Íþróttahátíð Seltjarnarness fór fram þriðjudaginn 2. febrúar í hátíðarsal Gróttu þar sem afreksfólk bæjarins kom saman til að fagna glæsilegum árangri sínum á árinu 2025 og taka við verðskulduðum viðurkenningum.
Hrefna Höskuldsdóttir Rafnar, Þuríður Katrín Kristinsdóttir og Sólveig Þóra Sölvadóttir hlutu allar viðurkenningu sem efnilegar íþróttakonur. Þessar ungu fimleikakonur hafa með elju, metnaði og jákvæðu viðmóti verið félagi sínu til mikils sóma. Þær hafa jafnframt haft afar góð áhrif á andrúmsloft og menningu deildarinnar og eru fyrirmyndir innan hennar.
Fimleikadeild Gróttu óskar þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.
Bikarmeistarar í 3. þrepi A-deild hlutu einnig viðurkenningu fyrir frábæran árangur á árinu. Bikarlið Gróttu í 3. þrepi A-deild tryggði sér 2025 bikarmeistaratitilinn með glæsilegri frammistöðu og frábærri heildarútkomu, hvorki meira né minna en 223,196 stigum.
Liðið skipuðu Mjöll Jónsdóttir, Sigurrós Ylfa Rúnarsdóttir, Þuríður Katrín Kristinsdóttir, Fanney Petrea L. Arnórsdóttir, Sigríður Lára Indriðadóttir og Sunna Mist Sheehan.
Það er jafnframt vert að nefna að Grótta var með yngsta liðið í keppninni. Fimleikadeild Gróttu óskar þeim innilega til hamingju með þennan stórkostlega árangur.
Mynd: Eyjólfur Garðarsson

