Stubbafimi eru tímar fyrir börn frá 1- 4 ára (2022-2025) sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttum.
Markmið okkar með Stubbafimi er að kynna fyrir börnin fyrir fimleikastarfinu í öruggu, jákvæðu og gleðilegu umhverfi þar sem þau kynnast hreyfingu, líkamsvitund og samveru í gegnum leik og grunnæfingar í fimleikum.
Haustönn telur 14 skipti og er fyrsti tíminn helgina 5. – 6. september. Síðasti tíminn verður helgina 5. – 6. desember.
Stubbafimi tímar í boði:
- 4 ára (börn fædd 2022) – Laugardaga kl. 10.00-10.50 og 11.00 – 11.50
- 3 ára (börn fædd 2023) – Sunnudaga kl. 10.00-10.50 og 11:00 – 11:50
- 2-3 ára (börn fædd 2023 og 2024) í fylgd með foreldrum – Sunnudaga kl. 09.00-09.50.
- 1 árs (börn fædd 2025) í fylgd með foreldrum – Laugardaga kl. 09.00-09:50.
Í 3 ára (sunnudagur) og 4 ára (laugardagar) tímunum æfa börnin í salnum ásamt þjálfurum sínum. Foreldrar geta horft á tímann af annarri hæð í gegnum glerið. Í tímunum fyrir 2-3 ára og 1 árs er boðið upp á frjálsan tíma í sal þar sem foreldrar eru í fylgd með börnum sínum alla æfinguna. Athugið að 3 ára börn fædd árið 2023 geta valið annað hvort að skrá sig í tímann með foreldrum á sunnudögum kl. 09:00, eða – ef þau eru tilbúin að koma ein – í tímann á sunnudögum kl. 10:00 eða 11:00. Velja þarf annað hvort og helst sú skráning út önnina.
Fyrirvarar Fimleikadeildar: *Takmarkað pláss er í hvern tíma og verður biðlisti fyrir þá sem ekki komast að í fyrstu. * Sé ekki næg skráning í einhverja hópa áskilum við okkur rétt til þess að sameina tíma.
