Jólapeysa Gróttu 2026 er komin í forsölu – tryggðu þér eintak!
Forsala á peysunni er 28.október – 3.nóvember og afhending er þá í lok nóvembermánaðar.
Nú getur þú tryggt þér einstaka Gróttu-jólapeysu og um leið stutt við öflugt starf barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar Gróttu (BUR).
Peysan kemur í takmörkuðu upplagi – svo það er um að gera að tryggja sér eintak áður en þær klárast.
Með kaupum á peysunni styður þú við mikilvægt starf BUR og leggur þitt af mörkum til að efla starf og uppbyggingu yngri flokka Gróttu.
Ef spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband á netfangið [email protected]
https://stubb.is/shop/grotta/373




