FIMLEIKADEILD GRÓTTU
REGLUR Í FIMLEIKASAL
- Iðkendur skulu mættir á æfingu á réttum tíma.
- Útiskó skal setja upp í skógeymslu og föt skulu hengd upp á snaga í búningsklefum.
- Engin ábyrgð er tekin á verðmætum, skóm eða fötum. Við mælum eindregið með að merkja fatnað með nafni og símanúmeri.
- Stranglega bannað er að fara með drykki eða matvöru, inn í íþróttasal og búningsklefa.
- Ganga skal snyrtilega um búningsklefa og matarafgöngum og rusli hent í ruslatunnur.
- Að loknum æfingum yfirgefa iðkendur salinn.
- Öll læti, átök eða hrindingar í búnings- og baðklefum eru stranglega bannaðar. Bera skal virðingu fyrir starfsmönnum og iðkendum Gróttu.
- Enginn hópur má fara inn í fimleikasal fyrr en þjálfari sækir hópinn í búningsklefann.
- Á fimleikaæfingu skal klæðast þar til gerðum fimleikafatnaði og sítt hár bundið í teygju.
- Bera skal virðingu fyrir öllum íþróttaáhöldum í fimleikasalnum. Í lok hvers æfingatíma skal þjálfari sjá um að iðkendur gangi snyrtilega frá öllum áhöldum og dýnum á sama stað og þau voru tekin.
- Öll meðferð gleríláta í búningsklefum og fimleikasal er stranglega bönnuð.
- Iðkendur skulu hlýða tilmælum alls starfsfólks Gróttu.
REGLUR ÞJÁLFARA
- Þjálfarar Gróttu sýna hver öðrum, iðkendum sínum og foreldrum/forráðamönnum virðingu
- Þjálfarar Gróttu mæta snyrtilega til fara, í viðeigandi íþróttafatnaði. Notkun farsíma í salnum er bönnuð. Sítt hár er í teygju á meðan þjálfun á sér stað.
- Þjálfara Gróttu mæta tíu mínútum fyrir æfingatímann. Þannig erum við tilbúin þegar æfingin hefst. Iðkendur eru sóttir inn í klefa þegar tíminn byrjar, ekki þegar tíminn á að vera byrjaður. Sýnum ábyrgð, verum til fyrirmyndar.
- Þjálfarar Gróttu sitja ekki á meðan kennslu stendur.
- Frjáls leiktími er ekki í boði en hægt er að leyfa iðkendum að leika sér ef það er gert með skipulögðum hætti.
- Þjálfarar Gróttu leysa ágreining sem upp kann að koma fyrir utan salinn, ekki inn í sal fyrir framan iðkendurna.
- Þjálfarar Gróttu tileinka sér kurteisi, jafnvel þegar hún er ekki endurgoldin.
- Í lok hvers æfingatíma skal þjálfari sjá um að iðkendur gangi snyrtilega frá öllum áhöldum og dýnum á sama stað og þau voru tekin.
- Ef upp koma erfið mál sem við getum ekki leyst eða eigum ekki svar við vísum við á yfirþjálfara eða framkvæmdastjóra fimleikadeildarinnar