Áhaldafimleikar kvenna

Áhaldafimleikar kvenna eru einstaklingsíþrótt þar sem iðkendur vinna markvisst að því að byggja upp styrk, liðleika, samhæfingu, jafnvægi og sjálfstraust. Lögð er áhersla á einbeitingu, aga og nákvæmni og að hver iðkandi fái tækifæri til að þróast áfram á sínum hraða og setja sér markmið.

Æft er og keppt á fjórum áhöldum: stökki, tvíslá, jafnvægisslá og gólfi. Hvert áhald hefur sína sérstöðu og reynir á ólíka eiginleika.

Keppt er í þrepum 1–6 og í frjálsum æfingum. 6. þrep er fyrsta og lægsta þrepið og eftir því sem iðkendur ná meiri færni færast þeir upp í gegnum þrepin. 1. þrep er hæsta þrepið og að því loknu geta iðkendur færst yfir í frjálsar æfingar. Framvinda milli þrepa fer eftir færni, framförum og mati þjálfara.

Í keppni er æfing metin út frá erfiðleikastigi (D-einkunn) og framkvæmd (E-einkunn). Erfiðleikastigið byggist á þeim æfingum og tengingum sem iðkandi framkvæmir, en framkvæmdaeinkunnin metur hversu vel æfingin er framkvæmd, meðal annars með tilliti til tækni, líkamsstöðu og nákvæmni.

Hægt er að sjá nánari lýsingu á hverju áhaldi fyrir sig á heimasíðu Fimleikasambands Íslands.
Um áhaldafimleika kvenna – Fimleikasamband Íslands.