Yfirþjálfari grunnhópa

Grunnhópar Gróttu eru ætlaðir börnum á aldrinum 5–7 ára. Markmið starfsins er að vekja og viðhalda áhuga barnanna á fimleikum ásamt því að efla þol, snerpu, styrk, liðleika og samhæfingu í jákvæðu og hvetjandi umhverfi.

Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi sem hefur gaman af því að starfa með ungum börnum og hefur áhuga á að leiða og styðja öflugt þjálfarateymi grunnhópa.

Starfið felur í sér yfirumsjón með starfsemi grunnhópa, skipulag æfinga og stuðning við þjálfara. Starfshlutfall er eftir samkomulagi.

Reynsla af fimleikaþjálfun og starfi með börnum er kostur, en við leggjum einnig mikla áherslu á frumkvæði, sjálfstæði, jákvæðni og góða samskiptahæfni.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við okkur á [email protected].

Yfirþjálfari stubbafimi

Við leitum að yfirþjálfara í Stubbafimi!

 
Stubbafimi er fyrir yngstu iðkendur okkar, 1–4 ára. Markmið Stubbafimi er að kynna börnum fimleika í gegnum leik í öruggu, jákvæðu og gleðilegu umhverfi.
 
Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi sem hefur gaman af því að starfa með ungum börnum. Starfið felur í sér að hafa umsjón með og skipuleggja æfingar fyrir okkar yngstu iðkendur. Um er að ræða hlutastarf (16 skipta námskeið) á vorönn. Kennt er á laugardags- og sunnudagsmorgnum.
 
Reynsla af starfi með ungum börnum er kostur en fyrst og fremst leitum við að einstaklingi með áhuga, frumkvæði og góða nærveru með börnum. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við okkur.
 
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á netfangið [email protected].