ÞINN STUÐNINGUR SKIPTIR MÁLI
Einstaklingar geta styrkt Gróttu um allt að 350.000,- en að lágmarki 10.000,- á ári sem er frádráttarbært frá skattskyldum tekjum.
Dæmi: Einstaklingur sem greiðir 4.000,- styrk til Gróttu á mánuði fær skattaafslátt að fjárhæð 15.096,- og greiðir þannig í raun 32.904,- fyrir 48.000,- styrk til félagsins
Fyrirtæki geta líka fengið skattaafslátt vegna styrkja. Fyrirtækjum er heimilt að draga frá skattstofni allt að 1,5% af rekstrartekjum. Miðað er við algengustu skattprósentu lögaðila, þ.e. 20%.
Dæmi: Fyrirtæki sem styrkir Gróttu um 500.000,- getur lækkað tekjuskattinn sinn um 100.000,-. Fyrirtækið greiðir þannig í raun 400.000,- fyrir 500.000,- styrk til Gróttu.
Svona virkar ferlið...
Þú millifærir upphæð að eigin vali að lágmarki 10.000,- og að hámarki 350.000,- inn á þá deild sem þú vilt styrkja hjá Gróttu.
Aðalstjórn: 0537-26-201234 kt. 700371-0779
Handbolti: 0512-14-603720 kt. 500192-2759
Fimleikar: 0512-26-200631 kt. 500192-2599
Fótbolti: 0137-26-005911 kt. 500192-2679
Sund: 0537-14-012525 kt. 700371-0779
Þegar búið er að millifæra þarf að senda tölvupóst með eftirfarandi upplýsingum á grotta (hjá) grotta.is :
- Nafn greiðanda
- Kennitala greiðanda
- Fjárhæð framlags
- Hvaða deild er verið að styrkja
- Greiðsludagur
Grótta mun senda kvittun til baka á greiðanda þar sem kemur fram nafn og kennitala greiðanda og fjárhæð framlags. Við munum einnig koma upplýsingum um styrk til Skattsins, sem kemur skattaafslættinum til skila til þín.
Við erum afar þakklát fyrir alla styrki sem koma til okkar, bæði stóra og smáa. TAKK fyrir okkur!
