Jólapeysa Gróttu 2026

Jólapeysa Gróttu 2026 er komin í forsölu – tryggðu þér eintak!

Forsala á peysunni er 28.október – 3.nóvember og afhending er þá í lok nóvembermánaðar.

Nú getur þú tryggt þér einstaka Gróttu-jólapeysu og um leið stutt við öflugt starf barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar Gróttu (BUR).

Peysan kemur í takmörkuðu upplagi – svo það er um að gera að tryggja sér eintak áður en þær klárast.

Með kaupum á peysunni styður þú við mikilvægt starf BUR og leggur þitt af mörkum til að efla starf og uppbyggingu yngri flokka Gróttu.

Ef spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband á netfangið [email protected]

https://stubb.is/shop/grotta/373

Daníel, Halldór og Magnús semja við Gróttu

Handknattleiksdeild Gróttu hefur gert fyrstu samninga við unga og efnilega leikmenn félagsins sem hluta af uppbyggingu félagsins. Allir leikmennirnir eru lykilleikmenn í 3.flokki og U-liði félagsins. Leikmennirnir eru: Daníel Þór Þórsson, Halldór Ingi Hinriksson og Magnús Malik Nielsen Friðriksson. Þeir eru allir fæddir 2010 og þess vegna á 16. aldursári.

* Daníel Þór er rétthentur getur bæði leikið sem leikstjórnandi og skytta. Hann er góður skotmaður, hraður og öflugur beggja megin vallarins.

* Halldór Ingi er örvhentur og leikur aðallega í hægra horninu. Hann er öflugur og vilugur leikmaður. Hann hefur stigið stór framfaraskref síðastliðinn vetur.

* Magnús Malik er rétthentur og leikur í vinstra horninu. Hann er með mikla og góða skottækni. Það verður gaman að sjá hann blómstra á tímabilinu.

Daníel og Magnús hafa hlotið eldskírn sína með meistaraflokki í vetur á meðan Halldór Ingi á hana eftir og vonandi kemur hún á næstu misserum. Grótta er virkilega ánægt með samningana enda eru þeir mikilvægur liður í framtíðaráformum félagsins.

„Við erum mjög ánægðir að vera búnir að semja við þessa ungu stráka. Þeir voru allir viðloðandi meistaraflokkinn á undirbúningstímabilinu og stóðu sig mjög vel. Það er því eðlileg þróun að þeir stígi næsta skref og verði partur af uppbyggingunni,“ sagði Andri Sigfússon þjálfari Gróttuliðsins.

Vinavikur handboltans

Dagana 5. – 16.október fara fram vinavikur handboltans. Þá hvetjum við alla iðkendur til að bjóða vinum og vinkonum sínum með sér frítt á æfingar. Enn fremur eru öllum velkomið að koma og prófa handbolta þeim að kostnaðarlausu.

Alla æfingatíma má finna inn á grotta.is

Þjálfarar handboltans taka vel á móti öllum sem vilja koma og prófa.

Handbolti er skemmtilegur – prófaðu !