu er 29. okt
Herrakvöld Gróttu verður haldið í hátíðarsalnum laugardagskvöldið 29 október.
Geggjuð dagskrá er að taka á sig mynd, veislustjóri verður Gunnar á Völlum, Freyr Eyjólfsson verður með gamanmál og Þór Sigurgeirsson verður ræðumaður kvöldsins.
Boðið verður upp á kótilettur og nóg af þeim.
Miðasala er hafin á https://tix.is/is/event/14181/herrakvold-grottu/
Kvennakvöld Gróttu
Kvennakvöld Gróttu verður haldið í hátíðarsal félagsins laugardagskvöldið 5. nóvember næstkomandi.
Halda áfram að lesaÁsdís Hjálmsdóttir ræddi við þjálfara Gróttu
Árlegur haust fundur fyrir þjálfara félagasins var haldin í gærkvöldi. Í byrjun fór íþróttastjóri félagsins yfir praktísk mál og skilaboð frá skrifstofunni.
Halda áfram að lesaCRAFT VEFVERSLUN
Nú er samstarfið okkar við hið sænska fatamerki Craft komin í fullan gang. Fimleika- og handboltadeild hafa lokið mátunardögum en það er ekki orðið klárt hvernig búningamálum verður háttað hjá knattspyrnudeild.
Ný vefverslun fyrri Craft hefur verið opnuð craftverslun.is og þar er að finna svæði tengt okkar vörum.
2. flokkur karla upp um deild
Það var frábær stemning á Vivaldivellinum í kvöld og fjöldi fólks í stúkunni þegar 2. flokkur karla tryggði sér sæti í B-deild Íslandsmótsins. Andstæðingar Gróttu var lið KR2 sem tefldi fram nokkrum sterkum leikmönnum í leiknum, þar sem jafnræði var með liðunum fyrsta hálftímann.
Grótta skoraði tvö mörk rétt fyrir leikhlé og í byrjun seinni hálfleiks gerðu strákarnir út um leikinn og komust í 4-0. Kjartan Kári Halldórsson var með tvö mörk, Benjamin Friesen með eitt og eitt markanna var sjálfsmark. Halldór Orri Jónsson skoraði rétt fyrir leikslok og tryggði Gróttu 5-0 sigur og mikil gleði braust út í leikslok. Í sumar hefur liðsheildin í 2. flokknum verið sterk og leikmenn A- og B-liðsins staðið vel við bakið hvor á öðrum. Tímabilið er ekki alveg búið því á laugardaginn leika strákarnir við Selfoss í úrslitaleik um sigur í C-deild.
Við óskum strákunum og þjálfurum þeirra, Arnari Þór Axelssyni og Dom Ankers, innilega til hamingju með árangurinn.
Eyjólfur Garðarsson ljósmyndari var á sínum stað á vellinum og hér er að finna stórglæsilegt albúm frá leiknum.











