VERÐSKRÁ FYRIR VETURINN 2024-2025
FIMLEIKADEILD GRÓTTU
GRUNNHÓPAR
Haustönn 2024 | 9 mánaðargjald (4 mánuðir af 9)
FRAMHALDSHÓPAR
Haustönn 2024 | 9 mánaðargjald (4 mánuðir af 9)
Athugið
- Mótagjöld eru ekki innifalin í æfingagjöldunum.
- Ef iðkandi hættir þarf að láta vita og uppsögn tekur gildi frá og með næstu mánaðmótum. Vinsamlegast ath. að það er á ábyrgð foreldra/forráðamanna að láta vita til að stoppa greiðslur.
- Leyfisgjöld FSÍ eru EKKI inn í æfingagjöldunum hér að ofan.
- Fimleikafélagið Grótta áskilur sér rétt til að fella niður námskeið og endurgreiða iðkendum, ef ekki fæst næg þátttaka.
- Iðkendur geta ekki hafið æfingar á námskeiði (önn/sumarnámskeið) né tekið þátt í mótum fyrir hönd félagsins nema vera skuldlausir við félagið eða hafa áður samið um uppgjör eldri skulda.
- Forskráningargjald er óafturkræft nema að fimleikadeildin þurfi að neita iðkendum um pláss eða fella niður námskeið.
Niðurgreiðslur
FRÍSTUNDASTYRKUR
Ath. að Seltjarnarnesbær veitir frístundastyrk til barna á Seltjarnarnesi og Reykjarvíkurborg til barna í Reykjavík. Það eru foreldrar sem fá hann til ráðstöfunnar og það er á ábyrgð foreldra að fylgjast með því hvort hann sé nýttur eða ekki. Fimleikadeild Gróttu hefur ekki þær upplýsingar sem þarf til að vita hvort barn á rétt á styrk eða ekki.
Foreldrar/forráðamenn þurfa að ganga frá greiðslum æfingagjalda í gegnum ‘Sportabler’. Til að nýta niðurgreiðslu þurfa Seltirningar að fara inn í kerfið í gegnum „Mínar síður“ á seltjarnarnes.is en íbúar úr öðrum sveitarfélögum geta hakað í „nýta frístundastyrk“ í gegnum Sportabler.
ATH! Ráðstöfun frístundastyrks er endanleg. Ekki er hægt að endurgreiða eða bakfæra styrk ef foreldri/ forráðafólk hefur ráðstafað styrk til félags á grundvelli Frístundakortsins.
Annað
Inní Sportabler eru tveir möguleikar í boði við uppgjör æfingagjalda:
a) Kreditkort: Ef valið er að greiða með kreditkorti er hægt að dreifa greiðslum á þann fjölda tímabila sem gefin er upp í valmynd.
b) Greiðsluseðill: Ef greiðsluseðill er valinn þá kemur í heimabanka viðkomandi greiðsluseðill um hver mánaðarmót í samræmi við þann fjölda greiðslna sem valið er.
Viljið greiðandi koma athugasemdum á framfæri um æfingagjöld, t.d. véfengja upphæð gjaldanna eða tilvist, sendið þá fyrirspurn á gudrun@grotta.is eða hafið samband við skrifstofu á auglýstum skrifstofutíma í síma 561-1137. Ekki ganga frá greiðslum fyrr en búið er að leysa úr ágreinings/vafamálum.