Það er gleðiefni að tilkynna að þeir Dom Ankers og Paul Western verða áfram þjálfarar knattspyrnudeildar Gróttu eftir farsælt sumar ??Englendingarnir Dom og Paul hófu störf í sumar hjá Gróttu og unnu þar með flestum flokkum félagsins ásamt því að bjóða upp á afreksæfingar. Á komandi tímabili mun Dom þjálfa 5. og 2. flokk karla og Paul 3. flokk karla og kvenna. Dom og Paul verða einnig báðir í þjálfarateymum meistaraflokks karla og kvenna.
Okkur er sönn ánægja að segja frá því að þær Bjargey Sigurborg Ólafsson, Edda Steingrímsdóttir, Jórunn María Þorsteinsdóttir, Nína Kolbrún Gylfadóttir, María Lovísa Jónasdóttir, Margrét Rán Rúnarsdóttir, Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir, Tinna Bjarkar Jónsdóttir og Patricia Dúa Thompson Landmark hafa skrifað undir samning við knattspyrnudeild Gróttu til næstu tveggja ára. Þær eru allar mikilvægir hlekkir í Gróttuliðinu og við hlökkum til að takast á við verkefnin sem framundan eru með þeim ?
Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp sem æfir dagana 3.-5. nóvember. Lilja Davíðsdóttir Scheving og Lilja Lív Margrétardóttir, leikmenn meistaraflokks kvenna, eru í hópnum ????
Kjartan Kári Halldórsson og Arnþór Páll Hafsteinsson hafa síðustu daga æft með Noregsmeisturum Bodö/Glimt. Þeir hafa æft með unglingaliðum félagsins en fengu í dag tækifæri til að æfa með aðalliðinu, daginn eftir frækinn 6-1 sigur Bodö/Glimt á Roma í Evrópudeildinni.
Gera má ráð fyrir að reynslan verði frábær fyrir Gróttumennina ungu en ferðin er þáttur í afreksstefnu Gróttu sem meðal annars felur í sér samvinnu með erlendum félögum.
Chris Brazell þjálfari meistaraflokks karla er ánægður fyrir hönd strákanna: „Grótta er lítið félag sem þarf að fara ótroðnar slóðir til að halda í við, og gera betur en önnur félög. Mikið fjármagn er ekki aðalatriðið í þróun ungra leikmanna og því stefnir Grótta að því að búa ungum leikmönnum sem eru að hefja sinn meistaraflokksferil besta umhverfi á landinu. Umræddir leikmenn (strákar og stelpur) geta verið uppaldir í Gróttu, lánsmenn frá öðrum félögum eða leikmenn sem við komum auga á (e. scouting) og fáum til liðs við okkur. Við viljum hjálpa ungum leikmönnum að bæta sig innan okkar raða og hjálpa þeim þannig að taka næstu skrefin á sínum knattspyrnuferli.
Hluti af þessari nálgun hjá Gróttu er að gefa ungum leikmönnum tækifæri til að fara í heimsóknir til atvinnumannafélaga og upplifa æfingar og umhverfi eins og það gerist best. Ég tel það alls ekki síðra en að fara á „trial“ þar sem pressan er mikil og skemmir oft upplifunina. Heimsóknir eins og Arnþór og Kjartan eru í núna bæta miklu við reynslubankann og geta hjálpað leikmönnum síðar meir að aðlagast og líða vel komist þeir út í atvinnumennsku.
Grótta fagnar samstarfinu við Bodö/Glimt. Reynslan er frábær fyrir strákana og við hlökkum til að eiga gott samband við félagið og starfsfólk þess
Rut Heiðarsdóttir, leikmaður 3. flokks kvenna, hefur verið valin í æfingahóp U16 ára landsliðsins sem æfir saman í Skessunni í Kaplakrika dagana 18.-19. október ??
Það er ánægjulegt að segja frá því að knattspyrnudeild Gróttu hefur gengið frá samningi við Pétur Rögnvaldsson sem aðalþjálfara meistaraflokks kvenna til næstu tveggja ára.
Hinn 28 ára gamla Pétur þarf ekki að kynna fyrir Gróttufólki en hann hefur þjálfað hjá knattspyrnudeildinni frá árinu 2015. Pétur var ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna í janúar 2019 og um haustið 2020 varð hann aðalþjálfari ásamt Magnúsi Erni. Pétur er með UEFA-B þjálfaragráðu og BSc gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Knattspyrnudeild Gróttu fagnar því að hafa Pétur áfram með meistaraflokk kvenna ??
Pétur Kári Hannesson hefur verið valinn í hóp leikmanna til æfinga í Hæfileikamótun N1 og KSÍ dagana 20.-22. október ???? Pétur Kári er á yngra ári í 3. flokki. Gangi þér vel Pétur!
Það er mikið gleðiefni fyrir knattspyrnudeild Gróttu að hafa gengið frá samningi við Chris Brazell sem aðalþjálfara meistaraflokks karla til næstu þriggja ára.
Hinn 29 ára gamli Chris hóf störf hjá knattspyrnudeildinni fyrir tveimur árum og hefur starfað sem yfirþjálfari yngri flokka síðan, ásamt því að hafa starfað sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla síðasta árið, í góðu samstarfi við Ágúst Þór Gylfason. Chris er með UEFA-A þjálfaragráðu og BA gráðu í alþjóðasamskiptum frá University of Lincoln. Chris starfaði í fjögur ár í akademíu enska úrvaldsdeildarliðsins Norwich City þar sem hann var m.a. aðalþjálfari U14 ára liðs félagsins og vann með leikmönnum sem voru að stíga sín fyrstu skref í aðalliðinu. Chris hefur auk þess verið í starfsnámi hjá þýsku liðunum Borussia Dortmund og FC Köln.
Knattspyrnudeild Gróttu telur ráðningu þessa unga þjálfara í anda þess sem Grótta stendur fyrir, þ.e. að gefa ungu hæfileikafólki tækifæri, bæði leikmönnum og þjálfurum. Það sé hluti af því sem gerir Gróttu lifandi og skemmtilegt félag, alltaf opið fyrir ferskum straumum, nýjum hæfileikum og gefur fólki frelsi til að þroskast við stórar áskoranir. Deildin fagnar því að hafa Chris áfram í lykilhlutverki hjá félaginu í því uppbyggingastarfi sem deildin hefur staðið fyrir undanfarin ár.
Knattspyrnudeild Gróttu og Ágúst Gylfason, þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu, hafa ákveðið í sameiningu að Ágúst láti af störfum fyrir félagið eftir að yfirstandandi keppnistímabili lýkur.
Ágúst tók við liðinu haustið 2019 og stýrði því í Pepsi Max deildinni tímabilið 2020, en félagið var þá í fyrsta skipti í sögunni í deild þeirra bestu. Þótt Grótta hafi fallið úr deildinni, stóð liðið sig vel við erfiðar aðstæður í miðjum heimsfaraldri. Á yfirstandandi keppnistímabili í Lengjudeild karla hefur Gróttuliðið leikið vel og árangurinn ágætur, þótt herslumun hafi vantað svo liðið blandaði sér af fullum þunga toppbaráttu deildarinnar.
Ágúst Gylfason hefur reynst Gróttu vel frá því hann tók við haustið 2019 og skilur við liðið á góðum stað. Félagið mun að tímabilinu loknu kveðja Ágúst með virktum og söknuði og óskar honum velfarnaðar í öllum hans störfum í framtíðinni.