Árlega er haldin jólakortasamkeppni um gerð jólakort fyrir félagið þar sem viðfangsefnið er jólin og íþróttafélagið Grótta. Nemendur í 4. bekk Mýrarhúsaskóla fá að spreyta sig og eru verðlun veitt fyrir bestu myndina, auk þess sem hún mun skreyta jólakort félagsins.

Við viljum þakka skólastjórnendum í Mýrarhúsaskóla fyrir samstarfið og þessi viðburður er orðinn hefð hjá félaginu.

Laufey Beite Pálsdóttir átti teikninguna sem varð hlutskörpust og hún prýðir jólakort félagsins árið 2022.

Guðmunda Margrét Jónsdóttir átti teikninguna sem varð hlutskörpust og hún prýðir jólakort félagsins árið 2021.

Hér að neðan má sjá sigurvegara fyrir Jólin 2020. Magnus Holm-Andersen átti teikninguna sem varð hlutskörpust. Auk þess voru veitt verðlaun fyrir 3 aðrar teikningar.

Hér að neðan má sjá sigurvegara fyrir Jólin 2019. Það var Tómas Rafn Arnarsson sem gerði þetta frábæra jólakort.