Grótta hélt námskeið fyrir þjálfara félagsins 23. mars síðastliðinn um samskipti við foreldra.
Sálfræðingurinn Hrund Þrándardóttir hélt námskeiðið sem tókst afar vel, það var góð mæting hjá þjálfurum sem gerðu góðan róm af námskeiðinu.
Samvinna þjálfara og foreldra hefur mikilvæg áhrif m.a. á mætingu barna, þátttöku, líðan og þrautseigju. Í fræðslunni var áhersla lögð á hvað þjálfarar geta gert til að byggja upp góð samskipti og gagnlega samvinnu við foreldra og hvernig hægt er að bregðast við erfiðum aðstæðum. Áhersla var á virkni þjálfara á meðan fræðslu stendur til að þeir geti mátað efnið í sína vinnu og nýtt það eins og hægt er.
Íþróttaæfingar hefjast að nýju
Þau gleðitíðindi bárust í gær að boðaðar voru rýmri samkomutakmarkanir. Nýjar reglur taka gildi á miðnætti í kvöld. Þetta þýðir að íþróttaæfingar mega hefjast án takmarkana og íþróttakeppni er leyfð með 100 áhorfendum.
Allar æfingar hefjast samkvæmt tímatöflum á morgun fimmtudaginn 15. apríl. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að fylgjast vel með á Sportabler.
Áfram biðjum við iðkendur, þjálfara og aðra þá sem erindi kunna að eiga í íþróttamannvirkin okkar að mæta ekki finni þeir fyrir minnstu einkennum veikinda.
Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að koma ekki inn í íþróttamannvirkin.
Við hlökkum til að taka á móti iðkendum okkar aftur á morgun.
Aðalfundur Gróttu fer fram 29. apríl
Aðalfundir aðalstjórnar og deilda Íþróttafélagsins Gróttu fara fram fimmtudaginn 29. apríl 2021.
Halda áfram að lesaGrótta og Tryggja í samstarf
Íþróttafélagið Grótta og Tryggja í samstarfi við Lloyd´s, bjóða tryggingu fyrir börn yngri en 22 ára í leik og starfi. Tryggingin gildir allan sólarhringinn á æfingum, keppnum og frítíma hvar sem er í heiminum. Þetta er algjörlega valfrjálst fyrir félög/foreldra en fyrir hverja áskrift fær félagið 1.000 kr.
Halda áfram að lesaFlügger og Grótta í samstarf
Nú gefst þér tækifæri að kaupa í gegnum staðgreiðslureikning Gróttu og fá að minnsta kosti 20% afslátt af hilluverði í næstu verslun Flügger.
Halda áfram að lesaLumar þú á ljósmyndum úr sögu Gróttu ?
Íþróttafélagið Grótta er í átaki að leita uppi ljósmyndir úr starfi Gróttu í gegnum tíðina. Við byrjuðum fyrir jól að kynna átakið á Facebook síðu Gróttu og höfum við fengið fjöldan allan af ljósmyndum. Við setjum inn gamlar Gróttumyndir á Facebook síðu okkar í hverri viku.
Halda áfram að lesaÍþróttastarf fellur niður til 15. apríl
Eftir að fundi forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar lauk nú rétt áðan er ljóst að allt íþróttastarf barna og fullorðinna mun liggja niðri frá og með morgundeginum og mun lokunin mun vara í a.m.k. þrjár vikur.
Halda áfram að lesaFimleikafjör í dymbilvikunni – FELLUR NIÐUR
ATHUGIÐ – Námskeið heftur verið fellt niður vegna sóttvarnaraðgerða. Vinsamlegast hafið samband við Ólöfu framkvæmdastjóra fimleikadeildar Gróttu varðandi endurgreiðslu á þátttökugjaldi. Tölvupóstfang fimleikadeild@grotta.is og sími 561-1137.
Fimleikadeild Gróttu ætlar að bjóða upp á Fimleikafjör dagana 29., 30. og 31. mars fyrir krakka á aldrinum 7 – 10 ára (2011-2014).
Fimleikasalurinn er opinn og farið verður í fimleikaæfingar, leiki og frjálsan leik. Hægt verður að lita og perla ef fimleikaorkan klárast.
Fjörið er frá kl. 09:00 – 12:00. Krakkarnir þurfa að taka með sér hollt og gott nesti.
Hver dagur kostar 2700 kr. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum https://www.sportabler.com/shop/grotta.
ATH: Það er takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Covid styrkur fyrir iðkendur fædd á árunum 2005-2014
Meðal aðgerða stjórnvalda vegna Covid-19 er styrkur sem hægt er að sækja um til sveitarfélaga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005–2014
Halda áfram að lesaTinna Brá íþróttakona Gróttu og Hákon Rafn íþróttamaður Gróttu árið 2020
Úrslit í íþróttamanni og íþróttakonu Gróttu voru kunngjörð í síðustu viku með myndbandi á samfélagsmiðlum.
Halda áfram að lesa