Handknattleiksdeild Gróttu hefur gert fyrstu samninga við unga og efnilega leikmenn félagsins sem hluta af uppbyggingu félagsins. Allir leikmennirnir eru lykilleikmenn í 3.flokki og U-liði félagsins. Leikmennirnir eru: Daníel Þór Þórsson, Halldór Ingi Hinriksson og Magnús Malik Nielsen Friðriksson. Þeir eru allir fæddir 2010 og þess vegna á 16. aldursári.
* Daníel Þór er rétthentur getur bæði leikið sem leikstjórnandi og skytta. Hann er góður skotmaður, hraður og öflugur beggja megin vallarins.
* Halldór Ingi er örvhentur og leikur aðallega í hægra horninu. Hann er öflugur og vilugur leikmaður. Hann hefur stigið stór framfaraskref síðastliðinn vetur.
* Magnús Malik er rétthentur og leikur í vinstra horninu. Hann er með mikla og góða skottækni. Það verður gaman að sjá hann blómstra á tímabilinu.
Daníel og Magnús hafa hlotið eldskírn sína með meistaraflokki í vetur á meðan Halldór Ingi á hana eftir og vonandi kemur hún á næstu misserum. Grótta er virkilega ánægt með samningana enda eru þeir mikilvægur liður í framtíðaráformum félagsins.
„Við erum mjög ánægðir að vera búnir að semja við þessa ungu stráka. Þeir voru allir viðloðandi meistaraflokkinn á undirbúningstímabilinu og stóðu sig mjög vel. Það er því eðlileg þróun að þeir stígi næsta skref og verði partur af uppbyggingunni,“ sagði Andri Sigfússon þjálfari Gróttuliðsins.

