Um helgina átti landsliðsæfingar U15 ára landsliðsins að fara fram en þeim var frestað vegna fjölgunar smita í samfélaginu. Við áttum þrjá flotta fulltrúa í hópnum. Það voru þeir Alex Kári Þórhallsson, Antoine Óskar Pantano og Hannes Pétur Hauksson. Við óskum okkar strákum til hamingju með valið og vonum að liðið geti æft í lok mánaðarins.
Þjálfarar U15 ára landsliðsins eru þeir Guðlaugur Arnarsson og Heimir Örn Árnason.
Um helgina áttu að fara fram æfingar hjá U14 ára landsliði kvenna en vegna fjölgunar smita var ákveðið að slá þeim á frest. Fjórar stelpur frá okkur voru valdar í hópinn en það voru þær Arndís Áslaug Grímsdóttir, Dóra Elísabet Gylfadóttir, Elísabet Ása Einarsdóttir og Margrét Lára Jónasdóttir.
Sannarlega frábær viðurkenning fyrir þessa öflugu leikmenn sem voru einnig valdar til þátttöku í landsliðinu fyrr í sumar.
Við óskum stelpunum til hamingju með landsliðsvalið og velfarnaðar á æfingum helgarinnar. Landsliðsþjálfarar eru þeir Dagur Snær Steingrímsson og Guðmundur Helgi Pálsson.
Handknattleiksdeild Gróttu hefur gert tveggja ára samning við Igor Mrsulja. Igor er frá Serbíu og leikur sem leikstjórnandi. Hann er 27 ára gamall og hefur lengstan hluta ferilsins leikið með RK Partizan í heimalandi sínu. Auk þess hefur hann leikið í hollensku og ungversku úrvalsdeildunum. Í fyrra lék hann með Kikinda Grindex í serbnesku úrvaldsdeildinni.
Igor lék með yngri landsliðum Serbíu sem lék á lokakeppnum heims- og Evrópumóta árin 2011-2014. Hann varð tvisvar sinnum serbneskur meistari, bikarmeistari í Serbíu, bikarmeistari í Hollandi auk þess sem hann hefur mikla reynslu úr Evrópukeppnum með félagsliðum sínum.
Koma Igors til Gróttu styrkir liðið mikið enda góður alhliða leikmaður, bæði í sókn og vörn. Hann eykur breidd Gróttuliðsins og mun án efa hjálpa liðinu í sterkri Olísdeild á næsta tímabili.
Handboltaskóli Gróttu og Afreksskóli Gróttu hefjast eftir helgi, þriðjudaginn 3.ágúst. Þarna gefst krökkum og unglingum tækifæri á að taka forskot á sæluna og hefja handboltatímabilið af krafti.
HANDBOLTASKÓLINN * kl. 09:00-12:00 og fyrir krakka f. 2010-2015 * alla virka daga* boðið upp á gæslu frá kl. 08:00 og til 13:00 * skipt upp í þrjá hópa eftir aldri
AFREKSSKÓLINN * kl. 12:30-14:00 og fyrir krakka f. 2006-2009 * mánudagar, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga * skipt upp í tvo hópa eftir aldri
Frábærir þjálfarar verða að leiðbeina krökkunum – Andri Sigfússon – Arnar Daði Arnarsson – Ari Pétur Eiríksson – Edda Steingrímsdóttir – Hannes Grimm – Hrafnhildur Hekla Grímsdóttir – Lovísa Thompson – Maksim Akbachev – Patrekur Pétursson
Skráning fer fram í Sportabler. Ef einhverjar spurningar vakna, hafið þá samband við yfirþjálfara Gróttu, maksim@grotta.is eða handbolti@grotta.is
Undanfarna daga hefur B-keppni EM hjá U19 ára landsliði kvenna farið fram í Norður Makedónía. Við vorum búin að segja frá því að Ísland missti sorglega af sæti í undanúrslitunum og þurfti því að leika um 5. – 8.sætið.
Fyrri leikurinn var gegn Kosóvó og vannst hann örugglega 37-23. Með þeim úrslitum léku íslensku stelpurnar við heimasæturnar í Norður Makedóníu um 5. sætið.
Íslenska liðið var betri aðilinn stærstan hluta leiksins en Norður Makedónía skoruðu seinustu mörk leiksins og jafntefli niðurstaðan, 28-28. Í vítakeppninni sem var að ljúka höfðu íslensku stelpurnar betur og uppskáru 5. sætið.
Okkar manneskja, Katrín Helga Sigurbergsdóttir lék stórt hlutverk með U19 ára liðinu í keppninni, sérstaklega í dag gegn Norður Makedóníu og stóð sig vel.
Það er með gleði í hjarta að geta tilkynnt Davíð Örn Hlöðversson áfram sem aðstoðarþjálfara kvennaliðs Gróttu. Davíð Örn þarf varla að kynna fyrir Gróttufólki en hann hefur þjálfað nær alla flokka Gróttu undanfarin 20 ár. Að auk er hann silfurmerkjahafi félagsins og hefur leikið 144 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu.
Handknattleiksdeild Gróttu hefur framlengt samninginn sinn um tvö ár við Hrafnhildi Heklu Grímsdóttur. Hún er 17 ára gömul og lék á sínu þriðja tímabili í meistaraflokki síðastliðinn vetur.
Handknattleiksdeild Gróttu hefur gert eins árs lánssamning við Ívar Loga Styrmisson. Ívar Logi er fæddur árið 2000 og kemur frá ÍBV þar sem hann er uppalinn. Ívar Logi hefur leikið undanfarin þrjú árin í Olísdeildinni með ÍBV og á seinustu leiktíð skoraði hann 13 mörk í 20 leikjum.
Helgina 12. – 13. júní síðastliðinn fór fram Handboltaskóli HSÍ og Alvogen í var það í 26. sinn sem skólinn var haldinn. Um er að ræða fyrsta stig landsliða HSÍ og voru fjórir leikmenn valdir frá hverju félagi. Æfingarnar voru fjórar talsins og fóru fram í TM-höllinni í Garðabæ.