Grunnhópar í fimleikum eru fyrir börn á síðasta ári í leikskóla og í 1. og 2. bekk grunnskóla. Markmiðið er að vekja og viðhalda áhuga á fimleikum og byggja upp góðan grunn fyrir áframhaldandi fimleikaiðkun. Lögð er áhersla á jákvæðan aga, einbeitingu, vinnusemi og að iðkendur njóti þess að æfa sig. Iðkendur kynnast grunnatriðum fimleika og þeim áhöldum sem notuð eru í áhalda- og hópfimleikum, eftir því sem við á.
A-hópar
- Aldur: 5 ára stúlkur og drengir
- Æfingar: 1–2 sinnum í viku
- Lengd æfingar: 60 mínútur
B-hópar
- Aldur: 6 ára stúlkur og drengir (1. bekkur)
- Æfingar: 2 sinnum í viku
- Lengd æfingar: 60 mínútur
C-hópar
- Aldur: 7 ára stúlkur (2. bekkur)
- Æfingar: 2 sinnum í viku
- Lengd æfingar: 80 mínútur
- Hægt er að bæta við þriðju æfingu vikunnar, 80 mínútum.
- Þegar komið er í 3. bekk (8 ára) fá iðkendur val um að fara í áhaldafimleika eða hópfimleika.
S-hópar
- Aldur: 7 ára drengir (2. bekkur)
- Æfingar: 2 sinnum í viku
- Lengd æfingar: 80 mínútur
- Hægt er að bæta við þriðju æfingu vikunnar, 80 mínútum.
- Áhersla er á grunn í hópfimleikum og kynningu á áhöldum eins og trampólíni, dýnu og gólfi.
- Fimleikadeild Gróttu býður upp á hópfimleika fyrir drengi frá 8 ára aldri.
