83% fjölgun iðkenda í barna- og unglingastarfi handboltans í Gróttu

Undanfarin sex ár hefur barna- og unglingaráð (BUR) handboltans í Gróttu lagt í markvissa vinnu við að efla og bæta starf sitt – og árangurinn er skýr. Fjöldi iðkenda í yngri flokkum (4–19 ára) hefur nær tvöfaldast, úr 219 árið 2020 í 400 árið 2026, aukning um 83% á sex árum. Þetta þýðir að 39% ungmenna (4-19 ára) á Seltjarnarnesi æfir handbolta. Þjálfarahópurinn telur 41, þar af er 40 þeirra uppalið Gróttufólk. Yfirþjálfarar eru tveir, báðir uppaldir innan félagsins.*

Handbolti hefur alltaf skipað stóran sess í lífi bæjarins. Við byggjum því á mjög góðum grunni og hefð innan bæjarfélagsins um handboltaiðkun. Í dag berum við einnig ábyrgð á handboltaiðkun barna- og unglinga í Vesturbænum. Þar höldum við úti starfi undir nafni KR fyrir iðkendur á aldrinum 6-9 ára en sameinumst undir fána Gróttu við 10 ára aldur.

Að baki vextinum standa skýr markmið og markvissar aðgerðir barna- og unglingaráðs:

  • Tryggja að starfið sé skipulagt og faglegt.
  • Hafa ánægða þjálfara, iðkendur og foreldra.
  • Fjölga iðkendum og gefa öllum jöfn tækifæri.
  • Fræða og efla þjálfara og iðkendur í leik og starfi.
  • Byggja starfið á Gróttufólki.
  • Bjóða upp á besta barna- og unglingastarf á landinu.

Okkar leiðarljós hefur alltaf verið að það eiga öll að geta æft handbolta í Gróttu, óháð getustigi eða félagslegri stöðu. Við viljum að öllum iðkendum og þjálfurum líði vel og fái tækifæri til að þroskast og ná framförum við hæfi. 

Með skýrri stefnu og aðgengilegu starfi höfum við gefið fleiri börnum tækifæri til að stunda handbolta og sinnum þannig hlutverki okkar sem öflug forvörn í uppeldi barna, um leið og við stuðlum að vexti félagsins.

Við hlökkum til að halda áfram að fjölga iðkendum í handboltanum og stuðla að frekari vexti deildarinnar.

Barna- og unglingaráð Gróttu í handbolta

*Tölur: Grótta, Abler og Hagstofa Íslands.