Sunddeild Gróttu

Grótta hefur frá og með árinu 2025 boðið uppá sundþjálfun í sundlaug okkar Seltirninga. Sunddeild Gróttu varð til vegna ákalls foreldra ungra barna á Seltjarnarnesi sem eru að taka sín fyrstu skref í sundiðkun. Í gegnum tíðina hafa börn sem búa á Nesinu þurft að sækja sundæfingar annaðhvort í Vesturbæjarlaug eða í Sundhöll Reykjavíkur. Sunddeild Gróttu er ekki orðin eiginleg deild innan félagsins, en starfar undir Aðalstjórn. 

Laugin á Seltjarnarnesi er einstaklega vel hönnuð, með svokölluðu sléttu yfirfalli. Það þýðir að vatnið í lauginni er nánast í sömu hæð og kanturinn og rennur jafnt yfir brúnina í rennur allan hringinn. Slíkt fyrirkomulag er algengt í nýjum keppnis- og kennslulaugum. Uppbyggingin fór af stað með því að bjóða fyrst upp á æfingar fyrir yngstu börnin og byggja þannig upp sterkt grasrótarstarf. Við erum með sundstig þar sem iðkendur læra grunnatriði sundsins á hverju stigi. Reglulega yfir tímabilið eru síðan haldnar sundsýningar þar sem foreldrar geta komið og séð framfarir barna sinna. Að sýningu lokinni er oft boðið upp á skemmtilega samveru.

Coaches

Snær Jóhannson

Yfirþjálfari

Fyrrum sundmaður úr röðum KR. Núverandi íþrótta- og sundkennari í Hagaskóla.

snaer (hjá) grotta.is

Æfingatafla 2026-27

Allar frekari upplýsingar veitir yfirþjálfari deildarinnar, Snær. Skráning fer fram í gegnum Abler