Afhending verðlauna fyrir íþróttafólk Gróttu fyrir árið 2020 fer fram með öðru sniði í ár. Við höfum tekið saman myndband sem við munum frumsýna fimmtudaginn 14. janúar kl. 17:00 á facebook síðu Gróttu.
Halda áfram að lesaJólakveðja Gróttu
Íþróttafélagið Grótta óskar þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum stuðninginn og samfylgdina á árinu sem er að líða.
Halda áfram að lesaStyrktu Gróttu og Græna skáta með dósum og flöskum
Magnus teiknaði jólakort Gróttu 2020
Jólakortsamkeppni Gróttu var haldin í annað skipti nú fyrir jólin. Við efndum til teiknisamkeppni í 4. bekk Mýrarhúsaskóla um að velja teikningu sem myndi príða jólakortið í ár.
Magnus Holm-Andersen átti teikninguna sem varð hlutskörpust og hún prýðir jólakort félagsins árið 2020. Auk þess voru veitt verðlaun fyrir 3 aðrar teikningar.
Við viljum þakka skólastjórnendum í Mýrarhúsaskóla fyrir samstarfið í ár og þessi viðburður er orðinn hefð hjá félaginu.

Leynast myndir úr starfi Gróttu í þinni geymslu ?
Hún Hrafnhildur Thoroddsen kemur á skrifstofuna til okkar hjá Gróttu þrisvar í viku og vinnur að ýmsum tilfallandi verkefnum. Fyrir nokkru fjárfestum við í myndaskanna og því er Hrafnhildur þessa dagana að skanna inn mikið safn mynda sem safnast hafa í gegnum árin úr starfi félagsins.

Verkefnið gengur vel en okkur langar að kanna hvort það leynist mögulega fleiri myndir sem tengjast sögu og starfi Gróttu í albúmum eða geymslum.
Lumar þú mögulega á myndum sem við mættum fá lánaðar til að skanna?
Ef svo er settu þig í samband við [email protected] sem einnig veitir nánari upplýsingar.
Áfallaáætlun Gróttu við alvarlegum atburðum
Síðan í haust höfum við smíðað áfallaáætlun fyrir íþróttafélagið Gróttu. Viðbragðsáætlun þessi tekur til iðkenda, starfsmanna, þjálfara og annarra sem koma að starfi hjá Íþróttafélaginu Gróttu.
Halda áfram að lesaSérstakur covid-19 íþrótta- og tómstundastyrkur
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk fyrir börn vegna áhrifa af Covid-19. Markmið styrkjanna er að jafna tækifæri barna sem búa á tekjulægri heimilum til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Nánari upplýsingar og umsóknarform er að finna hér:
Íslenska – https://island.is/styrkur-til-ithrotta-og-tomstundastarfs
Enska – https://island.is/…/support-for-childrens-recreational…
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2020/11/18/Opnad-fyrir-umsoknir-a-serstokum-ithrotta-og-tomstundastyrk-vegna-ahrifa-af-Covid-19/?
Nýtt hugarfarmynd um hugrekki
Hér kemur síðasta myndbandið í röð hugarfarmyndbanda Gróttu sem hófst 19. október síðastliðinn. Jón Halldórsson og Anna Steinsen frá Kvan hafa í síðustu viku fjallað um sjálfstraust, styrkleikana, liðsheild en í þessu myndbandi tekur Anna fyrir hugrekki.
Halda áfram að lesaNýtt hugarfarmyndband um styrkleika
Í þessu myndbandi fjallar Jón um styrkleikana. Það hefur mikil og jákvæð áhrif á einstaklinga þegar þeir ná því að koma auga á styrkleika sína og átta sig á því hvar styrkleikar þeirra nýtast.
Halda áfram að lesaNýtt hugarfarmyndband um sjálfstraust
Allir íþróttamenn og konur þurfa á góðu sjálfstrausti að halda. Hvernig fáum við sjálfstraust, hvað gerum við þegar sjálfstraustið minnkar og hvernig getum við hjálpað liðfélögum okkar að auka sjálfstraust.
Halda áfram að lesa









