Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að í gær var gengið frá ráðningum á nýjum þjálfurum hjá yngri flokkum félagsins, auk þess sem ný staða hefur verið tekin upp.
Halda áfram að lesaVivaldi framlengir styrktarsamning sinn
Vivaldi á Íslandi hefur gert tveggja ára styrktarsamning við knattspyrnudeild Gróttu vegna barna- og unglingastarf deildarinnar. Samkvæmt samningnum munu vörumerkin Vivaldi og Arna prýða keppnisbúninga yngri flokka Gróttu næstu tvö árin.
Samningurinn er lyftistöng fyrir starfið í félaginu og með honum hefur Jón von Tetzchner forsvarsmaður fyrirtækisins enn og aftur sýnt í verki mikilvægan stuðning við uppeldisfélagið sitt.
Við tilefnið afhenti Bragi Björnsson, formaður Gróttu, Jóni bronsmerki félagsins sem honum var veitt í byrjun árs, fyrir stuðning sinn við knattspyrnudeildina í gegnum árin.
5. fl. kvk deildarmeistarar
Stelpurnar í 5. flokki kvenna, yngra ár, urðu deildarmeistarar á Ásvöllum og spila því í 1.deild í Vestmannaeyjum í mars.
Halda áfram að lesa6. flokkur karla á Njarðvíkurmótinu og með bikar heim
6. flokkur karla skellti sér á Njarðvíkurmótið síðustu helgi. Grótta tefldi fram 5 liðum á mótinu en spilað var í Reykjaneshöllinni. Fallegur fótbolti og leikgleði var fremst í flokki og allir leikmenn stóðu sig með prýði. Lið Gróttu í Ensku-deildinni gerði sér svo lítið fyrir og vann sína deild á mótinu ???
7. flokkur kvenna á fótboltamóti HK og Auðar
Jóla softball mót 5. flokk
5. flokkar Gróttu héldu sameiginlegt jóla – softball mót seinasta föstudag.
Halda áfram að lesa6. flokkur karla á Keflavíkurmóti
7. flokkur karla og kvenna á Krónumóti HK
7. flokkar Gróttu skemmtu sér vel á Krónumóti HK helgina 16.-17. nóvember. 7. flokkur karla spilaði í Kórnum á laugardeginum og tefldu drengirnir fram sjö liðum en stelpurnar spiluðu í fimm liðum á sunnudeginum.
Þetta var fyrsta vetrarmótið hjá flokkunum og því mikil tilhlökkun sem stóðst allar væntingar. Sigrar, töp en umfram allt mikil stemning.
Grótta og KR endurnýja samstarfið í 2. og 3. flokki kvenna
Knattspyrnudeildir Gróttu og KR hafa náð samkomulagi um áframhaldandi samstarf í 2. og 3. flokki kvenna.
Halda áfram að lesaJóna, Þorbjörg og Rut í Hæfileikamótun KSÍ
Þrjár Gróttustelpur hafa verið valdar til að taka þátt í Hæfileikamótun N1 og KSÍ sunnudaginn 17. nóvember.
Halda áfram að lesa














