Sumarnámskeið Gróttu sumarið 2024

Sumarstarfið verður með hefðbundnu sniði og verður gott framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6 -18 ára á Seltjarnarnesi, líkt og undanfarin ár.

Innritun og greiðsla fer fram í gegnum abler.io/shop/grotta

Fyrir nánari upplýsingar veitir skrifstofa Grótta. Síma 561-1133 á milli kl 13:00 og 16:00 eða með því að senda tölvupóst á netfangið grotta@grotta.is

  • Leikjanámskeið (fyrir börn fædd 2016 og 2017)
  • Ævintýranámskeið (fyrir börn fædd 2014 og 2015)
  • Survivor-námskeið (fyrir börn fædd 2013 – 2011)


Leikjanámskeið fyrir börn sem eru fædd árin 2016 og 2017

Á leikjanámskeiðunum verður efniviðurinn sóttur í nær umhverfið og börnin æfa sig í að umgangast dýr og menn á Seltjarnarnesinu. Börnin á námskeiðum munu fara í sundferðir og skoðunarferðir. Áhersla verður lögð á útileiki og skapandi vinnu með börnunum.

Öll námskeið sumarsins verða þematengd þannig mun hvert námskeið verða ólíkt því næsta. Skipulögð dagskrá er frá klukkan 9:00 – 16:00, en boðið er upp á viðveru frá klukkan 8:00 – 9:00 og 16:00 -16:30. Greiða þarf sérstaklega um þá þjónustu.

Þátttakendur þurfa að hafa með sér kjarngott nesti, sundföt, hlífðarfatnað og annan fatnað er hæfir veðri og viðburðum hverju sinni. Það eru vandaðir leiðbeinendur á námskeiðunum auk aðstoðarfólks frá vinnuskóla.

Námskeiðin verða sem hér segir:

  • Námskeið 1: 10. – 14. júní
  • Námskeið 2: 18. – 21. júní (4 dagar)
  • Námskeið 3: 24. – 28. júní
  • Námskeið 4: 1. – 5. júlí
  • Námskeið 5: 8. – 12. júlí
  • Námskeið 6: 6. – 9. ágúst (4 dagar)
  • Námskeið 7: 12. – 16. ágúst

ATH: lágmarksþáttaka til að námskeið sé haldið miðast við 10 þátttakendur

Hægt er að velja heilan dag eða hálfan dag eftir hádegi:

  • Allur dagurinn (09:00-16:00) – Verð kr. 12.500 (m.v 5 daga).
  • Hálfur dagurinn eftir hádegi (13:00-16:00) – Verð kr. 5.500 (miðað við 5 daga).
  • Gæsla frá 08:00-09:00 og 16:00-16:30 – Verð kr. 2.200 (miðað við 5 daga).

Staðsetning námskeiðs ekki komin á hreint og verður tilkynnt forráðamönnum þegar nær dregur.

Innritun og greiðsla á eftirfarandi námskeið fer fram í gegnum abler.io/shop/grotta


Ævintýranámskeið fyrir börn sem eru fædd árin 2014 og 2015

Á ævintýranámskeiðunum munu verður lögð áhersla á hópefli, leiki, útiveru og ævintýri. Börnin fá tækifæri til takast á við skapandi verkefni á borð við tónlist, leiklist og myndlist. Þátttakendur munu fara í vettvangsferðir á áhugaverða staði og sundferðir sem svíkja engan.

Skipulögð dagskrá er frá klukkan 9:00 – 16:00. Hægt er að skrá sig sérstaklega í gæslu frá klukkan 8:00 – 9:00 og 16:00 -16:30. Greiða þarf sérstaklega fyrir þá þjónustu.

Þátttakendur þurfa að hafa með sér kjarngott nesti, sundföt, hlífðarfatnað og annan fatnað er hæfir veðri og viðburðum hverju sinni. Það eru vandaðir leiðbeinendur á námskeiðunum auk aðstoðarfólks frá vinnuskóla.

Námskeiðin verða sem hér segir:

  • Námskeið 1: 10. – 14. júní
  • Námskeið 2: 18. – 21. júní (4 dagar)
  • Námskeið 3: 24. – 28. júní
  • Námskeið 4: 1. – 5. júlí
  • Námskeið 5: 8. – 12. júlí
  • Námskeið 6: 6. – 9. ágúst (4 dagar)
  • Námskeið 7: 12. – 16. ágúst

ATH: lágmarksþáttaka til að námskeið sé haldið miðast við 10 þátttakendur

Hægt er að velja heilan dag eða hálfan dag eftir hádegi:

  • Allur dagurinn (09:00-16:00) – Verð kr. 12.500 (m.v 5 daga).
  • Hálfur dagurinn eftir hádegi (13:00-16:00) – Verð kr. 5.500 (miðað við 5 daga).
  • Gæsla frá 08:00-09:00 og 16:00-16:30 – Verð kr. 2.200 (miðað við 5 daga).

Staðsetning námskeiðs ekki komin á hreint og verður tilkynnt forráðamönnum þegar nær dregur.

Innritun og greiðsla á eftirfarandi námskeið fer fram í gegnum abler.io/shop/grotta


Survivor–námskeið fyrir börn fædd 2013 – 2011

Survivor þema verður á námskeiðinu. Það verða búnir til tveir ættbálkar sem taka þátt í ýmsum þrautum.

Námskeiðin verða sem hér segir:

  • Námskeið 1: 10. júní – 14. júní – verð 9.000 kr.
  • Námskeið 2: 18. júní – 28. júní – verð 16.200 kr.
  • Námskeið 3: 1. júlí – 12. júlí – verð 18.000 kr.

Staðsetning námskeiðs ekki komin á hreint og verður tilkynnt forráðamönnum þegar nær dregur.

Á námskeiðunum verður einnig farið í bátsferð, hjólreiðaferð, sund og íþróttir auk þess sem gist verður í tjaldi/skála yfir eina nótt. Dagskrá námskeiðsins er frá klukkan 10:00-13:00 og þátttakendur þurfa að hafa með sér nesti og hlýjan fatnað.

Verð: kr. 9000 m.v. 5 daga.

Takmarkaður fjöldi: aðeins 20 sæti

*ATH: lágmarksþáttaka til að námskeið sé haldið miðast við 10 þátttakendur

Innritun og greiðsla á eftirfarandi námskeið fer fram í gegnum: abler.io/shop/grotta


ÍÞRÓTTANÁMSKEIÐ 2024 – SKRÁNING ER HAFIN Á ÖLL ÍÞRÓTTANÁMSKEIÐ

Fimleika- og leikjaskóli

Fimleikadeildin verður með fimleika- og leikjaskóla fyrir 6-10 ára krakka (fædd 2014 – 2018) í sumar.
Námskeiðin verða frá kl. 9:00 – 16:00 alla virka daga og standa yfir í viku í senn.

Fyrir hádegi verður farið í fimleika frá kl. 09:00 – 12:00 með smá nestispásu kl. 10:30 og eftir hádegi verður farið í ýmsa leiki bæði úti og inni. Boðið verður upp á gæslu frá kl. 08:30 – 09:00.

Í fimleikunum verða börnunum skipt í hópa eftir aldri og færni í fimleikaæfingum. Börnin eiga að mæta á námskeiðið með fimleikafatnað með sér og klædd eftir veðri. Þau þurfa að hafa með sér kjarngott nesti yfir daginn.

Eftir hádegi er er misjafnt eftir dögum hvað er gert eftir hádegi. Fjöru, hjóla, vettvangs og sundferðir. Farið verður í skemmtilegir leikir á hoppu dýnuna og fleira.

Umsjón með námskeiðunum hefur Valgerður Thoroddsen þjálfari fimleikadeildarinnar.

Námskeiðin eru sem hér segir:

  • Námskeið 1: 10. – 14. júní
  • Námskeið 2: 18. – 21. júní (4 dagar)
  • Námskeið 3: 24. – 28. júní
  • Námskeið 4: 1. – 5. júlí
  • Námskeið 6: 6. – 9. ágúst (4 dagar)
  • Námskeið 7: 12. – 16. ágúst

Námskeiðsgjald fyrir hverja viku (5 daga allan daginn) er 19.700 kr og verð fyrir gæslu 2.200 kr.

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum abler.io/shop/grotta

Vinsamlega athugið að takmarkað pláss er á námskeiðunum. Jafnframt áskilur fimleikadeildin sér rétt til að fella niður námskeiðið náist ekki næg þátttaka.


HANDBOLTASKÓLI GRÓTTU/KR

Í sumar verður boðið upp á handboltaskóla í þrjár og hálfa viku, þ.e. frá 29. júlí. – 21. ágúst.
Í handboltaskólanum, sem er fyrir börn fædd 2013-2018, verður börnum skipt eftir aldri til að koma til móts við þarfir hvers og eins. Farið verður í grunn atriði fyrir yngsta aldurshópinn og flóknari æfingar fyrir eldri hópa.

Vandað verður til verka við val á þjálfurum og leiðbeinendum við skólann, líkt og undanfarin ár. Meðal þeirra sem koma að þjálfuninni eru leikmenn og þjálfarar handknattleiksdeildar. Byrjendur eru sérstaklega velkomnir á þessi námskeið.

Skólinn verður alla daga frá kl. 09:00 – 12:00, en boðið verður upp á gæslu frá kl. 08:00 og að skóla loknum til kl. 13:00.
Handboltaskólanum lýkur með grillveislu fyrir alla þátttakendur föstudaginn 21. ágúst.

Verð og tímasetning:

  • Vika 1: 29. júlí – 2. ágúst, verð 10.000 kr.
  • Vika 2: 6. – 9. ágúst, verð 8.000 kr.
  • Vika 3: 12. – 16. ágúst, verð 10.000 kr.
  • Vika 4: 19. – 21. agúst, verð 6.000 kr.
  • Ef allar vikur eru teknar kostar það 29.000 kr.
  • Greiða þarf aukalega fyrir gæslu, vikan kostar 2.200 kr.

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum abler.io/shop/grotta


AFREKSSKÓLI HANDKNATTLEIKSDEILDAR GRÓTTU/KR

Handknattleiksdeild Gróttu verður með sérstakan afreksskóla en hann er starfræktur frá 6 – 21. ágúst fyrir iðkendur sem verða í 5. og 4.flokki næsta vetur (f. 2009-2012).

Æfingar fara fram á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 12:30- 14:00. Í afreksskólanum verður að miklu leyti farið í flóknari tækniatriði en í handboltaskólanum og meiri afrekshugsun í fyrirrúmi.

Verð:

  • Vika 1 – kr. 4.500 (6. – 8. ágúst)
  • Vika 2 – kr. 6.000 (12. – 15. ágúst)
  • Vika 3 – kr. 4.500 (19. – 21. ágúst)

Ef allar vikurnar eru teknar þá kostar það 12.000 kr
Afreksskólanum lýkur með grillveislu fyrir alla þátttakendur miðvikudaginn 21.ágúst.

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum abler.io/shop/grotta


KNATTSPYRNUSKÓLI GRÓTTU

Allir eru velkomnir í Knattspyrnuskóla Gróttu, jafnt iðkendur sem hafa æft lengi sem og krakkar sem hafa áhuga á að prófa fótbolta í fyrsta skipti. Knattspyrnuskólinn hefur verið starfræktur samfellt frá árinu 1986 og hlotið gæðavottun KSÍ ár eftir ár.

Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á Vivaldivellinum við Suðurströnd frá 09:00 – 12:00 alla virka daga frá 10. júní til 19. júlí. Í boði verður að skrá sig sérstaklega í gæslu sem verður frá 08:00. Börn fædd 2018 sótt í leikskólann og þeim fylgt til baka að námskeiði loknu.

Skólastjóri knattspyrnuskólans verður Grímur Ingi Jakobsson, leikmaður meistaraflokks karla og þjálfari 3.fl. karla ásamt góðu föruneyti þjálfara og unglinga. Lögð verður áhersla á að kenna fótbolta í gegnum skemmtilega leiki og æfingar og verður ýmislegt til gamans gert á öllum námskeiðunum.

  • Námskeið 1: 10. júní – 14. júní (5 dagar ) > 10.000 kr 
  • Námskeið 2: 18. júní – 21.júní (4 dagar) > 8.000 kr 
  • Námskeið 3: 24. júní – 28. júní (5 dagar) > 10.000 kr 
  • Námskeið 4: 1. júlí – 5. júlí (5 dagar) > 10.000 kr 
  • Námskeið 5: 8. júlí – 12. júlí (5 dagar) >10.000 kr 
  • Námskeið 6: 15.júlí – 19. júlí (5 dagar) >10.000 kr 

  • Námskeið 1-3: 10. júní – 28. júní (3 vikur ) > 23.800 kr 
  •  Námskeið 4-6: 1. júlí – 19. júlí (3 vikur ) > 25.500 kr  

*Börn fædd 2018 sótt í leikskólann

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum abler.io/shop/grotta

KNATTSPYRNU AKADEMÍA GRÓTTU

4. og 5. flokkur (Fyrir börn fædd 2010-2013)

Hver er næsti atvinnumaður/kona Gróttu??
Viltu læra að klára færin eins og Orri Steinn og Emelía, eða læra að rekja eins og Aufí og Tommi Jó?

Þrjár æfingar í viku: Þriðjudagar, miðvikudagar og föstudagar klukkan 10:00. Æfingunum stjórna þjálfarar meistaraflokka karla og kvenna og yfirþjálfarar yngri flokka!

Þriðjudagar: Klárum færi eins og Emelía og Orri. Einblínt verður á skottækni og að skora mörk.

Miðvikudagar: Rekjum eins og Tommi Jó og Aufí. Einblínt verður á að bæta boltatækni og boltameðferð.

Föstudagar: Leikdagur. Á föstudögum verður mikið spilað með það markmið að prófa og nýta það sem við lærðum á fyrri æfingum vikunnar.

Dagsetningar námskeiða:
Námskeið 1: 18. 19. 21. júní

Námskeið 2: 25. 26. 28. júní

Námskeið 3: 16. 17. 19. júlí

Verð 6.000kr námskeiðið

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum abler.io/shop/grotta

FRAMTÍÐARMARKMENN MEISTARAFLOKKS

Langar þig að verða eins og Hákon Rafn?

Komdu á markmannsnámskeið með markmannsþjálfara meistaraflokka Gróttu. Simon markmannsþjálfari Gróttu mun sjá um æfingarnar en hann var markmannsþjálfari hjá Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni. Honum til halds og trausts verður Hilmar Þór Helgason markmaður Fylkis í Bestu deildinni og uppalinn Gróttumaður

Æfingarnar verða að hluta til sérstök markmannsþjálfun með þjálfurum í bland við að taka þátt í akademíu æfingum.

Námskeið 1: 18. og 21. júní

Námskeið 2: 25. og 28. júní

Námskeið 3: 16. og 19. júlí

Allar æfingar klukkan 10:00

Verð 4.000kr námskeiðið

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum abler.io/shop/grotta