Hópfimleikar eru hópíþrótt þar sem samvinna, samhæfing og liðsheild skipta miklu máli. Keppt er á þremur áhöldum: gólfi, dýnu og trampólíni. Á gólfi framkvæmir liðið samræmda dans- og fimleikaæfingu þar sem áhersla er lögð á samhæfingu, tjáningu og flæði. Á dýnu og trampólíni framkvæma iðkendur stökk og akróbatískar æfingar þar sem hraði, kraftur, tækni og nákvæmni skipta miklu máli.
Í hópfimleikum er frammistaða liðsins í heild metin og því skiptir samvinna og góð liðsheild miklu máli. Iðkendur þurfa að treysta hver á annan og vinna saman að sameiginlegum markmiðum.
Keppt er í kvennaflokki, karlaflokki og flokki blandaðra liða. Flokkarnir eru frá 5. flokki upp í meistaraflokk og fara kröfur og erfiðleikastig æfinga stigvaxandi eftir aldri og getu iðkenda.
Þeir sem eru lengra komnir keppa eftir alþjóðlegum reglum Evrópska fimleikasambandsins (UEG), en í yngri flokkum og þar sem við á er keppt eftir sömu reglum með undanþágum.
5. flokkur
Hópur fyrir 9 ára iðkendur. Í 5. flokki er keppt í einum flokki án kynjaskiptingar.
4. flokkur og KK-yngri
4. flokkur: Hópur fyrir 10–11 ára iðkendur. Keppt er í stúlknaflokki og flokki blandaðra liða.
KK-yngri: Hópur fyrir 9–12 ára drengi.
3. flokkur, 2. flokkur og KK-eldri
3. flokkur: Hópur fyrir 12–13 ára iðkendur. Keppt er í stúlknaflokki og flokki blandaðra liða.
2. flokkur: Hópur fyrir 14–15 ára iðkendur. Keppt er í stúlknaflokki og flokki blandaðra liða.
KK-eldri: Hópur fyrir 12–15 ára drengi.
1. flokkur
Hópur fyrir 13–17 ára iðkendur. Keppt er í kvennaflokki, karlaflokki og flokki blandaðra liða.
Meistaraflokkur
Hópur fyrir iðkendur 16 ára og eldri. Keppt er í kvennaflokki, karlaflokki og flokki blandaðra liða.
Keppnisreglur og undanþágur – Fimleikasamband Íslands
