Arna Katrín og Sigríður Agnes valdar í æfingahóp

Á dögunum voru tveir leikmenn úr 5.flokki kvenna valdir í æfingahóp Reykjavíkurúrvalsins í handbolta. Það eruð þær Arna Katrín Viggósdóttir og Sigríður Agnes Arnarsdóttir. Liðið mun æfa saman næstu daga og vikur til undirbúnings fyrir hina árlega höfuðborgarleika sem haldnir eru að þessu sinni í Osló í Noregi 29. maí – 4.júní næstkomandi.

Við óskum stelpunum til hamingju með valið og vonum að þær verði í lokahópnum sem fer til Noregs í lok maí.

Myndir: Eyjólfur Garðarsson

Eyrún, Rebekka, Sara og Aufí valdar í Hæfileikamótun KSÍ

Gróttustúlkurnar Eyrún Þórhallsdóttir, Rebekka Sif Brynjarsdóttir, Sara Björk Arnarsdóttir og Arnfríður Auður Arnarsdóttir voru valdar til að taka þátt í Hæfileikamótun N1 og KSÍ þann 5. apríl í síðustu viku. Æfingin fór fram á Vivaldivellinum og voru 25 stúlkur frá Gróttu, KR, Val, Víking R. og Þrótti R. í hópnum sem æfði saman. Vel gert stelpur! 

Arnór, Fannar, Kári og Patrekur í Hæfileikamótun KSÍ

Gróttudrengirnir Arnór Alex Óskarsson, Fannar Hrafn Hjartarson, Kári Kristjánsson og Patrekur Ingi Þorsteinsson hafa verið valdir til að taka þátt í æfingu í Hæfileikamótun N1 og KSÍ á Suðvesturlandi. Tæplega þrjátíu leikmenn frá fimm félögum taka þátt í æfingunum. 

Æfingin fer fram í knatthúsi ÍR í Breiðholti mánudaginn 11.apríl 2022 undir stjórn Lúðvíks Gunnarssonar þjálfara í Hæfileikamótun. 

Gangi ykkur vel strákar! 

Sjö lið frá 6. flokki karla á Kjörísmót Hamars

6. flokkur karla skellti sér á Kjörísmót Hamars sem haldið var í Akraneshöllinni síðustu helgi. Grótta fór með 37 drengi í sjö liðum á mótið og spilaði hvert lið fjóra leiki. Um leið og drengirnir voru komnir í gírinn eftir langa mótspásu þá byrjaði sambaboltinn og spiluðu þeir flottan fótbolta og skoruðu helling af frábærum mörkum ?

8 leikmenn í Hæfileikamótun HSÍ

Um helgina fóru fram æfingar í Hæfileikamótun HSÍ. Æfingarnar fóru fram í Kaplakrika í Hafnarfirði og var innihaldið taktík, markmiðssetning og spil undir stjórn yfirþjálfara Hæfileikamótunarinnar, Jóns Gunnlaugs Viggóssonar.

Flottir fulltrúar frá okkur tóku þátt:

Strákar:

Arnar Magnús Andrason
Helgi Skírnir Magnússon
Kári Kristjánsson
Kolbeinn Thors

Stelpur:
Arna Katrín Viggósdóttir
Auður Freyja Árnadottir
Kristín Fríða Scheving Thorsteinsson
Sara Kristjánsdóttir

Því miður þurftu Arnfríður Auður Arnarsdóttir og Heba Davíðsdóttir að boða forföll.

Hæfileikamótun HSÍ er fyrsta skrefið inn í landsliðsumhverfi HSÍ og því frábært tækifæri fyrir okkar leikmenn að taka þátt. Þeir stóðu sig vel og vonandi verða þau öll í næsta úrtaki.

6. flokkur kvenna á GeoSilicamóti Keflavíkur

6. flokkur kvenna skellti sér á fyrsta mót ársins síðustu helgi. Mikil tilhlökkun var fyrir GeoSilicamóti Keflavíkur sem fór fram í Reykjaneshöllinni.
Grótta fór með sex lið á mótið og stóðu stelpurnar sig mjög vel! Hvert lið spilaði fimm leiki en 31 leikmaður var frá Gróttu. Að mótinu loknu fengu stelpurnar pizzu, medalíu og gjöf frá GeoSilica.

Aufí, Rebekka og Sara í Hæfileikamótun KSÍ

Gróttustelpurnar Sara Björk Arnarsdóttir, Rebekka Sif Brynjarsdóttir og Arnfríður Auður Arnarsdóttir hafa verið valdar til að taka þátt í Hæfileikamótun KSÍ. Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis!
Grótta er hreykið af því að eiga svona flotta fulltrúa í þessum hóp ???