Hrafnhildur Thoroddsen – Minning

Hrafnhildur Thoroddsen lést fimmtudaginn 16. janúar síðastliðinn. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum kæran og duglegan samstarfsmann og vin, sem starfaði í íþróttahúsinu frá árinu 2014.

Hrafnhildur var einstök manneskja en frá því hún hóf störf hjá okkur sinnti hún af mikilli elju störfum við símsvörun, móttöku iðkenda, foreldra og annarra gesta í móttöku Gróttu ásamt fleiri tilfallandi verkefnum. Bros hennar og hlýlegt viðmót voru einkenni hennar en hún var alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd þegar þess þurfti. Þeir sem þekktu hana vita hversu mikill kraftur, jákvæðni og ákveðni bjó í henni. Hún lét alltaf til sín taka þegar hún var í húsinu og ekkert virtist geta stöðvað hana í að leggja sitt af mörkum. Henni leið vel í íþróttahúsinu, að vera á meðal fólks á öllum aldri í amstri hversdagsins, að leggja sitt að mörkum til að öll verkefni dagsins fengju farsælan og lausnarmiðaðan endi.

Við sem störfuðum með Hrafnhildi munum ávallt minnast hennar með hlýju, þakklæti og virðingu. Íþróttafélagið Grótta sendir fjölskyldu, vinum og vandamönnum hennar hugheilar samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum.

Æfingar að hefjast í 9.flokki

Skráning fyrir vorönnina í 9.flokki er hafin í Abler. Æfingarnar eru fyrir krakka á leikskólaaldri og eru á laugardögum kl. 09:15-10:00. Þjálfari 9.flokks er Eva Björk Hlöðversdóttir ásamt aðstoðarþjálfurum.

Fyrsta æfing er 4.janúar og sú síðasta 26.apríl.

Beinn hlekkur á skráninguna er hérna: https://www.abler.io/…/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MzE1ODI=

Frekari upplýsingar gefur Andri Sigfússon yfirþjálfari á netfanginu [email protected]

Skötuveisla í Gróttu

Íþróttaféalagið Grótta blæs til veglegrar skötuveislu í hátíðarsalnum 21. desember næstkomandi, frá kl 11.30-13.30.

Boðið verður upp á skötu og saltfisk með öllu tilheyrandi!

Hvað er betra en að taka forskot á jólin í geggjuðum félagsskap!

Þú og Ég og Jól 🎅⭐️🎄

Breyttir opnunar- og símatímar skrifstofu Gróttu

Grótta kynnir breyttan opnunartíma og símatíma skrifstofunnar. Frá og með deginum í dag (04.12.24) verður opnunartíminn eftirfarandi:

opnunartíminn skrisftofu:

  • Mánudaga til fimmtudaga: 13:00 – 16:00
  • Föstudaga: Lokað

Símatími skirfstofunnar:

  • Mánudaga til föstudaga 09:00-12:00

Við minnum á að það er hægt að hafa samband við skrifstofuna í gegnum netfangið [email protected]