Fimleikadeild Gróttu býður upp á að leigja fimleikasalinn undir afmæli eða aðra viðburði. Skráning og lausar dagsetningar má finna inn á Grótta | Fimleikasalur – Útleiga | Námskeið | Abler

VERÐSKRÁ

1 klst fimleikasalur – 42.000 kr.

1 klst fimleikasalur + 30 mín hátíðarsalur/anddyri Gróttu 50.000 kr.

FIMLEIKASALURINN

Í salnum eru tvö stór trampólín, púðagryfja, ásamt öllum helstu fimleikaáhöldum.

AÐSTAÐA FYRIR VEITINGAR

Við bjóðum upp á aðstöðu í hátíðarsalnum eða í anddyri Gróttu í beinu framhaldi af fimleikasalnum, þar sem hægt er að bjóða upp á veitingar. Þar eru borð og stólar en koma þarf með allan borðbúnað að heiman svo sem glös, diska, vatnskönnur og önnur áhöld. Þá er mikilvægt að allt rusl sé tekið, þurrkað af borðum og gengið sé vel um.

SKILMÁLAR

Vinsamlegast lesið vel yfir skilmála, Fimleikasalur- útleiga, sem kemur fram í greiðsluferlinu.

Salurinn er alltaf leigður með starfsmanni til þess að öllum reglum sé fylgt og til að auka öryggi þeirra sem mæta.

Leigutaki ber ábyrgð á öllum þeim sem mæta á þeirra vegum í fimleikasalinn. Senda skal tölvupóst á [email protected] ef afbóka þarf salinn.

GOTT AÐ HAFA Í HUGA

Best að vera í fötum sem gott er að hreyfa sig í.

Gott er að biðja alla um að mæta 5-10 mín fyrir ykkar tíma í salnum svo hægt sé að nýta tímann sem best. Þegar ykkar tími hefst hleypir starfsmaður inní sal og fer yfir reglur í salnum. Fyrir nánari upplýsingar má senda á [email protected]